Yfir hundrað þúsund manns búa í leiguhúsnæði hér á landi, á um fimmtíu þúsund heimilum. Hjá mörgum fer yfir 40 prósent ráðstöfunartekna til greiðslu húsaleigu. Leigjendur búa við mikið óöryggi varðandi búsetu og hækkun leiguverðs. Leigumarkaðurinn minnir oft á villta vestrið þar sem leigjendur ráða litlu um sín kjör.
Nú hefur Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra Flokks fólksins lagt fram frumvarp um svo kallaða leigubremsu. Það er skynsamleg, sanngjörn og löngu tímabær aðgerð.
Hvað breytist?
Kjarni frumvarpsins er einfaldur. Mánaðarlegar vísitöluhækkanir húsaleigu eiga að heyra sögunni til. Í upphafi leigusambands þarf að liggja fyrir með hvaða hætti og hversu títt leiguverð getur tekið breytingum. Almennt verður ekki heimilt að hækka leigu oftar en einu sinni á ári.
Þegar húsaleiga hækkar allt að mánaðarlega þarf fjölskyldan að hagræða öðrum útgjöldum. Það getur bitnað á matarinnkaupum, tómstundum barnanna eða möguleikum fjölskyldunnar til að leggja eitthvað fyrir.
Leigubremsu er ekki ætlað að koma í veg fyrir að leiguverð taki breytingum. Hún setur þeim hins vegar skýran ramma og forsendur. Þannig skapast fyrirsjáanleiki og leigjendum verður auðveldara að skipuleggja fjármál sín.
Sanngjarnar leikreglur
Með frumvarpi ríkisstjórnarinnar er ekki verið að hafa óeðlileg afskipti af frjálsum leigumarkaði. Löggjafinn hefur allt frá árinu 1917, þegar fyrstu húsaleigulögin voru sett, talið nauðsynlegt að gæta að réttindum leigjenda og húseigenda. Núgildandi húsaleigulög eru frá árinu 1994 en síðan þá hefur margt breyst í íslenskum veruleika.
Ekki ný hugmynd
Hugmyndin um leigubremsu er ekki ný af nálinni. Inga Sæland formaður Flokks fólksins hefur ásamt þingflokknum ítrekað lagt fram frumvörp um leigubremsu. Verkalýðshreyfingin og Neytendasamtökin hafa sömuleiðis kallað eftir slíkum ráðstöfunum.
Í samkomulagi aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda vegna lífskjarasamninganna árið 2019 og stöðugleikasamninganna árið 2024 var kveðið á um aðgerðir í húsnæðismálum, meðal annars gagnvart leigumarkaðnum, og að dregið yrði úr vægi verðtryggingar.
Komin til velferðarnefndar
Leigubremsan er hluti af aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar vegna endurskoðunar á forsendum núgildandi kjarasamninga. Í aðgerðunum er meðal annars gert ráð fyrir endurskoðun húsnæðisbóta og tryggingafjár, öflugri kærunefnd húsamála og aukinni lögfræðiaðstoð við leigjendur.
Frumvarpið er nú komið til velferðarnefndar Alþingis þar sem farið verður yfir efni þess og umsagnir. Eins og í öðrum málum sem eru í þinglegri meðferð verður vandað til verka. Það er jafnframt áríðandi að láta þetta mikilvæga mál ekki dragast á langinn. Ríkisstjórnin er staðráðin í að bæta hag leigjenda.
Pistill birtur í Morgunblaðinu 13.10. 2026