Umhverfis- og skipulagsráð 1. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða um gróðursetningu stærri trjáa í borgarlandi:

Stór tré þurfa mikið pláss og þess vegna þarf að planta þeim á stórum opnum svæðum. Í borginni eru víða opin svæði svo sem meðfram vegum sem sjálfsagt er að setja stór tré. Mikill kostur er ef hægt er að setja stór tré þar sem fólk er ekki. Til dæmis setja stór tré á eyjur milli akreina þar sem þau draga úr mengun og svifryki en hindra ekki aðra umferð. Stór tré eru líka góð til að mynda skjólbelti, til að hindra skafrenning, t.d. meðfram þeim vegum sem eru útsettir fyrir skafrenningi. Slík skjólbelti væru þá í hæfilegri fjarlægð frá vegi þannig að bundinn snjór vær ekki á veginn. Sums staðar hefur verið plantað of mikið. Það er t.d. of mikið af trjám í Elliðaárdal sem dæmi. í kynningunni vekur athygli að sígræn tré eru ekki nefnd og virðast ekki koma til álita en slík tré mynda skjól allt árið en ekki bara á sumrin. En þar með er ekki sagt að falleg lauftré séu ekki til prýði í borginni.

 

Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um framgang hreinsunar- og öryggismála í Úlfarsárdal, sbr. 14. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 26. apríl 2023.

Vísað til umsagnar Sorpu bs. USK23040216

 

Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um lagfæringar á strætóstöðvum, sbr. 34. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 4. október 2023.

Vísað til umsagnar, umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar.

 

Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um fyrirspurnir frá íbúaráði Háaleitis- og Bústaðarhverfis, sbr. 36. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 4. október 2023.

Vísað til umsagnar Íbúaráðs Háaleitis- og bústaðahverfis.

 

Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um frestun lokunar bensínstöðvar í Stóragerði:

Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að lokun bensínstöðvarnar í Stóragerði verði frestað. Það hafa komið að máli við Flokk fólksins nokkrir aðilar sem hafa af því miklar áhyggjur að bensínstöðinni í Stóragerði loki. Í hverfinu búa margir aldraðir og fatlaðir sem vilja halda stöðinni vegna þess að þeir treysta á aðstoð og þjónustu sem þar er í boði. Einnig eru þarna stórir vinnustaðir og verslanir allt í kring sem nota þessa þjónustu.

Frestað.

 

Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um úttekt á þróun Úlfarsárdals:

Flokkur fólksins leggur til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að sviðið fari í sérstaka úttekt á hvernig gengið hefur að þróa og byggja hverfið í Úlfarsárdal og skili samantekt af úttektinni í stuttri skýrslu sem lögð verði fyrir umhverfis- og skipulagsráð. Einnig myndi skýrslan vera aðgengileg íbúum í Úlfarsárdal og öðrum þeim sem sýna hverfinu áhuga. Þetta er lagt til vegna kvartana sem borist hafa reglulega undanfarin ár. Kvartanir ná yfir breytt svið. Kvartað er yfir því hversu illa gengur að ljúka uppbyggingu hverfisins. Upplýsingar hafa borist um að lóðarhafar láti lóðir standa auðar árum saman og eru þær fullar af t.d. byggingarúrgangi. Einnig er talað um að lóðir hafa farið á ,,vergang í bönkum” eins og það er orðað frá einum íbúa hverfisins. Hverfið telst varla nýtt lengur og talið er að yfir 30 lóðir séu óbyggðar eða ólokið. Gert var ráð fyrir 15.000 íbúum í hverfinu og fullri sjálfbærni. Langt er í land að svo megi verða. Enn er ekki komin matvöruverslun í hverfið og til stóð að hverfið ætti að vera blanda af íbúðar- og atvinnuhúsnæði sem heldur ekki bólar á.

Frestað.

 

Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um breytingar á gatnamótum við Egilshöll:

Óskað er upplýsinga hver sé ástæða þess að farið var í breytingar á gatnamótum við Egilshöll í Grafarvogi? Unnið hefur verið að breytingum við þessi gatnamót og þeim breytt úr ljósastýrðum gatnamótum í hringtorg. Byrjað var á framkvæmdum í júní og þær standa enn yfir með tímabundnum lokunum. Hver er ástæðan þess að farið var í þessar breytingar og hverju átti að ná fram. Hvað kosta þessar framkvæmdir. Mikið hefur verið fjallað um þetta í Grafarvoginum og er það mat fjölmargra að ekkert gagn sé af þessum framkvæmdum og helst ógagn í þröngum götum og beygjum t.d. fyrir strætisvagna og snjóruðningstæki.

Frestað

 

Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um hvenær endurgerð yfir 500 strætóbiðstöðva verður lokið:

Á sjötta hundrað strætóbiðstöðva þarfnast endurbóta. Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hvenær áætlað er að endurbætur á þeim öllum verði lokið? Samkvæmt nýju leiðaneti á að leggja niður 126 biðstöðvar. Það er hins vegar ekki að gerast á næstunni og jafnvel ekki næstu árin. Það má vera að væntingar séu um að stutt sé í Borgarlínuna, en svo er ekki. Það er því ljóst að endurbæta þarf þessar 126 stöðvar á einum eða öðrum tímapunkti. Um það bil 156 biðstöðvar þurfa að aðgengisbætandi aðgerðir samkvæmt nýlegri kynningu um þennan málaflokk. Það virðist sem að 15-20 biðstöðvar séu endurgerðar á ári, sem er ekki mikið þegar heildarfjöldi er 546. Á þessu tempói mun það taka yfir 30 ár að ljúka endurbótum á öllum þessum biðstöðvum. Þarf ekki að ganga röskar til verks hér? Setja þessar framkvæmdir í meiri forgang? Strætó eru okkar einu almenningssamgöngur.