Frístundastyrkurinn dugar ekki einn
Virðulegi forseti.
Rannsóknir hafa lengi sýnt hversu mikilvægt það er fyrir börn að hreyfa sig og taka þátt í íþróttum og tómstundum. Þar eflast ekki aðeins líkamleg heilsa heldur líka félagsleg tengsl, vellíðan og tilfinningin fyrir því að tilheyra.
Sem betur fer bjóða flest sveitarfélög nú frístundastyrki. Þeir eru þó misháir og reglurnar ólíkar.
Ég hef leitt stýrihóp mennta- og barnamálaráðherra sem unnið hefur að fyrstu heildstæðu stefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn fátækt barna. Eitt stærsta verkefni okkar var einmitt að skoða hvernig tryggja megi þátttöku barna í íþróttum og tómstundum óháð efnahag foreldra.
Í samráði okkar kom skýrt fram að frístundastyrkurinn dugar ekki einn. Stundum nær hann aðeins yfir hluta æfingagjaldsins og síðan kemur allt hitt: skór, búningar, búnaður, mótsgjöld, ferðalög og gisting.
Þess vegna fagnaði ég nýlegu viðtali við Viðar Halldórsson prófessor. Hann ræddi þá mótsögn að hugsjónin sé íþróttir fyrir alla en tekjulægri fjölskyldur hafi síður tækifæri til þátttöku. Hann ræddi jafnframt aukna markaðsvæðingu og afreksvæðingu íþróttastarfs barna. Þetta rímar mjög vel við niðurstöður okkar.
En hvað getum við gert?
Í þingsályktunartillögu um stefnu og aðgerðir gegn fátækt barna, sem þegar hefur verið birt í samráðsgátt, eru þessi mál útfærð nánar. Þar er meðal annars gert ráð fyrir auknum stuðningi við börn á tekjulágum heimilum og samfélagslegum sáttmála um jafnt aðgengi barna að frístundastarfi.
Vandinn einskorðast þó ekki við tekjulægstu fjölskyldurnar heldur teygir sig langt upp eftir tekjuskalanum. Því þurfa ríkið, sveitarfélögin og hreyfingarnar að kortleggja allan kostnað, setja sameiginleg viðmið um hófleg gjöld og kröfur vegna búnaðar og ferðalaga
Efla þarf mót og viðburði í nærumhverfinu, auka samnýtingu búnaðar og húsnæðis og tryggja markvissan stuðning við þau börn sem annars yrðu út undan.
Þetta er ekki einfalt verkefni. En samfélagslegur sáttmáli getur verið grunnurinn að því að allir leggist á eitt um að halda kostnaði niðri og gera íþróttir raunverulega aðgengilegar öllum börnum.
Það er ekki nóg að barn hafi efni á að byrja. Það þarf líka að hafa efni á að vera með.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingkona Flokks fólksins
Ræða flutt undir liðnum Störf þingsins