Aðbúnaður og velferð svína – beiðni um skýrslu lögð fram á Alþingi

Aðbúnaður og velferð svína

17.9. 2025

Frú forseti.

Sláandi upplýsingar hafa birst í fjölmiðlum um aðbúnað og meðferð svína í ræktunarbúum sem virðast ekki samræmast ákvæðum laga um velferð dýra, nr. 55/2013.

Við flutningsmenn þessarar beiðni teljum nauðsynlegt að varpa ljósi á og upplýsa hvernig búið er að svínum og spurningum svarað eins og hversu algengt sé að halaklippingar á svínum viðgangist hjá ræktendum og hverjir framkvæmi slíkar aðgerðir.

Einnig hversu oft Matvælastofnun hafi gert athugasemdir við framkvæmd halaklippinga, hversu algengt sé að klippa tennur svína til að draga úr halabiti og hvaða aflífunaraðferðir séu notaðar í svínasláturhúsum. Síðast en ekki síst hvernig notkun gasklefa samræmist lögum og reglum um velferð dýra.

Það er óþolandi að vita til þess að illa sé farið með svínin sem og önnur dýr og með öllu ólíðandi ef aðbúnaði þeirra er ábótavant. Skýrslan sem hér er beðið um mun varpa ljósi á stöðu þessara mál og er mikilvægt að farið sé hið snarasta í úttekt á reglum og eftirliti er varðar aðbúnað og velferð svína.