Bókun Flokks fólksins við tillögu fjölmenningarráðs um að kynna aðild að frístundarkortinu á fleiri tungumál
Borgarfulltrúi Flokks fólksins finnst mikilvægt að bíða með allar þýðingar á frístundarkortinu þar til afgreiðsla tillögu um rýmkun reglnanna liggur fyrir. Breyta þarf reglum um frístundarkortið. Þær eru of strangar og því mikilvægt að rýmka þær til að fleiri börn geti nýtt sér kortið og þá ekki síst börn innflytjenda. Í sumum hverfum er nýting rétt um 64% og er lang minnst í Fella- og Hólahverfi. Varla er það ásættanlegt. Það er. t.d engin sanngirni í að binda notkun kortsins við félög og samtök sem eru einungis í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu svo fremi sem viðkomandi barn á lögheimili í Reykjavik. Það er líka óraunhæft að skilyrða kortið við 10 vikna námskeið hið minnsta. Mörg börn treysta sér ekki til að skuldbinda sig í svo langan tíma en myndu gjarnan taka þátt í styttri námskeiðum. Eins er fráleitt að setja sem kröfu að kennarinn eða leiðbeinandinn þurfi að vera með menntun í því sem er kennt á námskeiðinu svo fremi sem hann hafi alla sína pappíra í lagi og sé eldri en 18 ára. Húsnæði þar sem námskeið fer fram þarf að vera með rekstrarleyfi er að sama skapi óþarfa skilyrði.
Bókun Flokks fólksins við tillögu fjölmenningarráðs um tilraunaverkefni sem snýr að rafrænni upplýsingagjöf fyrir innflytjendur með vefspjalli
Rafræna þáttinn þarf að styrkja en hafa verður einnig í huga að sumir nota einfaldlega ekki netið. Rafræn áhersla er orðin svo í rík í vitund margra að hætta er á að gleyma þeim sem nota sjaldan eða aldrei netið og eru jafnvel einungis með heimasíma og póstkassa. Borgarfulltrúa Flokks fólksins leikur forvitni á að vita hvort einhverjar upplýsingar eru til um algengi tölvu- og netnotkunar íbúa af erlendum uppruna? Hvernig okkur gengur að koma upplýsingum til fólks ætti að vera spurning sem við spyrjum okkur daglega. Mikilvægt er að hafa fjölbreyttar leiðir í boði til að miðla upplýsingum til allra borgarbúa og meðtaka upplýsingar eftir atvikum. Þegar Alþjóðahús var starfrækt var það einmitt eitt af hlutverkum þess að halda úti fræðslu- og upplýsingadeild og aðstoða fólk hvað varðar íslenskt samfélag. Fyrir suma er skilvirkast að geta mætt á ákveðinn stað og fá tækifæri til að ræða við starfsmann í eigin persónu eins og var hægt þegar Alþjóðhús var starfrækt. Vel kann að vera að skoða ætti að endurvekja Alþjóðahús?
Bókun Flokks fólksins við tillögu fjölmenningarráðs um að átak fari af stað til að kynna og styðja við starfsmenn borgarinnar sem eru af erlendum uppruna
Það er gagnkvæmur hagur að allt starfsfólk af erlendum uppruna njóti menntunar sinnar og hæfni til fulls til að gagnkvæm aðlögun getur átt sér stað og styður því borgarfulltrúi Flokks fólksins þessa tillögu heilshugar. Að fá menntun sína metna og viðurkennda er mikið réttindamál. Þessi tillaga leiðir hugann að íslenskunámi í boði í borginni. Tungumálið er oft talið vera lykillinn að fullri þátttöku í samfélaginu og til að komast dýpra inn í menningu og mannlíf. Það er á ábyrgð stjórnvalda þar á meðal borgarinnar að sjá til þess að nægt framboð sé af íslenskunámskeiðum á öllum stigum. Þannig hefur það ekki alltaf verið þótt oftast hafi framboð verið viðunandi hjá þeim aðilum sem halda námskeið. Um tíma komust færri að en vildu og námskeiðsframboð var einsleit t.d. vantaði á einum tímapunkti námskeið fyrir þá sem voru komnir lengra. Borgin gæti komið sterkar inn hvað varðar að bjóða upp á íslenskunámskeið. Störf á Íslandi gera mismikla kröfu til íslenskukunnáttu. Það eru sum störf sér í lagi þau sem snúa beint að þjónustu við fólk sem gera heilmikla kröfu til þess að starfsmaður skilji og tali íslensku. Stjórnvöld, borgin þarf því að sjá sóma sinn í að sjá til þess að nægt framboð sé af námskeiðum í íslensku á öllum tímum.
Bókun Flokks fólksins við tillögu fjölmenningarráðs um átak gegn fordómum og hatursorðræðu
Þetta er virkilega þörf tillaga, málefni sem má aldrei gleyma að tala um. Spurning er um útfærslu sem getur verið með margskonar hætti og þarf að koma inn á sem flest svið samfélagsins. Langflestir eru sammála um að vilja eyða hatursorðræðu og fordómum úr samfélaginu. Vissulega hefur árangur náðst en betur má ef duga skal. Hvert tilfelli er einu of mikið. Hatursorðræða og fordómar birtast nú hvað helst með rafrænum leiðum á síðum undir fölskum prófílum. Einhverjir taka þátt og dreifa og þannig berst hatur og fordómar hratt út. Það sem gerir rafræna hatursorðræðu erfiðari er að ekki sé vitað hver stendur á bak við hana. Borgarfulltrúi Flokks fólksins hefur áhyggjur af börnunum í þessu sambandi sem sjá og heyra hatursumræðu á netinu. Fullorðnir, foreldrarnir ekki síst þeirra fyrirmyndir. Orðum fylgir ábyrgð. Við þurfum öll að hjálpast að til að stuðla að jafnrétti, virðingu, mannréttindum og fjölbreytileika. Eitt af meginmarkmiðum ætti því að vera að stuðla að vitundarvakningu um hatursáróður og hatursorðræðu á netinu til að vara og vernda börn og ungmenni. Við þurfum að kenna þeim mikilvægi miðlalæsis og styðja þau í að verja mannréttindi á netinu og utan þess og auka almenna vitund gegn hatursáróðri á netinu.