Sérstök umræða – Nikótín og tóbaksnotkun barna og ungmenna

Fyrri ræða

Sérstök umræða um tóbaksvarnir og ungmenni

Fyrri ræða

Tóbaksvarnir á Íslandi hafa lengi byggst á því að reyna að koma í veg fyrir að börn og ungmenni byrji að nota tóbak. En landslagið hefur breyst mikið á undanförnum árum.

Í dag er ekki lengur nóg að horfa eingöngu til hefðbundinna sígaretta. Nýjar nikótínvörur hafa komið á markað, svo sem nikótínpúðar og rafrettur. Þessar vörur eru seldar og markaðssettar með öðrum hætti en þær vörur sem við höfum lengst af tengt við tóbaksvarnir.

Nikótínpúðar hafa til að mynda náð mikilli útbreiðslu og sérstakar áhyggjur vekur hvernig þeir eru boðnir í litríkum umbúðum og með sælgætis- og ávaxtabragði sem getur höfðað til barna og ungmenna. Sumir þessara púða innihalda mikið magn nikótíns, sem er afar ávanabindandi efni. Það er sérstaklega áhyggjuefni þegar ungmenni eiga í hlut, enda er heilinn enn að þroskast. Þá má ekki heldur gleyma hættunni fyrir lítil börn sem komast í nikótínpúða fyrir slysni, en inntaka þeirra getur valdið alvarlegri nikótíneitrun.

Þessi þróun kallar á að við skoðum ekki aðeins hversu útbreidd nikótínnotkun er meðal ungs fólks, heldur líka hvernig hún er að breytast. Erum við að sjá nýjan hóp ungs fólks byrja að nota nikótín sem hefði annars aldrei byrjað að reykja? Hvaða vörur eru mest notaðar og á hvaða aldri er notkunin að hefjast?

Til þess að geta brugðist rétt við þurfum við að hafa skýra mynd af þessari þróun og tryggja að forvarnir og regluverk haldist í hendur við breytingar á markaðnum.

Nú stendur til að leggja fram nýtt frumvarp um nikótín- og tóbaksvarnir þar sem núverandi löggjöf verður tekin til heildstæðrar skoðunar. Þar er meðal annars gert ráð fyrir breytingum á reglum um bragðefni, sölu og eftirlit. Það er því mikilvægt að ræða hvernig þessar breytingar geti stuðlað að því að vernda börn og ungmenni betur.

Í fyrri ræðu minni beindi ég þremur spurningum til hæstvirts heilbrigðisráðherra:

Hvað sýna nýjustu upplýsingar um þróun í notkun tóbaks og nikótínvara hér á landi, sérstaklega meðal barna og ungmenna?

Hverjar telur ráðherra helstu áskoranirnar vera þegar kemur að nikótínnotkun barna og ungmenna og hvaða áhrif getur slík notkun haft á heilsu þeirra og þroska?

Hvaða breytingar hyggst ráðherra leggja til í fyrirhuguðu frumvarpi til að draga úr notkun tóbaks og nikótínvara, sérstaklega meðal barna og ungmenna?

Seinni ræða

Umræðan var áhugaverð. Sumir vilja engin boð eða bönn, en við getum ekki lagt þessa ábyrgð á herðar ungmennanna. Þetta er samfélagsleg ábyrgð okkar.

Gleymum því ekki hversu hættulegt nikótín er börnum og ungmennum. Þetta er afar ávanabindandi efni sem getur haft áhrif á þroska heilans, einbeitingu, skap og hvatastjórnun. Það getur einnig aukið hjartslátt og hækkað blóðþrýsting.

Sumir þessara púða innihalda mjög mikið nikótín og fíknin getur náð tökum á ungu fólki á ótrúlega skömmum tíma.

Það sem veldur mér ekki síður áhyggjum er hversu eðlileg notkun þessara púða virðist vera orðin í daglegu lífi ungs fólks. Púðarnir eru litlir, lítt áberandi og auðvelt að nota þá nánast hvar sem er. Það þarf hvorki að kveikja í þeim né fara út til að nota þá eins og sígarettur.

Hættan er sú að börn og ungmenni fari að líta á notkun nikótínpúða sem sjálfsagðan hlut, án þess að gera sér grein fyrir því hversu erfitt getur reynst að losna undan fíkninni.

En markmiðið hlýtur fyrst og fremst að vera að sem fæst börn og ungmenni byrji að nota nikótín. Þar skipta fræðsla og forvarnir miklu máli, en líka skýrar reglur um sölu, markaðssetningu og aðgengi að þessum vörum.

Reglur einar og sér duga þó ekki ef eftirlitið með þeim er ekki nægilega öflugt.

Að lokum spurði ég hæstvirtan ráðherra hvaða breytingar væru fyrirhugaðar á eftirliti með smásölu tóbaks og nikótínvara og hvernig hún teldi að þær breytingar gætu stuðlað að því markmiði að draga úr notkun þessara vara meðal barna og ungmenna.hvernig hún telji að þær breytingar geti stuðlað að því markmiði að draga úr notkun þessara vara meðal barna og ungmenna.