Stundum leynast miklar breytingar á bak við heldur þurrt orðalag í fjárlagafrumvarpi. Slíka breytingu er að finna í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár.
Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að elli- og örorkulífeyrir og bætur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð hækki um 7,3 prósent um næstu áramót. Samkvæmt gamla fyrirkomulaginu hefðu þessar greiðslur hækkað um 4 prósent. Munurinn er 3,3 prósentustig.
Hvað breyttist?
Þetta gerðist ekki af sjálfu sér heldur vegna áralangrar baráttu Flokks fólksins og stuðnings samstarfsflokka okkar í ríkisstjórn. Þrátt fyrir harða andstöðu þingmanna Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Framsóknar samþykkti Alþingi breytingarnar síðast liðið vor sem tryggði þessa hækkun.
Samkvæmt lögunum skulu greiðslur almannatrygginga taka mið af þróun launavísitölunnar frá 1. júní 2025. Greiðslur almannatrygginga fylgja því héðan í frá þróun launa með skýrari hætti en áður. Jafnframt er tryggt að þær hækki aldrei minna en verðlag.
Þetta kann að hljóma eins og tæknileg breyting en hún skiptir miklu máli. Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir 3,6 prósenta verðbólgu á næsta ári og 4 prósenta samningsbundnum launahækkunum á vinnumarkaði. Engu að síður hækka greiðslur almannatrygginga um 7,3 prósent um áramótin.
Viðkvæmir hópar ekki skildir eftir
Þetta snýst um annað og meira en prósentur. Að baki tölunum er fólk sem reiðir sig á greiðslur almannatrygginga til framfærslu. Markmiðið er að eldri borgarar, fatlað fólk og öryrkjar sitji ekki eftir þegar laun hækka á almennum vinnumarkaði.
Þarna liggur einmitt mikilvægi breytingarinnar. Áður var miðað við áætlaða launaþróun en ekki raunverulega þróun launavísitölunnar frá ákveðnum viðmiðunardegi. Það gat leitt til þess að greiðslurnar fylgdu ekki þeirri launaþróun sem raunverulega hafði orðið. Nýja fyrirkomulagið er bæði skýrara og gagnsærra.
Munurinn sést strax í fjárlagafrumvarpinu. Hefði gamla aðferðin gilt áfram væri hækkunin 4 prósent um næstu áramót en ekki 7,3 prósent.
Atvinnuleysisbætur falla ekki undir þessa vísitölutengingu. Þær eiga samkvæmt frumvarpinu að hækka um 4 prósent á næsta ári, í samræmi við áætlaðar kjarasamningsbundnar launahækkanir. Samanburðurinn sýnir vel hvaða áhrif nýja reglan hefur.
Löng barátta
Breytingin markar því mikinn áfangasigur í baráttu Flokks fólksins allt frá stofnun flokksins fyrir þessum breytingum. Hér er komin varanleg lausn og skýrt viðmið þannig að ekki þarf að þrefa um það á hverju ári við hvað eigi að miða.
Um þetta mál, eins og önnur mál sem ríkisstjórnin stendur að, var fullkomin samstaða innan ríkisstjórnarflokkanna.
Birt í Morgunblaðinu 15. sept. 2026