Þess vegna vill Flokkur fólksins að sálfræðingar verði í öllum framhaldsskólum landsins. Sálfræðingar eru í einhverjum framhaldsskólum en Flokkur fólksins vill, komist hann til áhrifa á Alþingi, berjast fyrir að fá sálfræðinga í alla framhaldsskóla landsins. Í framhaldsskólunum eru krakkarnir undir lögaldrifyrstu tvö árin.
Mikill áhugi er meðal framhaldsskólanema að boðið sé upp á ókeypis sálfræðiþjónustu innan veggja skólanna. Langir biðlistar eru eftir sálfræðiþjónustu á heilsugæslustöðvum. Nemendur kjósa persónuleg samtöl við sálfræðinga. Þetta hefur komið fram m.a. í könnunum. Í framhaldsskólum eru námsráðgjafar og þeir vinna sannarlega ómetanlegt starf. En það er ekki nóg nú þegar hver rannsóknin á fætur annarri sýnir að líðan ungmenna fer versnandi. Í mörgum framhaldsskólum eru sérdeildir, starfsbrautir og annað námsframboð sem er sérstaklega ætlað fötluðum nemendum. Þörfin er því mikil.
Flokkur fólksins vill að aðgengi að sálfræðingum fyrir börn og ungt fólk verði stóraukið og gert verulega gott. Fyrir því munum við berjast komumst við til áhrifa á Alþingi. Samhliða þarf að útrýma biðlistum sem eru alvarlegt mein í íslensku samfélagi. Með því að auðvelda aðgengi að viðeigandi þjónustu er líklegt að nemendur leiti sér aðstoðar og nái fyrr betri tökum á lífi sínu.
Kæri kjósandi. Sem sálfræðingur til rúmlega þrjátíu ára þekki ég þessi mál vel, þörfina og er þetta m.a. ástæðan fyrir að ég taldi mig knúna til að fara í pólitík. Nú er ég auk þess komin með reynslu sem borgarfulltrúi þar sem ég hef barist í á sjöunda ár sem málsvari barna og ungs fólks auk þeirra sem minna mega sín. Ríkisvaldið ber ásamt sveitarfélögum ábyrg á því að tryggja ungu fólki þjónustu. Flokkur fólksins hefur sterka rödd fyrir fólkið á Alþingiog hefur sýnt réttlæti í verki. Við erum málsvarar barna og ungmenna og berjumst fyrir réttlæti. Flokkur fólksins hefur reynslu og raunverulegar lausnir sem eru byggðar á reynslu.
Fólkið fyrst – svo allt hitt!
Birt á visi.is 16. nóvember 2024