Það er mikilvægt að búa yfir sæmilegu fjármálalæsi og að ungu fólki sé kennt að fara með peninga. Það er hins vegar allur gangur á því hversu mikla kennslu börn fá í fjármálalæsi í grunn- og framhaldsskólum landsins.
Gert er ráð fyrir kennslu í fjármálalæsi í hæfniviðmiðum aðalnámskrár grunnskóla en það er ekki sjálfstæð námsgrein. Kennslan getur því verið hluti af öðrum greinum og útfærslan mismunandi milli skóla.
Það er tímabært að ganga lengra og tryggja öllum grunnskólanemendum markvissa kennslu í fjármálalæsi.
Jafnræðismál
Margir foreldrar fræða börn sín að sjálfsögðu vel um fjármál en þannig er það ekki á öllum heimilum. Börn hafa þar af leiðandi ólíkan bakgrunn og mismunandi tækifæri til að læra um fjármál og sparnað heima.
Þess vegna er þetta líka jafnræðismál.
Enginn ætti að fara út í lífið án þess að kunna skil á grundvallaratriðum fjármála sem allir þurfa að takast á við á lífsleiðinni. Hvernig á að lesa launaseðil? Hvað eru vextir? Hvað kostar að taka lán? Hvað þýðir að kaupa eitthvað á raðgreiðslum? Hvernig geri ég fjárhagsáætlun og hvers vegna skiptir sparnaður máli?
Þetta er þekking sem nýtist fólki alla ævi.
Langanir og þarfir
Fjármálalæsi snýst ekki eingöngu um að kunna skil á tölum. Fólk þarf líka að læra að greina á milli þess sem okkur langar í og þess sem við þurfum á að halda.
Ungmenni þurfa að vita að lántöku fylgir ábyrgð og að kostnaður við lán getur orðið mun meiri en upphæðin sem tekin er að láni. Þau þurfa að skilja vexti, skuldbindingar og afleiðingar þess að stofna til útgjalda sem framtíðartekjur standa kannski ekki undir. Skuldahali sem verður til snemma á ævinni getur reynst langvinnur og íþyngjandi lífsförunautur.
Á sama tíma þarf að fræða ungmenni um jákvæðar hliðar fjármála, m.a. um að sparnaður geti veitt frelsi til athafna og aukið möguleika. Með því að leggja fyrir, jafnvel litlar fjárhæðir, megi smám saman byggja upp aukið svigrúm og fjárhagslegt öryggi.
Sterkt ákall
Nýlegar kannanir sýna að áhuginn á þessari kennslu er mikill. Í könnun Gallup fyrir Samtök fjármálafyrirtækja töldu rúmlega 81 prósent að fólk ætti að læra um fjármál í grunnskóla en aðeins 12,3 prósent sögðust sjálf hafa fengið slíka fræðslu þar.
Svörin voru enn skýrari þegar spurt var hvort fjármálalæsi ætti að vera skyldufag. Rúmlega níu af hverjum tíu þeirra sem tóku afstöðu töldu miklu máli skipta að fjármálalæsi yrði gert að skyldufagi í grunnskólum landsins.
Þetta eru skýr skilaboð.
Skólinn á að búa börn undir lífið og gerir það auðvitað að miklu leyti. Þar hljóta fjármál að skipta máli. Við kennum börnum margt sem þau þurfa að kunna þegar þau verða fullorðin. Að kunna að fara með peninga á að vera hluti af undirbúningi fullorðinsáranna.
Kolbrún Baldursdóttir
þingmaður Flokks fólksins