Miklar breytingar gerast ekki með einu frumvarpi eða einni ákvörðun. Þær verða þegar mörg púsl raðast loks saman í eina heildarmynd. Þetta er einmitt að gerast um þessar mundir í málefnum barna og skóla.
Á haustþingi verða tekin fyrir stór og mikilvæg mál frá mennta- og barnamálaráðherra. Frumvarp til nýrra heildarlaga um barnavernd, þingsályktanir um farsæld barna og aðgerðir gegn fátækt barna, frumvarp til breytinga á lögum um framhaldsskóla, ný aðgerðaáætlun um menntastefnu og reglur um aðgang barna að samfélagsmiðlum.
Það er í forgangi að mæta ólíkum þörfum barna en ekki að aðlaga barnið að stofnunum. Ekkert barn á að vera skilið eftir.
Æskuárin eru stutt
Við þekkjum dæmin. Barn fer að missa úr skóla. Vanlíðan eykst. Fjölskyldan leitar hjálpar. Skólinn gerir sitt, félagsþjónustan sitt og heilbrigðiskerfið sitt en árangurinn lætur samt á sér standa.
Farsældarlögin voru frá upphafi hugsuð til að samhæfa þjónustu við börn. Upplýsingar um þarfir þess og framvindu í skóla fylgi barninu þannig að allir vinni saman.
Þingsályktun um Farsældina og frumvarp til nýrra barnaverndarlaga fylgjast að. Gildandi heildarlög um barnavernd eru frá árinu 2002. Nú á meðal annars að styrkja réttindi barna og samvinnu barnaverndar og heilbrigðisþjónustu. Ríkið tekur aukna ábyrgð á sérhæfðri þjónustu við börn með allra þyngstu stuðningsþarfirnar. Vernd barna í fóstri er jafnframt styrkt og eftirlit aukið.
Ný landsviðmið um skólasókn falla inn í sömu mynd.
Tíminn í lífi barns er allt annar en tími einstakra stofnana. Eitt ár á biðlista er langur tími á stuttri skólagöngu. Dæmi eru því miður um að börn hafi beðið svo lengi eftir nauðsynlegum stuðningi að þau eru nánast útskrifuð þegar hjálpin loksins býðst.
Skólinn
Önnur stór skref eru fram undan. Styrkja á útgáfu námsgagna og skólaþjónustu, endurskoða aðalnámskrá og viðmiðunarstundaskrár. Leggja á aukna áherslu á undirstöðufærni, til að mynda í lestri og raunvísindum.
Sveigjanlegri námslok verða í framhaldsskólum fyrir nemendur sem þurfa einstaklingsmiðaðra og hagnýtara nám. Skýra á betur stöðu starfsbrauta fyrir nemendur með fötlun.
Börn eru eins ólík og þau eru mörg. Skólinn verður að geta mætt þeim með það í huga.
Ábati fyrir börnin
Ábatinn af öllum þessum breytingum er mælikvarðinn sem skiptir máli.
Breytingarnar eiga að tryggja að hvert barn fái þjónustu við hæfi. Nauðsynleg þjónusta verði veitt fyrr, ábyrgðin skýrari og skólinn betur í stakk búinn til að mæta þörfum barna.
Barnæskan bíður ekki. Skólagangan bíður ekki. Allt það sem Flokkur fólksins er að gera í málefnum barna miðar að því að tekið sé utan um börn og fjölskyldur þeirra.
Pistill birtur í Morgunblaðinu 6. október 2026