Mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð 14. mars 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að beina því til borgarráðs að auka fjárhagslegan stuðning til starfsemi Bjarkahlíðar.

Bjarkarhlíð hefur sannað gildi sitt en þangað hefur mikill fjöldi af þolendum ofbeldis af öllu tagi lagt leið sína og fengið dýrmæta aðstoð. Öll þjónusta er undir sama þaki og auðveldar það mörgum fyrstu skrefin sem mörgum finnst erfitt að taka í leit að aðstoð. Fyrir þolendur eineltis er fátt eins erfitt eins og að vera í lausu lofti með ofbeldismál, fá e.t.v. enga svörun eða málalyktir og heldur enga hlustun eða skilning. Með hliðsjón af fjárhagsstöðu Bjarkarhlíðar telur Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð einsýnt að Reykjavíkurborg þurfi að leggja meira af mörkum til Bjarkarhlíðar til þess að tryggja áframhaldandi kröftugan rekstur starfseminnar. Ráðið vonast eftir góðum viðbrögðum Borgarráðs í því samhengi.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram samantekt um vinnufund mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs sem fram fór 8. Febrúar.

Fulltrúi Flokks fólksins vill þakka fyrir fræðandi og gagnlegan vinnufund. Það er virkilega gagnlegt að sjá helstu niðurstöður úr vinnuhópunum. Þar eru margar áhugaverð verkefni og greinilegt að það eru mörg verkefni sem bíða okkar í mannréttinda- og ofbeldisvarnarráði. Fulltrúi Flokks fólksins vill leggja til að annar vinnufundur verði haldinn að ári og þá verði þessi áherslu atriði rifjuð upp og athugað hvort okkur hafi orðið eitthvað ágengt með þau. Það var sérstaklega gagnlegt að fá að kynnast öllu því starfsfólki og því góða starfi sem mannréttindaskrifstofa sinnir frá degi til dags. Það væri gott ef hægt væri að koma fyrir lið á dagskrá undir heitinu starfið á milli funda. Þessi liður er á dagskrá velferðarsviðs á öllum fundum og eru það oft mjög mikilvæg skilaboð sem þar koma fram.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara dags 7. mars 2024, um forvarna- og aðgerðaráætlun Reykjavíkur.

Kynnt eru drög að forvarna- og aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar 2024-27. Markmið áætlunarinnar er að bregðast við helstu áskorunum sem eru til staðar í forvarnarmálum varðandi börn og ungmenni í Reykjavík. Áskoranirnar eru margar því rannsóknir sýna fram á að andlegri líðan barna og unglinga hrakar, svefntími þeirra hefur minnkað og neikvæð áhrif vegna mikillar skjánotkunar hafa aukist. Ofbeldi er að aukast og hatursorðræða að verða meira áberandi í samfélaginu. Fulltrúi Flokks hefur haft áhyggjur af þessari þessari þróun og hefur ítrekað viðrað þær áhyggjur og mikilvægi þess að bregðast við þessum vanda. Með forvörnum og samstilltu átaki hefur tekist að draga úr áfengis og tóbaksneyslu hjá ungmennum. Fulltrúi Flokks fólksins telur mikilvægt að setja aukinn kraft í forvarnarstarf og heilsueflingu barna og ungmenna með markvissum aðgerðum. Fulltrúa Flokks fólksins líst vel á þessa aðgerðaáætlun og vonar að þetta verði ekki bara falleg orð á blaði heldur verði ráðist í raunverulegar forvarnar aðgerðir.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 26. janúar 2024, um verklagsreglur um fyrirspurnir og tillögur í ráðum nefndum Reykjavíkurborgar.

Flokkur fólksins var með athugasemdir við tillöguna sem sneru að 3. gr. þar sem fram kom að ekki mætti hafa lengur formála að fyrirspurnum. Flokki fólksins finnst það ómögulegt enda er stundum nauðsynlegt að hafa nokkur orð um af hverju verið er að leggja fram ákveðna fyrirspurn. Mikilvægt er að hafa sveigjanleika en ekki njörva niður hvert einasta atriði. Með því að loka fyrir möguleika á stuttum útskýringum með fyrirspurnum eða tillögum er ekki verið að einfalda neitt. Rök meirihlutans eru veikburða og er vísað til skýrleika. Stuttur formáli er einmitt liður í að gera fyrirspurn skýra og kalla varla á miklar tafir á afgreiðslu málsins eins og meirihlutinn fullyrðir. Ef horft er sérstaklega til umhverfis- og skipulagsráð eru reglur um verklag mála ekki alltaf í samræmi við sambærilegar reglur í öðrum málum. Í umhverfis- og skipulagsráði er meiri ferköntun ef svo má að orði komast. Bókanir eru frekar ritskoðaðar og jafnvel er minnihlutafulltrúum meinað að bóka þar sem það er leyft í öðrum ráðum. Dæmi um þetta er að minnihlutafulltrúum er bannað að bóka við mál sem er framvísað en slíkt bann á ekki við í öðrum ráðum.

 

Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Flokks fólksins:

Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að settur verði liður á dagskrá mannréttinda- og ofbeldisráðsfunda undir heitinu t.d. starfið á milli funda. Slíkur liður er á dagskrá velferðarráðs og eru það oft mikilvæg og gagnleg skilaboð sem fram koma undir þeim lið.
Tillagan var samþykkt.