Sameiginlegur fundur velferðarráðs og stafræns ráðs 22. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á vegvísi stafræns ráðs:

Stafræn þjónusta á velferðarsviði er gríðarlega mikilvæg og það er gott að heyra
hvað velferðarsvið er vel undirbúið fyrir þessa vegferð. Fulltrúi Flokks fólksins tekur
undir með velferðarsviði um að það þurfi að flýta ferlum og hraða vinnu við
Ráðgjafann. Fulltrúi Flokks fólksins telur gríðarlega mikilvægt að flýta ferlum
varðandi skólaþjónustuna svo þeir geti nýst til að koma á farsæld barna. Flokkur
fólksins vill jafnframt leggja áherslu á að það sé mikilvægt að Reykjavíkurborg vinni
með öðrum sveitarfélögum og Stafrænu Íslandi að stafrænum umbreytingum.