Forsætisnefnd 19. janúar 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram að nýju bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 3. janúar 2024, varðandi drög að verklagsreglum um meðferð fyrirspurna og tillagna í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum, sbr. 5. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 5. janúar 2024:

Flokkur fólksins var með athugasemdir við tillöguna sem sneru að 3. gr. þar sem fram kom að ekki mætti hafa lengur formála að fyrirspurnum. Flokki fólksins finnst það ómögulegt enda er stundum nauðsynlegt að hafa nokkur orð um af hverju verið er að leggja fram ákveðna fyrirspurn. Mikilvægt er að hafa sveigjanleika en ekki njörva niður hvert einasta atriði. Viðbrögð meirihlutans við þessari athugasemd Flokks fólksins eru að markmiðið sé að einfalda meðferð tillagna og fyrirspurna. Með því að loka fyrir möguleika á stuttum útskýringum með fyrirspurnum eða tillögum er ekki verið að einfalda neitt. Rök meirihlutans eru veikburða, t.d. þau sem segir „Skýrari fyrirspurnir draga úr töfum við afgreiðslu“. Varla er hægt að trúa því að þótt leyfður sé stuttur formáli í fyrirspurn, ein setningu eða tvær, kalli það á miklar tafir á afgreiðslu hennar