Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á frumdrögum á Miklubraut í stokk eða jarðgöng.
Hér er lögð á borð áhugaverð áætlun. Hvergi er þó að finna neinar hugleiðingar um hvað gert er með mengaða loftið í göngunum. Þegar um svona löng göng er að ræða þarf að huga að mengunarvörnum. Mengun er ekki síður atriði hvort sem maður er ofanjarðar eða neðan. Hér virðist vera gert ráð fyrir að mengaða loftið streymi út um gangnaopin/munnanna. Þaðan kemur einnig hreina loftið inn í jarðgöngin. Þarf ekki að stýra loftflæðinu og jafnvel upp um sérstaka strompa, þar sem í framtíðinni væri hægt að hreinsa loftið? Einhvers konar hreinsunarbúnað er klárlega þörf. Það er mörgum spurningum ósvarað í þessari annars metnaðarfullu kynningu. Til dæmis gæti orðið mengunarvandmál við gangnaopin fyrir nærbúandi fólk? Við umferðarmestu göturnar núna, er þegar mikil mengun, og er þó ekkert þak þar yfir. Fulltrúi Flokks fólksins væntir þess að þetta verði betur útskýrt á næsta stigi.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að samþykkja að Austurstræti, vestan Pósthússtrætis, verði göngugata og Pósthússtræti verði vistgata til 1. október 2024:
Málið var rætt í borgarstjórn 6. febrúar 2023. Lagt var þá til að samþykkja að Austurstræti, vestan Pósthússtrætis, verði göngugata og Pósthússtræti verði vistgata til 1. október 2024. Nú á að taka fyrsta skrefið. Flokkur fólksins leggur áherslu á að leita álits hagaðila svo ástandið sem skapaðist á Laugavegi og nágrenni þegar meirihlutinn keyrði í gegn göngugötu þrátt fyrir hávær mótmæli endurtaki sig ekki. Það hefði, áður en lengra væri haldið, átt að ráðast í samráð við atvinnurekendur og hagaðila á svæðinu. Rétt er að hafa í huga að einhverjir rekstraraðilar og íbúar á svæðinu kunna að telja að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða og við slíka málsmeðferð þarf því að leggja áherslu á vandaða stjórnsýslu. Fulltrúa Flokks fólksins finnst þetta verkefni þess utan ekki vera forgangsverkefni. Aðstæður í Kvosinni eru ekki slæmar. Þarna eru að mestu ferðamenn á ferð. Fæstir sem þarna fara um er fólk sem býr utan miðbæjar. Aðgengi fyrir utanaðkomandi að svæðinu er erfitt. Eins og sjá má í könnunum er það mat fjölmargra að miðbærinn sé að verða eitt göngugötuvirki og að virkinu er ekki auðvelt að komast fyrir alla.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð er fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að nýju deiliskipulagi fyrir Veðurstofureit:
Stefnt er að þarna rísi 250 íbúðir, jafnvel meira. Fækka á bílastæðum sérstaklega mikið á þessum reit, meira en í öðrum þéttingarreitum. Setja á bílastæðahús. Gert er ráð fyrir að þarna búi þeir sem vilja lifa bíllausum lífsstíl. Fulltrúa Flokks fólksins finnst með þessu að verið sé að útiloka mikilvæga valmöguleika. Blönduð byggð skal vera þarna t.d. stúdentaíbúðir og sambýli sem Flokki fólksins finnst jákvætt. Fulltrúi Flokks fólksins býst við að ábendingar verði á svipuðum nótum og komu frá íbúum Vogabyggðar, að erfitt sé að komast í og út úr hverfinu. Fulltrúi Flokks fólksins fagnar vissulega fjölbreytileikanum og öll viljum við vistvæn hverfi með ríkum líffræðilegum fjölbreytileika, græn svæðið og rými til að anda.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram umsókn Faxaflóahafna, dags. 17. maí 2024, um breytingu á deiliskipulagi Klettasvæðis vegna stækkunar á landfyllingu Sundahafnar. Í breytingunni sem lögð er til felst að deiliskipulagssvæðið er stækkað til norðvesturs þannig að það nái yfir lóð Veitna við Klettagarða 14 og yfir stækkun á landfyllingu Klettagarða í samræmi við heimildir í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040.
Sótt er um útvíkkun á deiliskipulagi fyrir landfyllingu við Klettagarða/Laugarnes. Sótt er um útvíkkun á deiliskipulagi fyrir landfyllingu við Klettagarða/Laugarnes. Að gera 4 hektara landfyllingu – fjörutíu þúsund fermetra- er út í hött að mati fulltrúa Flokks fólksins. Hér er valtað yfir lífríki við fjörur og í fjörum. Hvernig ætla skipulagsyfirvöld að jafna þetta? Með því að fjölga blómakerjum? Með landfyllingu er náttúruleg fjara eyðilögð. Það eru ekki margar fjörur eftir í borgarlandinu. Það segir sig sjálft að þetta gjörbreytir allri ásýnd á svæði sem áður var náttúruleg fjara. Mynd af landfyllingu við Klettagarða er sérlega óaðlaðandi og þar sést hvernig fara á með fjöru sem er náttúruleg.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: 10. Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga að hverfisskipulagi Hlíða, hverfi 3.1 Háteigshverfi, dags. 31. október 2023, ásamt almennri greinargerð og stefnu, dags. 31. október 2023, og skipulagsskilmálum, dags. 31. október 2023:
Um er að ræða gríðarlegt magn upplýsinga í gögnum sem fylgir málinu og ljóst er að búið er að ljá eyru og hlusta eftir hvað íbúum og hagaðilum finnst um skipulagshugmyndir. Ekki er þó gott að sjá í fljótu bragði hvar mögulegur pottur er brotinn í skipulaginu. Athugasemdir eru margar og fjölbreyttar. Flestar athugasemdir virðast þó í fljótu bragði varða mikla fækkun á bílastæðum. Vonandi hlustar meirihlutinn á það og gerir breytingar í samræmi við óskir og þarfir fólks. Ef margir eru ósáttir við eitthvað ákveðið atriði er skylda skipulagsyfirvalda að hlusta. Algengustu kvartanirnar í þessum málum öllum jafna eftir að farið var að þétta byggð svo mikið er að byggingarmagn sé of mikið, að gengið sé á græn svæði, að þrengsli séu mikil, að koma inn og úr hverfi erfið og skuggavarp sé of víða. Innviðir eru sprungnir og ef fjölga á í hverfinu að heitið geti þarf að byggja við skóla og aðra innviði. Það svæði sem hér um ræðir er býsna fjölbreytt og athugasemdir eftir því. Betra hefði verið ef skjali sem þessu væri skipt upp með skýrari hætti og athugasemdir settar í sér skjal svo auðveldara sé fyrir þá sem vilja kynna sér málið að stúdera það.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum : Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga að hverfisskipulagi Hlíða, hverfi 3.2 Hlíðarhverfi:
Það er eins með þetta og Hlíðar 3.1. Háteigshverfi, hér ægir saman gríðarlegu magni upplýsinga. Kjarni málsins er í raun ekki ávarpaður í þessari skýrslu sem eru athugasemdir sem flestir sendu inn og vörðuðu uppbyggingu á þessum svæðum og aðgengi. Stór hluti í skýrslunni fer í lýsingu á samráðsferlinu og ljóst er að áhersla skipulagsyfirvalda er að upplýsa almenning um að samráð sé gott og mikið. Samráð er þó ekki aðeins það að bjóða fólki að senda inn ábendingar sem síðan er svarað af skipulagsyfirvöldum. Alvöru samráð er að þegar margir senda inn sömu ábendingu þá sé hún tekin alvarlega og gerð sé gangskurk í að gera tilheyrandi breytingu á skipulaginu. Langflestar athugasemdir snúa að fækkun bílastæða og óttast fólk bílastæðaskort. Hér eru einnig ábendingar um að það vanti verslun og þjónustu. Við yfirferð eru margir að mótmæla stefnu meirihlutans að þétta byggð of mikið. Of mikil þétting leiðir til þrengsla og skuggavarps sem hefur neikvæð áhrif á líðan.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga að hverfisskipulagi Hlíða, hverfi 3.3 Öskjuhlíðarhverfi:
Um er að ræða hverfisskipulag sem er ný skipulagsáætlun fyrir gróin hverfi og kemur í stað eldri deiliskipulagsáætlana sem verða felldar úr gildi við samþykkt hverfisskipulags, en auglýstar voru hverfisskipulagsáætlanir fyrir borgarhluta 3 Hlíðar sem nær yfir þrjú hverfi Háteigshverfi (3.1), Hlíðar (3.2) og Öskjuhlíðarhverfi (3.3). Fulltrúi Flokks fólksins vill benda sérstaklega á umsögn Umhverfisstofnunar því hér er um að ræða svæði á náttúruminjaskrá. Þetta svæði er fjölsóttur útsýnisstaður og útivistarsvæði. Auk þess er þar að finna minjar um hæstu sjávarstöðu frá ísaldarlokum.1,2 eins og fram kemur í umsögn Umhverfisstofnunar. Þetta þarf að koma fram í tillögunni. Auk þess þarf að huga að vernd og endurheimt minjanna sem farin er að raskast vegna uppbyggingar og trjáræktar svo þær fái að njóta sín. Skerpa þarf nánar og betur á því svæði sem er á náttúruminjaskrá, að það sé betur afmarkað t.d. á uppdrætti, stefnukorti eða þemauppdráttum eins og Umhverfisstofnun bendir á. Þetta er ekki gert nægjanlega skýrt hjá skipulagsyfirvöldum.
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 40 liður fundargerðar dags. 10. janúar 2024. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 10. júní 2024.
Tillagan er felld. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. USK24010096
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Flokks fólksins lagði til í janúar á þessu ári að hægt verði að greiða samhliða fyrir bílastæði í bílastæðahúsi og hleðslu rafbíls. Kostur væri fyrir notendur ef hægt væri að gera þetta tvennt samtímis þegar bíll er sóttur í bílastæðahús. Það myndi spara umstang. Nú liggur fyrir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar þar sem kemur fram að þetta sé eiginlega ekki góð hugmynd en þó ekki útilokað. Ef þetta er ekki útilokað þá er sjálfsagt að skoða þetta nánar að mati fulltrúa Flokks fólksins. Fordæmi eru fyrir að hægt sé að borga samhliða fyrir borgun á bílahúsi og rafmagni. Bílastæðasjóður hefur mokað inn fjármagni í gegnum bílastæðagjöld og sjálfsagt er að nota hluta ágóðans til að útvíkka þjónustuna. Að selja raforku mun varla skaða ímynd Bílastæðasjóðs.
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um deiliskipulag við Arnarbakka sbr. 23. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 12. júní 2024 um að fara betur ofan í saumana á breytingum á deiliskipulagi við Arnarbakka og athugasemdir sem borist hafa í gáttina.
Tillögunni er vísað frá USK24060169
Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Tillögunni er vísað frá þar sem málið er í skýrum farvegi. Málið er í samráðsferli. Athugasemdir fólks eru ætíð teknar alvarlega og skoðaðar. Brugðist er við ef talin er málefnaleg ástæða til þess.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Tillaga Flokks fólksins óskaði eftir að farið verði betur ofan í saumana á breytingum á deiliskipulagi við Arnarbakka og að athugasemdir sem berast í gáttina verði skoðaðar. Flokkur fólksins hefur heyrt áhyggjuraddir fólks í Breiðholti sem lúta að þessum breytingum við Arnarbakka (Þar sem Breiðholtskjör var áður). Opið er fyrir athugasemdir i samráðsgátt til 19. júlí. https://skipulagsgatt.is/issues/2024/711 Tillögunni er vísað frá. Áhyggjur lúta að því hvort þétting byggðar sé hér of mikil ef horft er til aðgengismála. Einnig að gengið sé of freklega á græn svæði. Kvíði er einnig meðal fólks um rask á framkvæmdartíma. Þær gagnrýnisraddir heyrast að Breiðholt þurfi ekki fleiri blokkir. Af hverju er ekki tækifærið nýtt hér sem dæmi til þess að byggja skemmtilegar íbúðir og verslun? Áhyggjur eru af skuggavarpi ef byggð er blokk austan við sparkvöll Breiðholtsskóla og þar verði gengið of mikið á grænt svæði. Fjarlægja á um það bil 75 bílastæði sem fólki finnst ekkert vit í þar sem almenningssamgöngur eru ekki að nýtast sem skyldi í úthverfum.
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 29. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 12. júní 2024.
Vísað til meðferðar Strætó bs. USK24060170