Mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð 14. nóv. 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 5. nóvember 2024, um uppfærslu á handbók um kynjaða fjárhags- og starfsáætlun, 2. útgáfa.                       

Fulltrúi Flokks fólksins fagnar því að út sé komin ný handbók um kynjaða fjárhags- og starfsáætlun hjá Reykjavíkurborg. Handbókin byggir á handbók sem gefin var út árið 2014, margt hefur breyst á tíu árum og því eðlilegt að uppfæra handbókina. Í handbókinni segir: Kynjuð fjárhags- og starfsáætlun veitir okkur tæki og tól til að greina stöðuna og taka upplýstar ákvarðanir sem taka mið af stöðu og þörfum ólíkra hópa fólks og bæta þannig þjónustu okkar og nýtingu fjármagns. Fulltrúi Flokks fólksins vonar að horft verði til þessara þátta þegar ný fjárhagsáætlun verður lögð fram. Flokkur fólksins hefur gagnrýnt ýmsar þá sparnaðaraðgerðir sem lagðar hafa verið fram og þá sérstaklega þær aðgerðir sem snúa að þjónustu við borgarbúa. Ýmsar sparnaðaraðgerðir hafa komið fram á skóla- og frístundasviði sem skerða þjónustu við börn og barnafjölskyldur. Í handbókinni segir: Réttlæti felst í því að horfa til þess hvaða áhrif ákvarðanataka kann að hafa á mismunandi hópa og bregðast við ef talið er að ákvörðun sé líkleg til að auka misrétti. Fulltrúa Flokks fólksins telur að börn og barnafjölskyldur vera ákveðinn hópur í samfélaginu sem þarf að hafa í huga við kynjaða fjárhags-og starfsáætlun. Flokkur fólksins vill réttlátari dreifingu fjármuni með tilliti til þarfa borgarbúa.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar félags- og vinnumarkaðsráðuneytis dags. 7. október 2024 við erindi mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 30. ágúst sl., um ókyngreind salerni á vinnustöðum og breytingar á reglum nr. 581/1995 um húsnæði vinnustaða.

Fulltrúa Flokks fólksins finnst deilan á milli mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar og Félagsmálaráðuneytisins um kynlaus salerni alveg með ólíkindum. Sumarið 2019 voru öll salerni fyrir starfsfólk í stjórnsýsluhúsum Reykjavíkurborgar gerð ókyngreind. Samkvæmt athugasemdum frá Vinnueftirliti ríkisins og úrskurði félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins nr. 7/2024 frá 11. júlí 2024 koma reglur nr. 581/1995 um húsnæði vinnustaða þó í veg fyrir þessa breytingu. Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa Reykjavíkurborgar sendi erindi á Félagsmálaráðuneytið þar sem kallað er eftir því að þessum reglum verði breytt. Nú hefur borist svar frá Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu um að það sé verið að endurskoða þessar áðurnefndu reglur um húsnæði vinnustaða og jafnframt að breytingarnar hafi tafist vegna mikilla anna í ráðuneytinu. Fulltrúa Flokks fólksins finnst í raun svona reglur algjör tímaskekkja og finnst að hver og ein stofnun eða vinnustaður megi ráða því hvort salerni séu ókyngreind eða ekki og þá auðvitað í samráði við starfsfólk.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum : Fram fer kynning forvarnarfulltrúa Reykjavíkurborgar.

Fulltrúi Flokks fólksins telur mikilvægt að setja aukinn kraft í forvarnarstarf og heilsueflingu barna og ungmenna með markvissum aðgerðum. Fulltrúa Flokks fólksins líst vel á þessa aðgerðaáætlun og vonar að þetta verði ekki bara falleg orð á blaði heldur verði ráðist í raunverulegar forvarnaraðgerðir. Hvergi er t.d. hægt að sjá neina tímalínu, hvað er komið í gang og hvað ekki? Hvernig miðar aðgerðum? Áskoranirnar eru margar því rannsóknir sýna að vímuefnaneysla hefur aukist og þá sérstaklega hjá stúlkum og þær eru einnig farnar að nota nikotínpúða í meira mæli. Einnig hefur kvíði og depurð aukist hjá unglingsstúlkum og vilja margir meina að þar sé mikil notkun þeirra á samfélagsmiðlum áhrifavaldur. Ofbeldi er að aukast og hatursorðræða að verða meira áberandi í samfélaginu. Fulltrúi Flokks hefur haft áhyggjur af þessari þessari þróun og hefur ítrekað viðrað þær áhyggjur í mannréttinda- og ofbeldisvarnaráði. Mikilvægi þess að bregðast við þessum vanda sem er knýjandi. Ráðið gæti beitt sér af meiri krafti. Það þarf aðgerðir og þær þarf að mæla til að hægt sé að meta árangur af þeim.