Borgarráð 27. júlí 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að borgarráð staðfesti hjálögð erindisbréf viðræðuhóps um uppbyggingu hjúkrunarheimila í borginni, dags. 25. júlí 2023, og veiti hópnum þar með heimild til viðræðnanna:

Fulltrúa Flokks fólksins líst vel á stofnun viðræðuhóps um uppbyggingu hjúkrunarheimila í borginni því það er ljóst að það þarf að fjölga hjúkrunarrýmum á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt nýlegri greiningu á velferðarsviði um raunþörf fyrir uppbyggingu hjúkrunarrýma á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2038. Í þeirri greiningu er gert ráð fyrir að raunþörfin sé 717 rými. Samkvæmt fyrirliggjandi áætlunum um uppbyggingu hjúkrunarrýma er þörfinni ekki mætt á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt greiningu velferðarsviðs er þörf á 3-4 hjúkrunarheimilum á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum, til viðbótar við fyrirliggjandi áætlanir. Það er ekki eingöngu skortur á hjúkrunarheimilum heldur er víða pottur brotinn á þeim heimilum sem nú þegar eru í rekstri. Á allt of mörgum heimilum þurfa vistmenn að deila herbergi. Flokkur fólksins telur mikilvægt að framtíðar hjúkrunarheimili uppfylli skilyrði um mannsæmandi búsetu og íbúar fái sérbýli.

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 13 mál. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 3. lið yfirlitsins: 

Bréf frá íþróttafélaginu Leikni, dags. 17. júlí 2023, um umsókn um stöðu hverfafélags Fulltrúi Flokks fólksins styður umsókn Leiknis um að fá stöðu sem hverfisfélag. Leiknir er lítið félag sem berst í bökkum í hverfi sem er mannmargt og þar sem býr einn mesti fjölbreytileiki mannlífsins í borginni. Í þessu hverfi eru innflytjendur hlutfallslega flestir og í þessu hverfi var frístundakortið lengst af minnst nýtt og er jafnvel enn. Leiknir er að takast á við áskoranir umfram önnur félög vegna þess að í hverfinu er fátækt mest í borginni. Leiknir þarf meiri stuðning. Stuðningur borgarinnar beinist að mestu leyti að frístundamiðstöðinni sem er vel mönnuð og það er vissulega hið besta mál. Ef Leiknir á að geta þróast og geta byggt upp sterkara íþróttasamfélag þá þarf að hlúa að því. Leiknir er nú með körfubolta, blak og badminton. Aðeins fleiri nýta sér frístundakortið en Leiknir þarf að vera með lág iðkendagjöld því margir foreldrar hafa ekki efni á að greiða mismuninn. Leiknir er í augum margra einskonar olnbogabarn borgarinnar og er það miður. Fulltrúi Flokks fólksins skorar á borgaryfirvöld að veita Leikni skilgreiningu sem hverfisfélag.

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 25. júlí 2023:

Fulltrúi Flokks fólksins bókaði í borgarráði 6. júní síðastliðinn undir þessu máli að skóla- og frístundasvið ætti að heyra í foreldrum og taka tillit til óska þeirra. Eftir því hefur greinilega verið farið og ber að fagna því. Í ljósi ábendinga frá foreldrum er verið að leggja til breytingu á tilraunaverkefninu um dvöl barna á frístundaheimili í ágúst frá sumarlokun leikskóla fram að skólasetningu grunnskóla fyrir börn sem eru að ljúka leikskóla og hefja grunnskólagöngu sem samþykkt var í borgarráði 6. júní síðastliðinn. Fulltrúi Flokks fólksins fagnar því að verið sé að taka tillit til ábendinga foreldra um að ekki sé eingöngu miðað við ákveðna leikskóla heldur að bjóða öllum börnum sem eru að hefja nám í 1. bekk í Rimaskóla, Breiðholtsskóla og Norðlingaskóla að taka þátt í tilraunaverkefninu.

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um fjölgun úrræða sambærileg Klettaskóla:

Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum um það hvort skóla- og frístundasvið sé að vinna í að útvega fleiri úrræði sem eru sambærileg þeim sem Klettaskóli býður. Brúarskóli og Klettaskóli eru báðir sprungnir og er biðlisti í báða. Hópur barna sem vegna sérstöðu sinnar myndu njóta verulega góðs af að sækja nám í þessum skólum eru látin stunda nám í almennum bekkjardeildum þar sem þau upplifa oft vanmátt og vanlíðan enda eru þau  ekki að stunda nám með jafningjum. Fulltrúi Flokks fólksins óskar því eftir upplýsingum um hver staðan sé á næsta skólaári.  Heimaskólar hafa ekki mörg úrræði á sinni könnu til að mæta þörfum barna með sérþarfir og hafa því takmarkaða burði til að þjónusta þau. Hér er átt við tækifæri til að stunda nám í smærri, fámennari hópum þar sem börnin fá þjónustu við hæfi. Ef svigrúm væri fyrir þetta þá myndu biðlistar í sérskóla styttast en þess í stað lengjast þeir. Foreldrar barna með frávik eða fötlun af einhverju tagi sem ekki njóta sín í almennum bekk hafa ítrekað sagt að „skóli án aðgreiningar“ standi ekki undir nafni. Mæta þarf þörfum allra barna í skólakerfinu en þessi hópur barna á erfitt með að stunda nám í stórum bekkjardeildum.

Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs.

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um stöðu biðlista í leikskólum:

Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hver staðan sé á biðlista eftir leikskólaplássi i Reykjavík. Eins og löngum er þekkt er sár skortur á leikskólaplássum en í vor biðu 911 börn á biðlista samkvæmt talningu, á sama tíma á síðasta ári biðu 800 börn. Núna er meðalaldur barna á biðlista 23 mánuðir, eftir plássi í borgarreknu skólana en var lengi 20 mánuðir. MSS23070100

Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs.

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um heimgreiðslur:

Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum um hvort fyrirhugað sé að bjóða upp á heimgreiðslur eða styrki til foreldra sem nýtt geta sér slíkt úrræði. Úrræðið yrði sem liður í að létta á og stytta biðlista. Nokkur sveitarfélög hafa tekið upp þennan valkost og hefur hann fallið vel í kramið hjá foreldrum. MSS23070101

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um fjölda dagforeldra:

Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um fjölda dagforeldra sem hefja munu störf eftir sumarfrí og hver er aukning/fækkun frá í fyrra. Fulltrúi Flokks fólksins nefndi fyrir um þremur árum að meirihluti borgarstjórnar væri að ganga að dagforeldrakerfinu dauðu. Þá hélt meirihlutinn að dagar dagforeldra væru liðnir og að Brúum bilið væri handan við hornið. Sú varð ekki raunin. Dagforeldrum hefur fækkað úr 204 niður í 86 á tæpum áratug. Árið 2014 voru 700 börn hjá dagforeldrum en þau voru 371 í fyrra. Hvernig verður staðan haustið 2023? MSS23070102

Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs.

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um hvort fjölga eigi sálfræðingum skóla í ljósi langs biðlista:

Nú bíða 2515 börn eftir fagfólki skólaþjónustu, langflest eftir sálfræðingi. Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hvort eigi að fjölga stöðugildum sálfræðinga og talmeinafræðinga á komandi hausti og hvað áætlanir liggja fyrir um hvernig taka skuli  á þessum sí stækkandi biðlista?  Ef fram heldur sem horfir  munu sífellt fleiri foreldrar grípa til þess ráðs að tilkynna sig og barn sitt til Barnaverndar. Með því að tilkynna mál til Barnaverndar geta tilkynnendur verið öruggir um að mál þeirra fái skoðun. Samkvæmt lögum ber Barnavernd að skoða málið innan ákveðins tímafrests og athuga hvort ástæða sé til þess að það fari í svokallaða könnun. Þetta er vissulega fýsilegri kostur en að bíða endalaust eftir að barnið komist til fagfólks skólaþjónustu. MSS23070103

Vísað til meðferðar velferðarráðs.