Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga sviðsstjóra, dags. 30. september 2024, um breytingar á reglum fyrir sameiginlega akstursþjónustu við fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu.
Flokkur fólksins fagnar því að loksins sé verið að bregðast við áliti umboðsmanns Alþingis um að Reykjavíkurborg bæri að breyta gjaldskrám fyrir sameiginlega akstursþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu. Umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að Reykjavíkurborg bæri að bjóða upp á gjaldskrá sambærilega og gjaldskrá í almenningssamgöngur.Breytingin er að stakt fargjald fyrir akstursþjónustu fatlaðs fólks skal miðast við stakt gjald fyrir öryrkja hjá Strætó bs. Gjald vegna tímabilskorta fyrir notendur akstursþjónustu fatlaðs fólks mun einnig miðast við tímabilskort fyrir öryrkja. Einnig munu nemakort vera í boði fyrir 16 ára og eldri sem stunda framhalds-eða háskólanám og skal gjaldið á nemakortunum miðast við tímabilskort fyrir öryrkja samkvæmt gjaldskrá Strætó bs. Sérstaklega er ánægjulegt að sjá að í nýrri gjaldskrá velferðarsviðs er lagt til að allur akstur fatlaðra barna bæði leik og grunnskólabarna til 16 ára aldur skuli verða gjaldfrjáls. Fulltrúi Flokks fólksins gagnrýndi einmitt fyrri tillögu vegna þess að þar var gert ráð fyrir því að börn 12- 15 ára þyrftu að fara greiða hálft strætógjald en höfðu áður ekki greitt fyrir akstursþjónustuna. Gott að sjá að hlustað hefur verið á þessar ábendingar í nýrri tillögu.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum : Lögð fram drög að umsögn velferðarráðs, dags. 30. september 2024, um skýrslu og tillögur starfshóps um stefnumörkun félagsmiðstöðva, samfélags- og menningarhúsa, ásamt bréfi skrifstofu borgarstjórnar.
Flokkur fólksins er tiltölulega ánægður með framkomna skýrslu um stefnumörkun félagsmiðstöðva, samfélags- og menningarhúsa enda í takt við vinnu fulltrúa Flokks fólksins í stýrihópi um stefnumótun í þróun félagsmiðstöðva fyrir fullorðið fólk sem var að störfum 2020 en lauk hins vegar aldrei vinnu sinni vegna andstöðu. Minnt er þó enn og aftur á mikilvægi aðgengismála. Gæta þarf þess að aðgengi að hinum sérhæfðu félagsmiðstöðvum sé tryggt og að fólk komist án vandræða á þær og milli þeirra. Strætó er því miður ekki nógu góður kostur fyrir margra sakir. Finna þarf aðrar leiðir. Þegar talað er um sérhæfingu þá þýðir það líka að leggja skuli áherslu á sérhæfð áhugamál. Til dæmis að efla virkni líkama og sálar með göngu- og hlaupahópum, dansi, jóga og hugleiðslu, mat, næringu og heilsueflingu. Mikilvægt er einnig að í hverju hverfi myndi tilteknir opnir og almennir þjónustuþættir/starfsemi hverfiskjarna félags- og menningarstarfs þannig að ekki sé gert upp á milli hverfa. Sátt er einnig um tillöguna sem snýr að því að í fimm félagsmiðstöðvum, sem nú eru reknar í húsnæði þjónustuíbúðakjarna borgarinnar, verði þróaðar dagdvalir til að mæta frekar þörfum íbúa þar. Þetta er í samræmi við vaxandi þjónustuþörf þeirra sem búa í þjónustuíbúðum borgarinnar.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar sviðsstjóra við fyrirspurn velferðarráðs um húsnæðiskostnað sem hlutfall ráðstöfunartekna meðal leigjanda sem fá sérstakan húsnæðisstuðning.
Velferðarráð óskaði upplýsinga um hlutfall ráðstöfunartekna sem er varið í húsnæðiskostnað meðal þeirra sem fá sérstakan húsnæðisstuðning frá Reykjavíkurborg annars vegar hjá þeim sem leigja hjá Félagsbústöðum og hinsvegar á almennum markaði. Almennt er talið ásættanlegt að 20-25% ráðstöfunartekna fari í húsnæðiskostnað. Það kemur fulltrúa Flokks fólksins ekki á óvart að hlutfall húsnæðiskostnaðar af ráðstöfunartekjum er nokkuð hærra á almennum markaði en hjá leigjendum Félagsbústaða. Hlutfall ráðstöfunartekna sem er varið í húsnæðiskostnað hjá leigjendum Félagsbústaða með sérstakan húsnæðisstuðning er hvað verst hjá þeim sem eru í starfi eða 37% og hjá atvinnulausum án bótaréttar 29%. Á almennum leigumarkaði er staðan hvað verst hjá atvinnulausum með eða án bótaréttar en þar er hlutfallið 46% en almennt er hlutfall húsnæðiskostnaðar af ráðstöfunartekjum alltof hátt á almennum markaði.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar sviðsstjóra við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um mönnun á sambýlum og íbúðakjörnum fyrir fatlað fólk.
Slæm staða skapaðist á sambýlum og íbúðakjörnum fyrir fatlaða vegna undirmönnunar síðastliðið sumar. Á íbúðakjarna við Skúlagötu skapaðist neyðarástand vegna undirmönnunar. Því óskaði Flokkur fólksins upplýsinga um hvernig væri fylgst með mönnun á sambýlum/íbúðakjörnum borgarinnar og hvaða verkferlar gilda þegar undirmönnun skapast. Í svari kemur fram að ábyrgð á mönnun liggur hjá forstöðumanni á hverjum stað. Það er ánægjulegt að fá upplýsingar um að nú sé búið að manna þau átta stöðugildi sem eru á íbúðakjarnanum á Skúlagötu. Fulltrúa Flokks fólksins finnst athyglisvert að fá upplýsingar um að engin opinber skilgreining sé til hjá sveitarfélögum varðandi þjónustu við fatlaða einstaklinga en velferðarsvið Reykjavíkurborgar vann skýrslu árið 2016 þar sem lagðar voru fram tillögur að skilgreiningu öryggismarka í þjónustunni. Flokkur fólksins telur brýnt að farið verði yfir þessar tillögur um öryggi í sambýlum/íbúðakjörnum og þær hafðar að leiðarljósi í framtíðar þjónustu.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar sviðsstjóra við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um húsnæði fyrir áfangaheimilið Brú.
Fulltrúi Flokks fólksins spurði hvort velferðarsvið gæti aðstoðað Samhjálp við leit að hentugu húsnæði fyrir áfangaheimilið Brú. Fulltrúi Flokks fólksins hafði spurnir af því að nýlega hefði Samhjálp sent ákall til Félagsbústaða til að minna á að enn vanti Samhjálp húsnæði fyrir áfangaheimilið Brú í stað húsnæðisins á Höfðabakka. Fulltrúa Flokks fólksins er kunnug forsaga málsins um að Samhjálp hafi verið boðin kaup á húsnæðinu þar sem miðað var við ákveðnar forsendur en því hafi verið hafnað af Samhjálp. Í svari segir að samkvæmt upplýsingum Félagsbústaða hafi Samhjálp ekki óskað formlega eftir aðstoð við að finna annað húsnæði. Samhjálp hafi hins vegar verið að leita að öðru húsnæði sem hentað gæti sem áfangaheimili og hafi beðið um að þau séu höfð í huga frétti Félagsbústaðir af húsnæði sem hentað gæti fyrir áfangaheimili. Það má sannarlega deila um hvað sé formleg ósk eða ákall um aðstoð en fulltrúa Flokks fólksins finnst það ekki aðalatriðið heldur það að fundið verði hentugt húsnæði fyrir áfangaheimilið.
Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:
Flokkur fólksins leggur til að Foreldrahús verði fengið til að koma fyrir velferðarráð til að kynna starfsemi sína og samstarf við Reykjavíkurborg.
Tillagan var samþykkt
Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Flokkur fólksins óskar upplýsinga um hvort Félagsbústaðir ætli að hækka leigu um 6,5% umfram vísitölu, og ef svo er, er óskað upplýsinga um mótvægisaðgerðar.
Greinargerð
Það er mat Flokksins að verið sé að ráðast á fátækasta fólkið í borginni. Félagsbústaðir vilja hækka. Félagið leigir út húsnæði til fólks undir ákveðnum tekju- og eignamörkum. Flokkur fólksins hefur mótmælt þessu harðlega strax á umsagnarferli. Ekkert lát er á árásum á fátækasta fólkið í borginni. Flokkur fólksins mun aldrei styðja það að leiga verði hækkuð og það án nokkurra mótvægisaðgerða. Ef þarf að hækka húsaleigu hjá Félagsbústöðum til að halda fyrirtækinu á floti er fokið í flest skjól hjá Félagsbústöðum. Það er mat Flokks fólksins að viðskiptamódel Félagsbústaða gengur ekki upp miðað við núverandi forsendur. Leigumarkaðurinn er alvarlega sjúkur og hafa stjórnvöld gert lítið til að koma böndum á hann. Flokkur fólksins vill koma varanlegri skikkan á hinn almenna leigumarkað og setja takmarkanir varðandi hækkanir á leiguverði. Leita þarf annarra leiða en að hækka leigu hjá þeim verst settur. Frekar mætti skoða að styrkja Félagsbústaði með framlögum. Efla þarf réttarvernd leigjenda og verja leigjendur Félagsbústaða fyrir hækkunum með sérstökum aðgerðum s.s. að hækka sérstakan húsnæðisstuðning sem nemur hækkunum Félagsbústaða.
Tillaga Flokks fólksins að styrkur sá sem Reykjavíkurborg ætlar að veita Foreldrahúsi að upphæð 10 milljónir verði hækkaður. Í stað 10 milljóna verði styrkurinn 15 milljónir.
Greinargerð
Það er hætta á að Foreldrahús þurfi að leggja niður starfsemi sína vegna fjárskorts. Um er að ræða eina úrræðið sem foreldrum barna og ungmenna í vímuefnavanda stendur til boða. Efnt hefur verið til undirskriftasöfnunar til þess að skora á stjórnvöld til að koma í veg fyrir að félagið verði lagt niður. Foreldrahús er úrræði sem rekið er af samtökunum Vímulaus æska – foreldrasamtök sem stofnuð voru árið 1986. Árið 1999 var komið á fót ráðgjafarmiðstöð sem hýsir starfsemi samtakanna og var nefnt Foreldrahús. Miðstöðin var fyrst til húsa að Vonarstræti en starfsemin flutti síðar í nýtt húsnæði í Borgartúni 6.
Í um 25 ár hafa foreldrar barna og ungmenna sem glíma við vímuefnavanda getað sótt sér meðferð, fræðslu og þjónustu í Foreldrahúsi. Nýjustu skýrslur Barnaverndar sýna aukningu á neyslu hjá börnum og Barnavernd sendir þessa skjólstæðinga í Foreldrahús. Foreldrahús vinnur gríðarlega mikilvægt og gott starf og Flokkur fólksins telur gríðarlega mikilvægt að styðja við fjölskyldur í þessum vanda.