Borgarráð 14. september 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 6. september 2023, sbr. afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs á verklýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 vegna Sundabrautar:

Sundabraut hefur verið sagan endalausa en nú er vonandi eitthvað að gerast. Gæta þarf að samráði í þessu risaverkefni og hafa samráðið eins mikið og þörf krefur. Það er sérkennilegt að Hafrannsóknastofnun sé ekki umsagnaraðili (ekki með á lista yfir umsagnaraðila) en þar eru rannsóknir á líffræði sjávar stundaðar, þar á meðal á göngum fiska upp í ár og læki. Nú ríður á að ljúka við hönnunarvinnu Sundabrautar sem fyrst. Dráttur á að ákvarða legu Sundabrautarinnar mun tefja aðra uppbyggingu. Svo þarf að árétta að ekki má skerða gæði strandarinnar og grunnsævis. Þess vegna þarf að byggja brýr en alls ekki landfyllingar. Mestu hagsmunir borgarinnar með tilkomu Sundabrautar eru góð tenging milli Vogahverfis og Grafarvogs. Engum blöðum er um það að fletta að gera skal brú frekar en göng til að bæði gangandi og hjólandi geti nýtt brúna. Brú, fallega hönnuð, á þessum stað getur verið glæsileg og gert aðkomu að Reykjavík virðulega. Tenging við Geldinganesið er mikilvæg enda klárlega framtíðarbyggingarsvæði.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að borgarráð samþykki hjálögð drög að viðauka við eigendasamkomulag frá 25. október 2013 vegna meðhöndlunar úrgangs í Álfsnesi sbr. erindi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu:

Stefnt er að því að hætta urðun í Álfsnesi og það á að slá af hugmynd um brennslustöð þar. Þessa ákvörðun þarf að skýra að mati fulltrúa Flokks fólksins. Ef nýta á varmaorku frá brennslustöð þá þarf sú stöð að vera nálægt byggð. Hvar ætti brennslustöðin annars að vera? Eigi að brenna öllu í Kölku má benda á að varmaorka frá Kölku nýtist verr því að þar er minni byggð en við Álfsnes.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram erindi Samkeppniseftirlitsins, dags. 1. september 2023, varðandi tilmæli vegna samkeppnisaðstæðna á flutningsmarkaði:

Í bréfi frá Samkeppniseftirliti er mælst til þess að ráðist verði í aðgerðir til þess að draga úr samkeppnishindrunum á flutningsmarkaði, skapa aðhald og efla með því samkeppni. Er það m.a. til þess fallið að hafa jákvæð áhrif á vöruverð. Borgin þarf að stuðla að því að gefa nýjum aðilum aðstöðu á hafnarsvæðinu og með því væri dregið úr samkeppnishindrunum á flutningsmarkaði. Virk samkeppni á flutningsmarkaði er mikilvæg og borgin þarf að leggja sitt af mörkum til að svo verði. Það er öllum ljóst að samráð er bannað og við verðum að koma í veg fyrir það með öllum ráðum.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að borgarráð samþykki að fylgja eftir vel heppnaðri og útfærðri stefnumörkun um haftengda upplifun með sambærilegri greiningu um tækifæri til útivistar og leikja á og við vötn á höfuðborgarsvæðinu:

Tillaga er lögð fram af meirihlutanum um að greina tækifæri til útivistar og leikja við vötn og sjó. Fram kemur í formála að „stefnumótun um haftengda upplifun hefur það að markmiði að auka lífsgæði borgarbúa með því að kynna og þróa fjölbreyttar leiðir til að nýta og njóta strandarinnar og hafsins, og gera sjóinn og ströndina aðgengilegri fyrir alla“. Því miður er það líklegt að talið verði nauðsynlegt að fara í landfyllingar til að þessi tækifæri skapist. Fulltrúi Flokks fólksins sér ekki nauðsyn þess. Allt er þetta spurning um stefnu og hvort ekki eigi að setja lífríki og náttúrulegar fjörur í fyrsta sæti enda orðnar fágætar í borgarlandinu. Fólk og lífríki er samtengt og á að skoðast í samhengi. Mikilvægast er til lengdar að halda í ósnortna náttúru. Fjörur á að friða.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 11. september 2023, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 6. september 2023 á tillögu að breytingu á leiguverðslíkani Félagsbústaða:

Verið er að breyta leiguverðslíkani Félagsbústaða því að núgildandi verðlíkan byggir á fasteignamati frá árinu 2017 og mismikil hækkun hefur verið á fasteignamati á milli borgarhluta. Flokki fólksins líst vel á að það verði þak á fasteignamati í einstökum hverfum til þess að grípa tilvik þar sem fasteignamat hækkar umfram meðaltal. Það er jákvætt að leiguverð sé sem jafnast óháð staðsetningu og aldri íbúðar og að breytingar á leiguverði verði ekki í stökkum. Breytingin mun hafa áhrif á 2.649 leigjendur, leiga hækkar hjá 1.538 leigjendum um fjárhæð á bilinu 0-36.000 kr. og alls lækka 1.111 leigjendur um sömu fjárhæðir. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áhyggjur af þeim 5,5% leigjenda þar sem leigan mun hækka um meira en 12.000 kr. á mánuði. Fjöldi leigjenda hefur kvartað undan stöðugum hækkunum á leiguverði undanfarið. Flokkur fólksins hvetur Félagsbústaði til að sýna sveigjanleika þar sem leigjendur eru í miklum erfiðleikum og jafnframt tilkynna leigjendum þessa breytingu sem fyrst svo fólk geti gert ráðstafanir. Flokkur fólksins mótmælir harðlega að vangreidd leiga sé send lóðbeint til lögfræðinga Motus. Leigjendur Félagsbústaða eru viðkvæmur hópur og margir eru efnalitlir og fátækt fólk.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 8. september 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að uppfæra fjárfestingaáætlun verkefnisins átak í teikningaskönnun:

Nauðsynlegt er að ljúka verkefninu. Það er hins vegar afar sérstakt hversu vanáætlað verkefnið hefur verið. Ekkert svið hefur tekið eins mikið fjármagn til sín og þjónustu- og nýsköpunarsvið. Allar beiðnir um meira fjármagn úr borgarsjóði eru samþykktar af meirihlutanum möglunarlaust og án allrar gagnrýni. Í skýringum kemur alltaf það sama fram, að reynt sé að finna hagkvæmustu lausnir við að útfæra upphaflega áskorun. Frá upphafi hefur verið afar erfitt að sjá að það sé reynt. Lausn eins og þessa er nú þegar búið að innleiða annars staðar. Það er einsdæmi að stærsta sveitarfélag landsins sé svo aftarlega á merinni í svo mikilvægri stafrænni lausn. Það er ómælt vesen að sækja um byggingarleyfi hjá borginni með öllum tilheyrandi fylgigögnum ef ekki er hægt að senda eða kalla fram gögn/teikningar rafrænt svo ekki sé minnst á rafrænt utanumhald. Fram kemur að ef ekki komi meira fjármagn þurfi að setja verkefnið á ís. Skynja má hótunartón í þessari beiðni. Flokkur fólksins vill minna á að um 20 milljarðar hafa farið til þjónustu- og nýsköpunarsviðs sl. 3-4 ár en fjöldi tilbúinna og innleiddra lausna eru ekki í neinu samræmi við þá upphæð.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 8. september 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja verkefnið Power BI – stjórnandinn:

Verkefnið „stjórnandinn“ (Power BI) er sagt liður í að einfalda kerfisrekstur og bæta gagnanotkun borgarinnar. Fulltrúi Flokks fólksins telur að þarna sé á ferðinni verkefni sem varla er brýnt einmitt núna og hlýtur það því að mega bíða þangað til betur árar í borgarfjármálum. Fulltrúinn hefur ítrekað í gegnum árin bent á að nauðsynlegt er að forgangsraða stafrænum verkefnum og þá setja fremst þau sem auðvelda umsóknarferli. Oft hafa verkefni sem snúa beint að borgarbúum verið látin sitja hakanum á meðan tíma og fé er eytt í alls kyns innri uppfærslur og búnaðarkaup hjá þjónustu- og nýsköpunarsviðinu sjálfu.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 8. september 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja verkefnið spálíkön velferðarsviðs:

Þjónustu- og nýsköpunarsvið óskar eftir að borgarráð heimili þjónustu- og nýsköpunarsviði að hefja verkefnið spálíkön velferðarsviðs. Spálíkönin eru vissulega skemmtileg og e.t.v. hjálpleg en hér er varla á ferðinni stafræn lausn sem þolir enga bið. Nær væri að setja fjármagn til að koma á fót lausnum sem létta borgarbúum að sækja um hina ýmsu þjónustu í borginni, t.d. milliflutning í leikskóla og fjölmargt fleira. Óskað er eftir 15 milljónum sem nota mætti í annað brýnna, t.d. að auka þjónustu við börn í vanlíðan. Meirihluti sem stendur með fjárvana borg í höndunum hlýtur að þurfa að forgangsraða verkefnum innan borgarinnar eftir mikilvægi.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar skóla- og frístundasviðs, dags. 1. september 2023, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um biðlista vegna leikskólaplássa og aðlögunar leikskólabarna, sbr. 36. lið fundargerðar borgarráðs frá 17. ágúst 2023.

Flokkur fólksins spurði um hversu margir foreldrar barna sem byrja eiga í leikskóla í ágúst og september hafi ekki fengið staðfesta dagsetningu þar sem barn þeirra hefur aðlögunarferlið. Einnig hversu margir foreldrar hafi ekki enn fengið staðfestingu um leikskólapláss. Í svari segir að í september voru 658 börn 12 mánaða og eldri á biðlistum um leikskólapláss í borgarrekna leikskóla. Þar af voru 98 börn 18 mánaða og eldri. Mörg þessara elstu barna hafa nýverið bæst á biðlistann. Þetta er ótrúlegur fjöldi barna sem bíður eftir plássi. Að baki einu barni er fjölskylda sem líður fyrir óvissu og óöryggi með hvort barn fái pláss til að foreldrar geti sinnt sínum störfum. Ömmur og afar og aðrir í fjölskyldunni eru að reyna að létta undir en ekki allir eiga fjölskyldu nærtæka. Það sem gerir þessi mál erfið er að sum þessara barna eru búin að fá vilyrði fyrir plássi þótt þau hafi ekki fengið vistun ennþá. Þetta er auðvitað afar sérkennilegt. Keðjuverkun er þannig að elstu börnin byrja fyrst og svo eru börn tekin inn eftir aldri eftir því sem aðlögun eldri barnanna lýkur og eftir því sem nýráðið starfsfólk hefur störf. Starfsmannaekla er síðan annað stórt vandamál sem enn hefur ekki náðst að leysa að heitið geti.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 8. september 2023, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar, sbr. 34. lið fundargerðar borgarráðs frá 13. apríl 2023.

Flokkur fólksins spurði um hversu alvarlegur fjárhagsvandi Reykjavíkurborgar væri. Er Reykjavíkurborg á leið í þrot? Í svari kemur fram að ekki er talin þörf á áhyggjum. Flokkur fólksins horfir á A-hlutann sem er borgarsjóður en úr þeim sjóði koma greiðslur m.a. fyrir alla velferðar-, skóla- og frístundaþjónustu. Flokkur fólksins vill að rætt sé um þessi mál með raunhæfum og sönnum hætti en ekki að bjartasta myndin sé dregin upp hverju sinni. Ef borgarstjórn vill ávinna sér traust skiptir öllu máli að koma heiðarlega fram þótt tíðindi séu slæm. Það er hlutverk fjármálasviðs að ráðleggja meirihlutanum t.d. að draga úr fjárfrekum verkefnum sem mega bíða og standa vörð um þjónustu við fólkið. Skuldabréfaútboð hefur ekki gengið sem skyldi. Það er mikill munur á líklegu vaxtastigi við skuldabréfaútgáfu annars vegar og lántöku hins vegar ef skuldabréfaútgáfan gengur ekki upp. Þarna eru það háar upphæðir á ferðinni að þær skipta máli. Jafnframt er ekki hægt að líta framhjá því að það virðist vera mat markaðarins á fjárhagsstöðu borgarinnar að markaðsaðilar eru farnir að verðleggja skuldabréfin svo hátt að það er orðið illmögulegt að taka þann valkost að mati borgaryfirvalda. Þetta hlýtur að vera áhyggjuefni borgaryfirvalda.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 8. september 2023, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins vegna skuldabréfaútboðs, sbr. 35. lið fundargerðar borgarráðs frá 17. ágúst 2023:

Fulltrúi Flokks fólksins vill velta upp vaxtamuninum á líklegu vaxtastigi við skuldabréfaútgáfu annars vegar og lántöku hins vegar ef skuldabréfaútgáfan gengur ekki upp. Þarna eru það háar upphæðir á ferðinni að þær skipta máli. Jafnframt verður ekki hjá því litið að það virðist vera mat markaðarins á fjárhagsstöðu borgarinnar að markaðsaðilar eru farnir að verðleggja skuldabréfin svo hátt að það er orðið illmögulegt að taka þann valkost að mati borgaryfirvalda. Þetta hlýtur að vera áhyggjuefni borgaryfirvalda.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 25. ágúst 2023. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. og 3. lið fundargerðarinnar:

Liður 2

Fjárhagsáætlun 2024: Fjárhagsstaða Strætó er afar slæm og þjónusta eftir því enda hefur þurft að skerða hana umtalsvert. Þau sveitarfélög sem standa að Strætó bs. þurfa að gera betur. Allt stefnir í að enn vanti fé til að ná jafnvægi í rekstri og styrkja þarf eigið fé fyrirtækisins, sem er tæplega 150 m.kr. í mínus. Nú er það staðfest að áratugur gæti verið í að borgarlína verði komin í fulla virkni og þess vegna blasir það við að hressa þarf rækilega upp á Strætó bs. í þeirri von að notendahópurinn stækki eitthvað. Allt of margir telja að Strætó geti engan veginn hentað sínum samgönguþörfum enda ferðir ekki nógu tíðar og leiðir takmarkaðar inn í hverfin. Fargjald er hátt og finnst fólki það augljóslega borga sig að reka frekar bíl.

Liður 3

Ferli ábendinga: Ábendingar sem eru í raun einnig hreinar kvartanir vegna slakrar þjónustu eru hlutfallslega miklar hjá Strætó og hafa verið árum saman. Þeim fer fjölgandi með hverju ári og auðvitað í samræmi við farþegafjölda. Strætó hefur ekki enn náð tökum á að nýta sína eigin þjónustustefnu sem virðist aðeins vera orð á blaði. Þessi mál þarf að taka föstum tökum.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 13. september 2023. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 8. lið fundargerðarinnar:

Þetta eru sömu niðurstöður og áður hafa komið fram. Óánægðastir eru þeir sem eiga erfitt með að komast á göngugöturnar vegna þess að þeir búa fjarri þeim, t.d. í úthverfum. Þeir sem búa fjarri hafa ekki aðgengi að þeim nema með einhverjum erfiðleikum. Þeir sem ekki geta notið göngugatna heldur er aldrað fólk og fólk sem ekki getur gengið í miðbæinn. Fylgni við önnur atriði sem könnuð voru eru ekki eins skýr. Til að bregðast við á því að skoða þarfir þessa fólks sem ekki notar göngugötur. Hér koma bílastæði utan við göngugötusvæðið fyrst upp í hugann. Núverandi bílastæðahús eru illa nýtt. Þau eru ekki aðlaðandi, en allar tillögur Flokks fólksins um að bæta þau hafa verið felldar. Það þarf að nýta þau mun betur, annað er fásinna. Strætókerfið er ekki boðlegt, margir hafa gefist upp á því og enn öðrum dettur ekki í hug að reyna að byrja að nota það. Skoða ætti hvort ekki megi gera bílastæði utan við göngugötusvæðin og þá á svæðum sem ekki er hægt að byggja á núna svo sem vegna flugvallarins eða annarra skipulagsmála. Slík bílastæði hindra ekki uppbyggingu í framtíðinni.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 10 mál. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 5. lið yfirlitsins:

Kvörtun íbúa vegna samþykktar borgarráðs um breytingu á bílastæðagjöldum. Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir þessa kvörtun sem segir að eigi að vera til hagsbóta fyrir íbúa í viðkomandi götum. Í þessu eru engar hagsbætur heldur er hér verið að leggja auka gjaldtöku á þá sem búa við ákveðnar götur og má segja að með þessu sé verið að mismuna fólki. Margir íbúar eiga ekki kost á að kaupa bílastæðakort vegna óbilgjarnra reglna um kortin eins og segir í kvörtuninni. Fólki er mismunað eftir því hvar það býr í Reykjavík. Þeir sem búa í miðbæ og nágrenni greiða bílastæðagjald fyrir bíl sinn og fæstir eiga einhver einkastæði við hús sín. Eldra fólk og fólk með hreyfihömlun hefur átt erfitt með þessar breytingar. Þessar breytingar koma niður á félagslega þættinum hjá sumum, tengslum og samskiptum við aðra eins og svo skýrlega kom fram í erindi Íbúasamtaka Miðborgar, dags. 11. júlí 2023, um breytingar á bílastæðagjöldum í miðbænum. Í bókun segir „hækkun á bílastæðagjöldum og lenging á gjaldskyldutíma er fjárhagslega íþyngjandi fyrir íbúa í hverfinu en ekki síður er það áhyggjuefni að þessi nýja gjaldtaka á kvöldin og á sunnudögum mun gera gestum íbúa erfitt fyrir varðandi heimsóknir”.

 

Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins um áhrif og afleiðingar myglu í húsnæði OR og hvernig tekið var á þeim málum:

Fyrirspurnir vegna áhrifa og afleiðinga raka og myglu í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur. Fulltrúi Flokks fólksins hefur nýlega lagt fram tillögu í borgarstjórn um að málefni þeirra sem hafa orðið illa úti vegna myglu og raka í húsnæði á vegum borgarinnar verði skoðuð og metið hvort greiða ætti einhvers konar skaðabætur, t.d. styrk vegna lækniskostnaðar. Fulltrúi Flokks fólksins er að þessu sinni með fyrirspurnir vegna áhrifa og afleiðinga myglu í húsnæði Orkuveitunnar. Bæjarháls 1, hús Orkuveitu Reykjavíkur, var opnað árið 2000. Á gólf var lagt viðarparket á raka gólfplötu eftir því sem fulltrúi Flokks fólksins kemst næst. Óskað er upplýsinga um hver tók ákvörðun um þessa aðgerð og bar á henni ábyrgð. Þegar ljóst var að verulegur raki og mygla væri í húsnæði Orkuveitunnar árin 2005/2006 var ákveðið að tilkynna málið ekki til Vinnueftirlits ríkisins. Hver tók þessa ákvörðun og hver/hverjir bera á henni ábyrgð? Óeðlilega mikil veikindi hafa verið hjá starfsmönnum frá þessu tímabili sem rekja mætti til ástands hússins. Hvað margir starfsmenn veiktust vegna raka, myglu og gró og hver voru afdrif þeirra? Hvað margir af þeim starfsmönnum sem unnu í húsinu á þessum tíma starfa þar ennþá? Hvernig voru prófanir/athuganir gerðar á Bæjarhálsi 1 á árunum 2013-2015 og hverjir framkvæmdu þær og hvað var skoðað fram til þess tíma að Efla verkfræðistofa hóf skoðun á húsnæðinu í ágúst/september 2015? Voru tekin sýni úr efnum, s.s. veggjum, parketi o.s.frv.? Óskað er upplýsinga um hvernig tekið hefur verið á málum af þessu tagi hjá Orkuveitu Reykjavíkur síðustu ár. Ákveðinn hópur fólks sem starfaði hjá Orkuveitu Reykjavíkur átti ekki afturkvæmt á vinnumarkað eftir alvarlegt heilsu- og fjárhagstjón vegna veikinda sem staðfest var af læknum að rekja mátti til myglu og raka í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur. Hafa þessi einstaklingar fengið hlustun og skilning yfirmanna sinna? Hafa þeir fengið einhverjar bætur? Hvernig hyggst Orkuveitu Reykjavíkur bregðast við frekari kröfum sem fram kunna að koma vegna mála af þessu tagi? Hvað margir hafa óskað eftir að fá skaðabætur frá Orkuveitu Reykjavíkur vegna veikinda sem rekja má til myglu og raka í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur sl. 10 ár?

Vísað til umsagnar Orkuveitu Reykjavíkur. MSS23090081

 

Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um öryggismál í leik- og grunnskólum:

Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að borgarráð beini því til skóla- og frístundasviðs að skoða hvernig hægt sé að loka skólabyggingum fyrir öllum þeim sem ekki eiga þangað erindi eða eru í boði skólanna sjálfra. Þeir einu sem eiga erindi í skóla eru starfsfólk, börnin og foreldrar. Aðrir sem eiga erindi s.s. sem á fundi hafa fengið um það boð. Í raun eru dyr leik- og grunnskóla opnar öllum eins og fyrirkomulagið er dag. Hver sem er getur í raun gengið inn óáreittur. Vísað er í að niðurstöður skólaþings sem fram fór í Austurbæjarskóla á síðasta skólamisseri sem sýna að nemendur í Austurbæjarskóla telja aðgengi inn í skólann of auðvelt. Fulltrúi Flokks fólksins hefur lagt til að komið verði upp öryggismyndavélum þar sem börn koma saman til náms og starfa. Sumir skólar eru komnir með slíkan búnað. Öryggis- og eftirlitsmyndavélar eru vissulega engin hindrun en hafa fælingarmátt og skólayfirvöld geta brugðist fyrr við ef óboðinn gestur er mættur á svæðið. Umræða um öryggisverði í grunnskólum hefur vissulega komið til tals og vill fulltrúi Flokks fólksins sjá þá umræðu fá meiri dýpt og skoðun. Það skiptir miklu máli að starfsfólk okkar sé öruggt í því umhverfi og fylgi þeim viðmiðum sem menntamálaráðuneytið og sveitarfélagið boðar.

Vísað til umsagnar skóla- og frístundasviðs. MSS23090082