Borgarráð 23. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 16. nóvember 2023, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 15. nóvember 2023 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Saltvíkur á Kjalarnesi:

Fulltrúi Flokks fólksins vill leggja áherslu á bókun íbúaráðsins sem er afar afgerandi um tillögu að breyttu deiliskipulagi Kjalarnes, Saltvík. Bókunin var lögð fram á fundi íbúaráðs Kjalarness þann 11. maí 2023. Í henni vill íbúaráðið koma á framfæri að ítrekað eru gerðar breytingar á deiliskipulagi án þess að aðalskipulag sé uppfært. Þetta þykir miður. Íbúar eru uggandi yfir þróun skipulagsmála á Kjalarnesi og hafa áhyggjur af deiliskipulagsbreytingum sem varða landbúnað og iðnað á svæðinu. Aðrar athugasemdir snúa að því að gerðar séu deiliskipulagsbreytingar án uppfærslu í aðalskipulagi; að áhyggjur af deiliskipulagsbreytingum er varða landbúnað og iðnað á svæðinu og loks að fornleifar séu ekki skráðar. Fulltrúi Flokks fólksins treystir því að unnið verði vel úr þessum athugasemdum í samstarfi við íbúana.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 20. nóvember 2023, varðandi skýrslu starfshóps umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um fyrirkomulag eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælum:

Það er miður að skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins hafi ekki verið unnin í samvinnu við Reykjavíkurborg eða sveitarfélögin í landinu þar sem verið er að ríkisvæða starfsemi borgarinnar. Verið er að fjalla um mikilvæga þætti sem snúa að lífsgæðum Reykvíkinga, m.a. hollustuháttum og öryggismálum á sundstöðum og leikskólum. Áður en farið er í kostnaðarsamar breytingar þarf að liggja fyrir að ríkið greiði breytingakostnað í tengslum við starfsmannamál og það komi fram nákvæm útfærsla á þeirri þjónustu sem ríkisstofnanirnar sem ætlað er að taka við hlutverki Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur munu veita. Verður t.d. Matvælastofnun með starfsstöð í Reykjavík? En stofnunin er með höfuðstöðvar á Selfossi og útibú í Hafnarfirði. Mun Reykjavíkurborg hafa aðkomu að málum sem snúa að veitingastöðum, málum sem snúa að myglu í skólum, hávaða frá veitingahúsum, loftgæðum eða lélegs íbúðarhúsnæðis, o.fl.? Enga útfærslu er að finna eða tímaás breytinganna. Það veikir núverandi eftirlit í störfum sínum þegar skipulag starfseminnar er sett í óvissu. Flokkur fólksins fer fram á nánari útfærslu á þeirri þjónustu sem Umhverfisstofnun og Matvælastofnun er ætlað að veita í borginni og tímaás breytinganna og nánari upplýsingar frá ráðherra áður en hægt er að taka afstöðu til þeirra skipulagsbreytinga sem ráðherra boðar.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að borgarráð samþykki að endurskoða rekstrarfyrirkomulag íþróttahúsa í eigu Reykjavíkurborgar og fela menningar- og íþróttasviði og skóla- og frístundasviði í samstarfi við fjármála- og áhættustýringarsvið að útfæra tillögur um framtíðarsýn, verkaskiptingu og gjaldskrá svo rekstur þeirra standi undir sér.

Tillaga um að endurskoða rekstrarfyrirkomulag íþróttahúsa í eigu Reykjavíkurborgar er án efa þörf en að mörgu er að hyggja. Huga þarf að framtíðarsýn ekki síst í ljósi tilkomu Þjóðarhallar. Flokkur fólksins hefur fjallað um mikilvægan flöt á þessu máli sem er hvernig afnotum af íþróttahúsum er útdeilt og hvort gætt sé jafnræðis í þeim efnum. Skoða þarf og bera saman fjármögnunarsamninga íþróttahúsa borgarinnar og draga fram greiningu á aðstöðu og aðstöðumun íþróttafélaga í íþróttahúsum borgarinnar. Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir að fá samanburð á fjármögnunarsamningum íþróttahúsa. Þetta er ekki síst mikilvægt í Laugardalnum þar sem aðstöðumunur hefur verið ríkjandi hjá félögum sem nota Laugardalshöllina, félögum eins og Ármanni og Þrótti, ÍR, Val, KR og Fjölni og fleiri. Með endurskoðun eins og þessari er hægt að skoða hvernig aðgengi félaganna er að íþróttahúsum borgarinnar. Hver sér um að úthluta tíma/dögum til íþróttafélaganna og eftir hvaða reglum er farið? Hvernig er t.d. gætt að jafnræði milli félaganna við úthlutun tíma? Þetta þarf að skoða í öllum íþróttahúsum.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Í samræmi við samþykkt borgarráðs 9. nóvember 2023 var leitað umsagnar KFUM og KFUK og Listasafns Reykjavíkur um hvort taka eigi minnismerki um sr. Friðrik Friðriksson, sem er á horni Amtmannsstígs og Lækjargötu, af stalli í ljósi ásakana sem fram hafa komið um að hann hafi beitt drengi kynferðislegri áreitni eða ofbeldi. Einnig er lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um að stytta af séra Friðriki Friðrikssyni verði fjarlægð, sbr. 6. lið fundargerðar borgarráðs frá 2. nóvember 2023:

Hinn 3. nóvember sl. lagði Flokkur fólksins það til að borgarráð samþykkti að láta fjarlægja styttu af sr. Friðriki Friðrikssyni (1868-1961) presti og æskulýðsleiðtoga af þeim stað þar sem hún nú stendur. Umfjöllun um meint kynferðisbrot séra Friðriks í nýrri bók Guðmundar Magnússonar sagnfræðings um ævi og störf prestsins sem stofnaði Val, Hauka og KFUM á Íslandi gerir það að verkum að fulltrúi Flokks fólksins telur að fjarlægja beri styttuna úr augsýn almennings. Nú hefur borgarráð samþykkt að verkið verði tekið niður og hefur tillaga Flokks fólksins þar með verið samþykkt. Fulltrúi Flokks fólksins fagnar þessari niðurstöðu. Fundur var haldinn í borgarráði með forsvarsaðila KFUM og KFUK sem skilað hafa umsögnum. Í umsögn segir m.a. „þegar styttur senda önnur skilaboð út í samfélagið en þeim var upphaflega ætlað þá er eðlilegt að borgaryfirvöld skoði að gera breytingar.“

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 20. nóvember 2023, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 15. nóvember 2023 á hækkun grunnfjárhæða fjárhagsaðstoðar til framfærslu:

Fulltrúi Flokks fólksins vill benda á nokkur atriði í umræddri tillögu. Lagt er til að hækka grunnfjárhæðir fjárhagsaðstoðar til framfærslu um 4,9% um næstu áramót í samræmi við forsendur fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar. Vert er að taka fram að vegin meðalhækkun launa ríkisstarfsmanna á yfirstandandi ári er 7,3%. Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 6,75% samkvæmt kjarasamningum, þó ekki minna en um 35.000 kr. Auk þess mældist vísitala neysluverðs 7,9% síðastliðinn október og hefur hækkað um 7,9% síðustu tólf mánuði, sbr. nýjustu tölur Hagstofunnar. Eðli málsins samkvæmt rýrnar fjárhagsaðstoðin þar sem hækkunin heldur ekki í við laun og verðlag. Þetta telur fulltrúi Flokks fólksins að þurfi að taka til greina þegar hækkun fjárhagsaðstoðar er ákvörðuð.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagðar fram fundargerðir íbúaráðs Laugardals frá 9. október og 13. nóvember 2023. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 4. lið fundargerðarinnar frá 13. nóvember:

Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir tillögu íbúaráðs Laugardals varðandi Sundabrautarverkefni. Laugardalurinn er eitt tveggja hverfa sem kemur til með að verða fyrir hve mestum áhrifum af því stóra verkefni sem fyrirhuguð áform um byggingu Sundabrautar eru. Íbúar hverfanna sem verða fyrir mestum áhrifum eru eðlilega að hugsa um hvernig þetta stóra verkefni muni þróast og að samgönguæðin sem Sundabraut er sé ekki á kostnað íbúanna. „Umhverfis og loftgæði ásamt umferðaröryggi eru mikilvægir þættir lífsgæða íbúa hverfisins og gæta þarf að því að aukin umferð stuðli ekki að neikvæðri þróun í þeim efnum. Sérstaklega þarf að gæta að umferð nálægt skólum hverfisins“ eins og segir í bókun íbúaráðsins. Flokkur fólksins hvetur til virks samráðs og samtals við borgarbúa á sem víðustum grunni.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 22. nóvember 2023. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. lið fundargerðarinnar:

Fram kemur í gögnum að á brúnni verða tvær akreinar fyrir almenningssamgöngur, ein í hvora átt, með tvöfaldan hjólastíg vestan megin og göngustíg austan megin. Þetta eru mistök. Eðlilegast er að göngustígurinn sé vestast, síðan strætó og hjólastígur austast. Rökin eru útsýni og upplifun sérstaklega í tengslum við kvöldsólarlag. Svo er að sjá sem Landssamband hjólreiðamanna telji líka hentugt að hjólastígurinn sé austan megin. Fulltrúi Flokks fólksins lagði fram í síðustu viku ábendingu sem barst honum sem þar sem færð eru rök fyrir því að betur færi á að göngustígur sé á vesturhluta brúarinnar og hjólastígurinn austan megin á brúnni. Eins og hönnun Fossvogsbrúar hefur verið kynnt myndi sólin fara að skína á vesturhlið brúarinnar milli kl. 13:00 og 14:00. Þá myndast skuggar frá handriðum inn á brúnna. Göngusvæði austan megin „króast“ af og skerðist þá útsýnisupplifun þeirra sem yfir brúna ganga. Í stuttu máli er upplifunin sterkari ef gönguleiðin er vestanmegin brúarinnar og hjólaleiðin austanmegin. Davíð Þorláksson framkvæmdastjóri Betri samgangna segir ekki koma til greina að breyta hönnuninni og að hönnunin sé algerlega úthugsuð. Það getur varla staðist og miður að fara eigi í svo fjárfrekt verkefni með eins áberandi galla og hér um ræðir.

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu um að gerðar verði breytingar á bókhaldslyklum fjármálaskrifstofu til að auka gegnsæi og skýrleika í bókhaldi borgarinnar:

Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að gerðar verði breytingar á bókhaldslyklum og þeim fjölgað með það að markmiði að gera bókhald borgarinnar gagnsærra. Eins og staðan er núna virðist það vera hálfgert kraðak, það ægir of mörgu saman og erfitt að draga nokkuð þar út með nákvæmni. Á einn og sama lykil er hægt að setja of margt og sumar tölur eru ekki sundurliðaðar þótt þær tilheyri ólíkum verkþáttum. Sem dæmi ef óskað er eftir upplýsingum um ráðgjafakaup þá er það ekki hægt því að upphæðin sem ráðgjöf kostaði er samofin kaupum á annarri þjónustu óháð tegund. Taka má sem dæmi lykilinn „verkfræðingar“ og undir hann ægir öllu saman sem mögulega hefur að gera með verkfræðinga. Eins og staðan er núna er því mjög auðvelt að fela kaup og ástæður fyrir þeim. MSS23110140

Greinargerð

Ráðgjöf er veitt af sérfræðingum og bókuð á eftirtalda gjaldalykla í bókhaldi borgarinnar. Á þessa lykla eru öll þjónusta viðkomandi sérfræðinga bókuð óháð því hvort um ráðgjöf er að ræða eða aðra þjónustu. Ráðgjöf er því aðeins lítill hluti af kostnaðinum á þessum lyklum og er ekki aðgreind sérstaklega. Dæmi eru um að um 40 þúsund gjaldfærslur eru á gjaldlykli og kostnaður kannski á 14 milljarða. Hvernig er það möguleiki að kalla fram einhver ákveðin þjónustukaup þegar þessu er svona háttað? Allur gangur er á hvaða bókunartextar fylgja sem eiga að tilgreina eðli útgjaldanna. Oft stendur aðeins vinna skv. tímaskýrslu eða vinna samkvæmt vinnuskjali eða aðeins verktakavinna. Gögnin eru mjög ónákvæmt. Borgarfulltrúi Flokks fólksins spurði um ráðgjafakaup hjá borginni í ákveðinn tíma en ekki hefur reynst hægt að lesa úr gjalda lyklunum þann kostnað með fullnægjandi hætti.

Frestað.

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um hversu mörgum af þeim 2.565 byggingarhæfu lóðum sem eru til samkvæmt kortasjá borgarinnar hefur þegar verið úthlutað og komið í hendur verktaka?

Hversu mörgum af þeim 2.565 byggingarhæfu lóðum sem eru til samkvæmt kortasjá borgarinnar hefur þegar verið úthlutað og komið í hendur verktaka? Hversu margar lóðir bíða enn útboðs? Lóð telst byggingarhæf þegar tenging við vatn og rafmagn er komin á. Þegar lóð hefur verið úthlutað er hægt að hefja framkvæmdir og þá er hraði uppbyggingarinnar í höndum lóðarhafa. Einnig er spurt hvort lóðarhöfum/verktökum séu sett einhver skilyrði um hvenær uppbyggingu skuli lokið á lóðinni.

Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.