Umhverfis- og skipulagsráð 14. febrúar 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð SORPU bs. dags. 6. febrúar 2024 og svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um lið 4 í fundargerð SORPU:

Sérsöfnun á matarleifum. Fram kemur að frá áramótum hefur SORPA dreift um 300.000 pokum á endurvinnslustöðvum og í Góða hirðinum. Dreifing hefur gengið vel og spurn eftir pokum verið í samræmi við væntingar. Ekkert kemur fram um að fólk sé að hamstra poka. Hér má minna á tillögu Flokks fólksins um að beina því til stjórnar SORPU og þeirra sem annast sorphirðu í borginni að huga sérstaklega að eldra fólki og hreyfihömluðum, sem ekki geta nálgast poka fyrir lífrænan úrgang á endurvinnslustöðvum, Tillagan var felld af meirihlutanum með mótatkvæðum allra atkvæðabærra minnihlutafulltrúa í borgarráði. Þessi skerðing á þjónustu getur haft slæmar afleiðingar fyrir marga eldri borgara, hreyfihamlaða og þau sem ekki aka bíl eða þau sem vilja lifa bíllausum lífstíl. Fulltrúi Flokks fólksins sér fyrir sér að þeir sem ekki geta nálgast pokana á SORPU fái tækifæri til að panta pokana heim til sín eða að sorphirðufólk geti afhent þeim nýja poka t.d. á sama tíma og sorphirða á sér stað. Þetta fyrirkomulag, þ.e. að sorphirðufólk afhendi pappírspoka með reglulegu millibili er viðhaft í öðrum löndum.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Fram fer kynning á niðurstöðum hugmyndaleitar fyrir Leirtjörn vestur:

Byggja á kjarna þar sem sérstakt tillit er tekið til eldri borgara, nokkuð sem ekki mátti  gera fyrir nokkrum misserum. Fulltrúi Flokks fólksins fagnar þessu og lýst vel á vinningstillöguna  Kynslóð eftir kynslóð sem er í góðu samræmi við tillögu Flokks fólksins sem lögð var fram árið 2021 um skipulagða byggð fyrir eldra í Reykjavík. Tillagan fékk þá engan hljómgrunn hjá meirihlutanum. En samráð og samtal við fjölmarga eldri borgara og hagsmunasamtök hefur leitt í ljós að fjölmargir vilja einmitt að íbúðasvæði í borginni verði skipulögð þar sem sérstök áhersla er lögð á þjónustu við eldra fólk og þeirra þarfir. Gera þarf jafnframt ráð fyrir dagdvöl og þjónustuíbúðum. Horfa þarf til útivistar, áhugamála, félagslegrar þjónustu, heilsugæslu og fleira. Á svæði sem þessu er í raun ekki þörf fyrir uppbyggingu leik- og grunnskóla. Einblína ætti frekar á fjölbreytt úti- og innisvæði til afþreyingar og skemmtunar. 

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um að íbúar við Hlemm fái að nota bílastæði við enda lögreglustöðvarinnar, Rauðarárstígsmegin, sbr. 39 lið fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 10. janúar 2024. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 31. janúar 2024.

Tillögunni er vísað frá með vísan til umsagnar samgangna og borgarhönnunar, dags. 31. janúar 2024. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. USK24010094

Tillaga fulltrúa Flokks fólksins gekk út á að íbúar við Hlemm fái að nota bílastæði við enda lögreglustöðvarinnar, Rauðarárstígsmegin utan vinnutíma t.d. frá 20 til 08 að morgni enda stæðu þau ella auð. Tillögunni er vísað frá á þeim rökum að bílastæðin sem um ræðir eru innan lóðar og hefur borgin ekki umráð yfir þessum stæðum. Fulltrúi Flokks fólksins myndi nú engu að síður halda að umhverfis- og skipulagssvið geti beitt sér eitthvað í þessu máli. Eins og fram kemur í greinargerð með tillögunni þá var þetta áður leyft en nú hefur verið sett slá til að loka svæðinu. Eins er vitað að þarna er mikill hörgull á bílastæðum og margir íbúar eru í stökustu vandræðum með að fá bílastæði fyrir bíla sína ekki síst yfir nótt. Ef hægt er að liðka fyrir íbúum með þessum hætti, ætti að sjálfsögðu að reyna að ræða við þá sem hafa umráð yfir þessum stæðum.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 28. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 7. febrúar 2024 um áhrif áframhaldandi veru flugvallarins í Vatnsmýri á fjárfesta.

Fyrirspurninni er vísað frá þar sem ekki er á væri sviðsins að svara því sem þar er spurt um.

Flokkur fólksins lagði fram fyrirspurn um áhrif á fjárfesta nú þegar flugvöllurinn verður áfram í Vatnsmýrinni og er henni vísað frá. Það er sérstakt að vísa frá fyrirspurn. Óskað var upplýsinga um hvaða áhrif það er líklegt til að hafa á fjárfesta sem hyggjast byggja Nýja Skerjafjörð nú þegar vitað er að flugvöllurinn verður áfram í Vatnsmýrinni. Flokki fólksins finnst þetta mikilvægt mál því það hlýtur að breyta öllu fyrir kaupendur og auðvitað eigendur eigna þarna í kring hvort þeir eigi eftir að þurfa að búa “ofan í flugvelli“ til framtíðar? Nú liggur fyrir að Reykjavíkurflugvöllur mun verða áfram á sínum stað næstu áratugi samkvæmt orðum samgönguráðherra, vegna óvissu um hvort Hvassahraun verði nokkurn tíma örugg staðsetning fyrir nýjan flugvöll vegna eldsumbrota á Reykjanesskaga. Fulltrúa Flokks fólksins fannst það aldrei góð hugmynd að skipuleggja nýja byggð þarna ofan í flugvellinum þegar það var fullkomlega óljóst hvort flugvöllurinn færi nokkurn tímann úr Vatnsmýrinni.

Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 30. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 7. febrúar 2024 um Gufunes.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa. USK24020066

Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 29. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 7. febrúar 2024 um Gufunesveg 34.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds. USK24020065

 

Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um samráð við rekstraraðila v. Mathallarinnar á  Hlemmi:

Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsingar um hvort skipulagsyfirvöld hafi haft samráð við rekstraraðila Mathallarinnar á Hlemmi um framkvæmdir sem þar eru í gangi og hvaða áhrif þær hefðu á viðskipti Mathallarinnar? Fulltrúi Flokks fólksins spyr auk þess um áætlaðan kostnað og verklok vegna framkvæmda á Hlemmi og nágrenni?

Greinargerð

Framkvæmdir á Hlemmi mun taka nokkur ár ef hægt er að taka mið af hvernig framvindan hefur verið fram til þessa. Engum blöðum er um fletta að framkvæmdirnar hljóta að hafa dregið úr viðskiptum Mathallarinnar og fleiri verslana og fyrirtækja þarna í kring.  Það hafa verið settar háar fjárhæðir í Mathöllina  bæði borgin og þeir sem reka þarna veitingahús. Flokkur fólksins hefur áður velt því upp hvort ekki  hefði átt að fresta  þessum framkvæmdum þá einna helst vegna fjárhagsstöðu borgarinnar. Íbúarnir hljóta að hugsa með hryllingi til langs tíma þar sem þeir komast illa að heimilum sínum.