Sérstök umræða á Alþingi um Þjóðkirkjuna og málefni hennar

Sérstök umræða

Fræðsla trúarbragða í grunnskólum

Virðulegi forseti

Ég tel að það sé mikilvægt að fræða börn í skólum um mismunandi trúarbrögð til að auka víðsýni, umburðarlyndi og skilning þeirra sem á landinu búa. Vanda þarf til verka þannig að þeir sem kenna trúarbrögð í skólum hafi þekkingu og skilning til þess. Mikilvægt er að við séum opin fyrir fræðslu um þá sem hingað koma og önnur trúarbrögð, og höfum gagnrýna hugsun til að vega og meta hvað okkur sjálfum finnst.
Ekki má gleyma mikilvægi þess að þeir sem hingað flytja séu tilbúnir til að kynnast okkur og okkar siðum.

Erfitt er að gera sér grein fyrir hvort trúarbragðakennsla í skólum er víðtæk, góð eða slæm og hvort skólar séu að nálgast markmiðið með mjög ólíkum hætti?

Almennt held ég að nemendur séu forvitnir um að  kynnast hvaða trúarbrögð eru algengust í heiminum.

Mér finnst mikilvægt að standa vörð  um trúar- og menningarþátt íslenskrar þjóðar ásamt því að auka þekkingu á öðrum trúarbrögðum .

Án okkar eigin trúarsögu eigum við að ég tel, erfiðara með að setja okkur í samhengi við sögu annarra menningarsvæða.

Þekking á kristinni trú og sögu hennar hér á landi er forsenda menningarlæsis og þekkingar á sögu lands og þjóðar. Fjölmargir hafa tjáð sig um að vilja gera kristinni fræðslu hærra undir höfði í grunnskólum en nú er gert til að börn geti skilið betur okkar sameiginlegu sögu og menningu. Í Kristnifræðikennslu felst tækifæri til að ræða góð gildi og hvað það merkir að vera góð manneskja og elska náungann. Virðulegi forseti, Jesús bróðirinn besti er sannarlega barnavinurinn mesti.