Umhverfis- og skipulagsráð 4. október 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning skrifstofu samgangna og borgarhönnunar um áætlaðar framkvæmdir við strætóstöðvar árið 2023, meðal annars vegna úrbóta á aðgengi við strætóstöðvar:

Fulltrúi Flokks fólksins fagnar öllum lagfæringum sem auðveldar aðgengi að strætóstöðvum en verkið gengur ansi hægt því fáar stöðvar hlutfallslega eru lagaðar í einu. Árið 2021 voru í heild 556 strætóstöðvar í Reykjavík sem þarfnast lagfæringa. Í því sem lagt er fram núna er talað um 33 aðgengisbætandi aðgerðir og 4 aðgerðir sem eftir á að klára. Það hlýtur að saxast afar hægt hægt á þessar 556 sem nefndar voru að þurfi lagfæringar 2021. Flestar aðgerðir snúa að aðgengi og segir að byggt sé á „hönnun fyrir alla“. Fulltrúi Flokks fólksins telur að ef byggja á algildri hönnun hljóti framkvæmdir að vera talsvert umfangsmiklar. Skoða þarf staðsetningu staura og stampa og uppfæra skýli og endurgera yfirborð. Þetta teljast umfangsmiklar aðgerðir myndi maður halda.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram drög að erindisbréfi, dags 29. september 2023 fyrir starfshóp til að draga úr þjófnaði á hjólum:

Í aðgerðarkafla hjólreiðaáætlunar Reykjavíkur 2021-2025, sem samþykkt var í borgarstjórn 15. júní 2021 er kveðið á um að kanna skuli leiðir til að draga úr þjófnaði á hjólum í samstarfi við lögreglu, tryggingafélög og grasrótarsamtök hjólreiðafólks. Umræða um hjólaþjófnað hefur færst í aukana hér á landi. Þjófnaður á hjólum dregur úr löngun fólks að hjóla. Sá hópur sem hér er settur á laggirnar þyrfti að skoða að koma upp gagnabanka, forriti með raðnúmerum svo auðvelt sé að finna aftur eiganda hjóls.  Hvetja á þá sem eru þolendur hjólaþjófnaðar að tilkynna  hann strax til lögreglu. Um þetta hefur áður verið rætt af “hjólurum”. Sum lönd hafa einmitt hannað kerfi  þar sem að fólk getur skráð raðnúmerin niður. Það fer í einn miðlaðan gagnabanka. Fólk getur þá tilkynnt hjólin sín stolin og lögregla hefur aðgang að þessu kerfi og náð út allskonar tölfræðiupplýsingum. Tölfræði getur hjálpað mikið t.d. er vert að geta áttað sig á hvar  hjólreiðaþjófnaðurinn er. Bæta mætti við að hjólaþjófnaður er refsiverður og eitt ráð til viðbótar væri að refsing yrði hert við hjólaþjófnaði. Það er brýnt því aukning hefur orðið  á notkun rafmagnshjóla sem eru mun dýrari en venjuleg hjól. Þjófnaður á hjóli er því mikill skaði.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að staða eftirvagna á bifreiðastæði við Kistuhyl verði óheimil.

Skipulagsyfirvöld vilja banna á stöðu eftirvagna við Kistuhyl. Kannski er vögnum lagt þarna af því að ekki er um aðra staði að ræða. Ef svo er þarf að skilgreina og merkja staði þar sem hægt er að leggja eftirvögnum.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Kristjáns Ásgeirssonar, dags. 13. mars 2023, um breytingu á deiliskipulagi Njálsgötureits, reits 1.190.2, ásamt bréfi, dags. 10. mars 2023, vegna lóðarinnar nr. 38 við Njálsgötu:

Það eru nokkuð margar athugasemdir sem gerðar eru við Njálsgötu ma. er lagst er gegn því að auka byggingarmagn á lóðinni Njálsgötu 38, vegna þess að skv. gildandi deiliskipulagi er töluverð hækkun á framhúsi. Þetta er útskýrt í gögnum og fleiri athugasemdir eru gerðar við hús nr. 40. Sjá má að þetta mál er flókið. Ágæt rök eru nefnd frá þeim sem gera athugasemdir sem vert er að staldra við. Til að mynda er bent á að samkvæmt stefnu Reykjavíkurborgar um að minnka kolefnislosun, væri betra fyrir umhverfið /þ.e minni kolefnislosun og minna rask af því að nýta þá byggingu sem nú þegar er á lóðinni og breyta henni í íbúðarhús. Þetta er gamalt og gróið hverfi og áhyggjur eru af því að ekki takist að vernda byggðamynstur sem skilgreint er í gögnum.  Bent er á að athugasemdir snúast um hagsmuni heildarinnar. Flokkur fólksins vonar að borgin og íbúar nái að lenda þessu máli  í sátt og að það takist að varðveita þessa gömlu byggð eins og kostur er.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Urðarstígsreitur – breyting á deiliskipulagi – Bergstaðastræti 51:

Flokkur fólksins fagnar því megininntaki deiliskipulagstillögunnar að stefnt sé að því að fjölga leikskólaplássum í hverfinu með byggingu nýs leikskólahúsnæðis. Mikill skortur er á leikskólaplássum í hverfinu. Þær athugasemdir sem hér liggja fyrir snúa að skorti á samráði s.s. hvernig var staðið að kynningu tillögu að nýju deiliskipulagi. Mikilvægt er einmitt að standa vel að kynningum svo ekki komi bakreikningar síðar. Það byggir allt á að íbúar fái góðar upplýsingar svo að hver og einn geti undirbúið sig undir breytingarnar og bent á það sem betur má fara.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fossvogsblettur 2-2A – nýtt deiliskipulag – Ævintýraborgir:

Flokkur fólksins fagnar því megininntaki deiliskipulagstillögunnar að stefnt sé að því að fjölga leikskólaplássum í hverfinu með byggingu nýs leikskólahúsnæðis. Mikill skortur er á leikskólaplássum í hverfinu. Þær athugasemdir sem hér liggja fyrir snúa að skorti á samráði s.s. hvernig var staðið að kynningu tillögu að nýju deiliskipulagi. Mikilvægt er einmitt að standa vel að kynningum svo ekki komi bakreikningar síðar. Það byggir allt á að íbúar fái góðar upplýsingar svo að hver og einn geti undirbúið sig undir breytingarnar og bent á það sem betur má fara.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð 485. fundar SORPU bs., dags. 5. september 2023:

Uppbygging brennslustöðvar virðist vera á uppnámi. Brennslustöðvar eru  sá valkostur sem nágrannaþjóðir velja til að nýta sorp sem orkugjafa og losna þannig við brennanlegt sorp. Fram kemur að stjórn  Sorpu og fleiri hafi farið til nágrannalanda og skoðað brennslustöðvar en ekki hefur það hjálpað. Samkvæmt fréttum er hætt við að reisa brennslustöð í Álfsnesi og þá ákvörðun þarf að skýra.  Ekki er góður kostur að urða eða senda brennanlegan úrgang utan þótt hann kunni að vera eftirsóknarverður þar.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Vinstri grænna um frestun á ráðningu framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur:

Fulltrúi Flokks fólksins finnst þetta hin fínasta tillaga þ.e. að skoðaðir verði kostir þess að sameina HER við önnur heilbrigðiseftirlit á höfuðborgarsvæðinu. Í umsögn má sjá að fleiri eru sama sinnis. Í sameiningu sem þessari má sjá hagræðingu og skilvirkni.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands vegna bílastæða hreyfihamlaðra sbr. 25. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 16. ágúst 2023:

Hætt hefur verið gjaldtöku hjá handhöfum stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða í bílahúsum borgarinnar. Fulltrúi Flokks fólksins veit þó dæmi þess að hreyfihöluðum er gert að greiða gjald í bílastæðahúsum eftir að ákvörðun um að hætta henni hefur verið tekin. Þessi ákvörðun hefur greinilega ekki náð í gegn. Fulltrúi Flokks fólksins telur ekki annað sanngjarnt en að fólki sem gert hefur verið að greiða gjald sem búið er að fella niður eigi að fá það endurgreitt. Nýlegt dæmi um þetta var í Ráðhúsi Reykjavíkur fyrir fáum dögum en þar komst viðkomandi ekki út fyrr en hafa greitt í greiðsluvél. Um var að ræða einstakling á P merktum bíl.

 

Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um að skíðagöngubraut verði með fram vegi en ekki við garða íbúa í efra Breiðholti, sbr. 45. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 28. júní 2023.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. USK23060356

 

Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um viðhorfskönnun Maskínu um göngugötur 2023, sbr. 20. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 13. september 2023.

 

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. USK23090134

 

Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um Valcan ráðgjafafyrirtæki, sbr. 27. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 20. september 2023.

Vísað til umsagnar SORPU bs. USK23090216

 

Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um skoðun á borgarlínuverkefni í ljósi þess að fleiri eru nú andvígir því:

Fyrirspurn í ljósi þess að vaxandi hópur er orðin fráhverfur borgarlínu. Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga hvort meirihlutinn hyggist endurskoða samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins með tilliti til niðurstaðna kannanna sem sýnir að fleiri lýsa sig nú andvígir verkefninu? Niðurstöður sýna að fólk vill nú almenningssamgöngur núna sem hægt er að treysta á. Lífið er núna. Samkvæmt könnuninni er nú rúmur þriðjungur mótfallinn framkvæmdinni en við síðustu könnun, sem var gerð í febrúar 2021, var fjórðungur andvígur henni. USK23100051

 

Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um endurgreiðslu vegna gjaldtöku í bílastæðahús fyrir P merkta bíla sem nú er ólögleg:

Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hvort ekki eigi að endurgreiða þeim einstaklingum á P merktum bílum sem þurft hafa að greiða gjald í bílastæðahúsum eftir að ákveðið var að fella niður gjaldið? Af hverju eru þessi kerfi ekki rafræn og bundin við bílnúmer? Hvar eru stafrænar lausnir í þessu sambandi hjá borginni/þjónustu- og nýsköpunarsviði? Hætt hefur verið gjaldtöku hjá handhöfum stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða í bílahúsum borgarinnar. Fulltrúi Flokks fólksins veit þó dæmi þess að hreyfihömluðum hafi verið gert að greiða gjald í bílastæðahúsum eftir umrædda ákvörðun. Þessi ákvörðun hefur greinilega ekki náð í gegn. Nýlegt dæmi um þetta var í Ráðhúsi Reykjavíkur en þar komst viðkomandi ekki út fyrr en hann hafði  greitt í greiðsluvél. Um var að ræða handhafa stæðiskorts. Það er  því augljóst að það eru einhver  vandræði  með innleiðinguna og ekki hefur tekist að samþætta kerfið. Slík vandræði eiga  ekki að bitna á þjónustuþegum. USK23100054

 

Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um strætóstöðvar sem þarfnast lagfæringar:

Árið 2021 voru í heild 556 strætóstöðvar í Reykjavík sem þörfnuðust lagfæringa.  Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hver staðan er núna. Hvað margar stöðvar af þessum eru fullkláraðar, hvað margar eru í endurgerð um þessar mundir og hvað margar á alfarið eftir að laga með algilda hönnun í huga. USK23100055

 

Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um viðgerð á steyptum gangstéttum:

Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hvort enn sé verið að steypa gangstéttir borgarinnar og hvort verið sá að  vinna markvisst að því að lagfæra skemmda steypu á gangstéttum?  Fulltrúi Flokks fólksins hefur fengið kvartanir  vegna misfellna í steyptum gangstéttum frá fötluðum einstaklingum sem nota hjólastóla eða rafknúin hjálpartæki. Bent hefur verið á sérstaklega slæmar misfellur á  gangstéttum austan megin við Kringlumýrarbraut. USK23100052

 

Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um tillögur frá íbúaráði og hvort verið sé að leggja þær fram með samþykkis meirihluta íbúa:

Tvær tillögur eru lagðar fyrir fund umhverfis- og skipulagsráð og koma þær báðar frá íbúaráði Háaleitis- og Bústaðarhverfis, sú fyrri um mótun framtíðarsýnar um þróun Háaleitisbrautar og sú síðari um lækkun hámarkshraða á Suðurlandsbraut. Þetta eru tvö umfangsmikil mál, sérstaklega sú fyrri sem varðar alla í hverfinu? Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hvort íbúaráðið hefur heyrt í íbúum og afstöðu þeirra? Hefur verið gerð könnun á t.d. hugmyndum íbúanna um framtíðarsýn um þróun Háaleitisbrautar? USK23100064