Borgarráð 11. apríl 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. 9. apríl 2024, að viðaukum við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar vegna fjárfestingaráætlunar A-huta. Greinargerðir fylgja tillögunum:

Það er mat Flokks fólksins að mikilvægt sé að endurskoða allar fjárfrekar fjárfestingaráætlanir sem mega bíða s.s. Grófarhús. Það þarf að draga verulega úr og jafnvel setja sumar fjárfestingar á ís. Farið var of geyst í ákvarðanir sem lúta að Grófarhúsi með leiðinlegum afleiðingum, s.s. niðurlagningu Borgarskjalasafns. Einnig er nauðsynlegt að setja Hlemmsvæðið, götur og torg, á ís um tíma. Því er fagnað að setja á meira fjármagn í viðhald. Viðhaldsskylda borgarinnar er stór og mun taka mörg ár að ná jafnvægi eftir áralanga viðhaldsvanrækslu á t.d. skólahúsnæði. Því miður má einnig sjá í þessum viðauka miklar skerðingar á velferðarsviði. Þjónustu sem snýr að okkar viðkvæmustu hópum, börnum og eldra fólki. Þessi viðauki ber vott um og staðfestir erfiðan fjárhag Reykjavíkurborgar. Flokkur fólksins er uggandi yfir framhaldinu og óttast mjög að enn meira eigi eftir að koma til í skerðingum á grunnþjónustu.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 4. apríl 2024, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 3. apríl 2024 á tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðirnar nr. 19 og 21-23 við Laufásveg, ásamt fylgiskjölum.

Samkvæmt tillögunni er um að ræða tímabundið íbúðarhúsnæði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Gert er ráð fyrir starfsmanni með reglulega viðveru sem er íbúum til aðstoðar eftir atvikum. Einnig er heimilt að nýta bílskúra á lóðinni undir framangreint búsetuúrræði. Heildarfjöldi íbúa hverju sinni er að hámarki 80 manns. Borgarfulltrúum hafa borist skeyti vegna þessa máls og allmargar athugasemdir hafa verið sendar inn. Í gær barst okkur skeyti þar sem borgarfulltrúar voru hvattir til að svara ákveðnum spurningum við afgreiðslu málsins. Enda þótt fulltrúi Flokks fólksins hafi ekki atkvæðarétt í þessu máli leggur hann áherslu á að vandað verði til verka og rætt verði við alla sem að málinu koma. Horfa þarf m.a. til öryggismála s.s. flóttaleiða, brunavarna, hreinlætisaðstöðu og eldunaraðstöðu.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 4. apríl 2024, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 3. apríl 2024 á tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðirnar nr. 10 og 12 við Holtsgötu og 16 við Brekkustíg.

Hér er um erfitt mál pólitískt að ræða að mati fulltrúa Flokks fólksins. Rífa á gömul hús í stað þess að varðveita þau. Mál af þessu tagi eru ávallt umdeild enda tilfinningamál fyrir marga. Um er að ræða gróinn reit í Vesturbænum. Markmiðið er vissulega að fjölga íbúðum sem verða 15 talsins en hér finnst sumum að gengið sé of langt í þéttingaráformum. Fulltrúa Flokks fólksins þykir miður að ekki eigi að gera ráð fyrir bílastæðum sem mun án efa hafa áhrif á eftirspurn þessara íbúða. Niðurrif húsa er vissulega endanleg aðgerð. Þetta er eitthvað sem meta þarf hverju sinni. Í þessu tilfelli má vísa í álit Borgarsögusafns á þessum reit en þar er nefnd Holtsgata 10 og segir að húsið sé metið hátt út frá menningarsögulegu gildi og varðveislugildi.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 8. apríl 0224, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út framkvæmdir vegna verkefna sem kosin voru til framkvæmda í Hverfið mitt, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun 2 er 450 m.kr.

Fulltrúi Flokks fólksins telur að gera þurfi breytingar á þessu verkefni frá þeirri mynd sem það er í núna. Verkefnið hefur einhvern vegin blásið út og kannski misst dálítið marks eftir því sem Flokkur fólksins hefur orðið áskynja. Kosningaþátttaka hefur auk þess dalað. Fulltrúi Flokks fólksins óskaði upplýsinga um ástæður þess að kosningaþátttaka í Hverfið mitt hefur dalað mikið milli ára. Árið 2021 var hún 16,4% en var síðast 12%. Áberandi lægst er útkoman í Breiðholti, Vesturbæ og Miðbæ. Fram kemur í svari að ekki er vitað um ástæðuna. Fulltrúi Flokks fólksins hefur sínar skýringar á af hverju verkefnið er að dala. Fólk hefur einfaldlega ekki alltaf verið sátt við framkvæmdina og útkomuna. Vangaveltur eru um lýðræðisþáttinn þegar kemur að því hvaða verkefni sem er ofarlega á lista eru framkvæmd og hvernig endanleg útfærsla er. Þetta verkefni, Hverfið mitt, er mjög kostnaðarsamt. Þrátt fyrir mikinn kostnað og dræma þátttöku á að halda áfram með verkefnið í sömu mynd. Fulltrúi Flokks fólksins telur það ekki skynsamlegt og telur að betra væri að einfalda alla verkferla og skýra ferlið betur fyrir borgarbúum.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 9. apríl 2024, þar sem erindisbréf starfshóps um leigumarkað í Reykjavík er sent borgarráði til kynningar.

Flokkur fólksins fagnar stofnun starfshóps sem á að rýna stöðu og umfang leigumarkaðarins í Reykjavík. Helstu verkefni starfshópsins eru að koma með tillögur til borgarráðs um fyrirkomulag virkara eftirlits með leigumarkaði í Reykjavík. Jafnframt að leggja fram tillögu um hvernig hægt er að ná betri yfirsýn yfir leigumarkaðinn í samstarfi við helstu hagaðila m.a. til að reyna að kortleggja framboð á leigumarkaði eins og kostur er. Skila á tillögum til borgarráðs fyrir lok júní 2024. Flokkur fólksins telur mjög brýnt að koma á virku eftirliti með leigumarkaði og hefði átt að grípa til slíkra aðgerða fyrir löngu. Staða leigjenda er mjög bágborin og er mjög mikilvægt að stjórnvöld leiti allra leiða til að verja leigjendur í þeirri stöðu sem nú ríkir á leigumarkaðnum.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 8. apríl 2024, varðandi lausn borgarskjalavarðar frá starfi.

Þá hefur sviðsstjóra þjónustu- og nýsköpunarsviðs með stuðningi meirihlutans og KPMG tekist að flæma borgarskjalavörð úr starfi. Fulltrúi Flokks fólksins þekkir vel til þessa máls og veit hvernig staðið var að því og hvaða aðferðir voru notaðar til að þvinga fram þessa niðurstöðu. Það er auk þess skandall að sviðsstjóri hefur bannað borgarskjalaverði, fyrrverandi, að koma á safnið. Hvað er eiginlega hér í gangi? Flokki fólksins blöskrar hvernig komið hefur verið fram við borgarskjalavörð sem fagmann og manneskju. Þetta er aðeins einn af mörgum tugum starfsmanna sem sparkað hefur verið úr starfi nánast fyrirvaralaust. Það eru ófá dæmi þess í borginni þar sem meirihlutinn hefur farið illa með starfsfólk. Það er fyrir löngu ljóst að meirihlutinn var áfjáður í að losa sig við borgarskjalavörð sem féll í ónáð þegar hún réðst í að gera frumkvæðisathugun í hinu svokallaða braggamáli þar sem fram kom að farið hafði verið á svig við lög. Fleiri bentu á tengsl málefna braggans og niðurlagningar Borgarskjalasafns, svo sem í pistli Björns Bjarnasonar fyrrum menntamálaráðherra frá 18. febrúar 2023 með yfirskriftinni „Braggi lokar Borgarskjalasafni“. Flutningur gagna safnsins yfir í Þjóðskjalasafn á eftir að verða kostnaðarsamur enda líkur á að rukkað verði fyrir flutning skjala í Þjóðskjalasafnið.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 6. október 2023, sbr. afgreiðsluborgarstjórnar frá 3. október 2023 á tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um einföldun á regluverki og ferlum, ásamt fylgiskjölum. MSS23100019

Flokkur fólksins hefur ítrekað lagt fram tillögur af þessu tagi en þeim verið hafnað. Til dæmis lagði Flokkur fólksins til að umsækjandi um flókið byggingarleyfi fengi tengilið innan borgarinnar sem héldi utan um málið og öll gögn þess. Umsækjendur hafa þurft að ganga á milli Pontíusar og Heródesar með sín mál og jafnvel eru dæmi um að gögn hafi týnst. Stafrænar lausnir til að létta umsækjendum ferlið og starfsfólki vinnuna eru ekki komnar í loftið og einhver bið verður enn á því eftir því sem næst verður komist. Miklar tafir hafa orðið á stafrænum lausnum á umhverfis- og skipulagssviði. Ekki dugar að státa sig af lista af einhverjum stafrænum lausnum sem ekki eru komnar í virkni. Flækjustigið í umsóknakerfi borgarinnar hefur mikinn fælingarmátt. Verktakar fara annað. Fram kemur á vefnum að umsagnarferlið geti tekið allt að 45 daga. Á þessu er allur gangur eftir því sem fulltrúi Flokks fólksins hefur heyrt og er heildarumsóknarferlið iðulega mikið lengra. Með því að hafa samband við tengilið væri hægt að fá uppgefið strax hvar hvert og eitt gagn er statt í kerfinu og hvenær vænta má afgreiðslu.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 24. janúar 2024, sbr. vísun borgarstjórnar frá 23. janúar 2024 á tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um rekstrarútboð sorphirðu, ásamt fylgiskjölum. Einnig lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 6. mars 2024.

Flokkur fólksins spurði um fyrirkomulag og ábyrgð á upplýsingaöryggi hjá Barnavernd Reykjavíkur og hvernig ábyrgð á upplýsingaöryggi er skilgreind og hvernig það er meðhöndlað innan Barnaverndar Reykjavíkur. Fram kemur í svari að þau séu í læstum skápum og þarf það svo sem ekki að koma á óvart. Öll pappírsgögn sem hafa að geyma trúnaðarupplýsingar um einstaklinga eru að sjálfsögðu varðveitt í læstu rými. Einnig kemur fram að gögn séu skráð og skönnuð inn í rafrænt skjalavörslukerfi og tekin eru afrit þess utan með undirskrift starfsmanns. Ekki kemur fram hvað margir hafa aðgang að læstum skápum. Að taka afrit, jafnvel mörg, eykur möguleika á trúnaðarbroti. Því fleiri afrit, því meiri hætta á að eitthvað þeirra fari í umferð. Enginn rekjanleiki hefur verið í skjalavinnslu, einungis málaskrá. Flokkur fólksins leitaði til sérfræðings í þessu máli og er óttast að ef verið er að nota Microsoft 365 umhverfið þá sé ekki kveikt á rekjanleikastillingum til fulls (í Microsoft Purview). Einnig að enginn sé að hafa umsjón með svokölluðu „‘data governance“ hjá borginni og fyrir vikið getur hvaða starfsmaður sem er notað hvaða tæki og tölvu sem er til að tengjast og sækja sér afrit af gögnum borgarinnar úr 365 umhverfinu.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð íbúaráðs Breiðholts frá 3. apríl 2024. MSS24010010. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 1. lið fundargerðarinnar:

Lengi hefur verið ljóst að aðstaða strætisvagnafarþega í Mjódd er algjörlega óviðunandi. Flokkur fólksins studdi tillögu meirihlutans á sínum tíma um að finna ábyrgan rekstraraðila til að reka skiptistöðina. Það hefur ekki gengið og því þarf að leita annarra lausna. Ófremdarástand hefur ríkt í skiptistöðinni í Mjóddinni. Opnunartími hennar verður að vera sá sami og aksturstími vagnanna. Mikilvægt er að farþegar hafi ávallt skjól frá veðri og vindum á meðan beðið er eftir vagni. Huga þarf einnig mun betur að þrifum salerna og á staðnum verður að vera öryggisvörður á vakt. Einnig þarf að stórbæta upplýsingagjöf á staðnum og taka sérstakt tillit til þeirra sem ekki tala íslensku. Það er í raun óskiljanlegt að Reykjavíkurborg hafi leyft þessu ófremdarástandi að viðgangast eins lengi og raun ber vitni. Tillögur til úrbóta hafa einfaldlega verið of máttlausar til þess. Flokkur fólksins fagnar framtaki íbúaráðs Breiðholts með því að leggja fram bókun um málið.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagðar fram fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 11. og 15. mars 2024. MSS24010030. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 3. lið fundargerðarinnar frá 15. mars:

Framkvæmdastjóri fór yfir yfirlit yfir öryggismál hjá Strætó. Fulltrúi Flokks fólksins hefði haft áhuga á að sjá þetta yfirlit. Hér er um stórt áhyggjumál að ræða enda hafa fregnir borist af árásum á fólk og þar með talið börn í strætó. Nauðsynlegt er að koma upp öryggismyndavélum í vagnana. Nýlega réðust tveir ungir drengi á þann þriðja í strætisvagni. Engar reglur eru til um myndatökur eða myndbirtingar úr vögnum Strætó. Svona getur þetta ekki gengið. Tilvikum hefur fjölgað og bregðast þarf við. Ekki dugir að gefa viðvaranir. Flokkur fólksins hefur bent á vaxandi ofbeldi meðal ungmenna og auknum vopnaburði, t.d. hnífa. Lagt hefur verið til að Reykjavíkurborg taki þessi mál af meiri alvöru en lítið hefur verið gert í þeim málum. Þegar svona mál koma upp hefur gjarnan fylgt fréttinni að framkvæmdastjóri Strætó viti ekki af tilvikinu. Vísað hefur verið í ákveðið verklag sem ekki liggur fyrir hvernig lítur út.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 10. apríl 2024. 8. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS24010031. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 17. lið fundargerðarinnar:

Tillaga Flokks fólksins gekk út á að samin verði reglugerð um sektir eða önnur viðurlög ef reglum á skotæfingasvæðinu er ekki framfylgt. Undrast er hve langt er gengið af hálfu borgarinnar til að skotvellirnir verði áfram í Álfsnesi og það á kostnað íbúa, 130.000 göngumanna árlega á Esjuna, kajaksiglingafólks, hestamanna og annars útivistarfólks. Treyst er á að farið verði eftir lögum og reglum en það vantar að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur sinni og sjái til að fyrirmælum sé fylgt. Það eru allskonar ákvæði í lögunum sem Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur getur nýtt sér, en gerir ekki. Það bjargar engu að bæta við reglum eða sektum þegar enginn er til að sinna eftirlitinu. Dæmi um vanefndir á starfsleyfum: Skotfélögin eiga að setja auðhreinsalegt yfirborðsefni á vellina, það hefur aldrei verið gert. Jarðvegsmengun er líklega veruleg (þungmálmar, blý) sbr. allur sá kostnaður sem borgin bar af því að fjarlægja mengaðan jarðveg af gamla vellinum í Leirdal (sem enginn veit hvar á að farga). Hljóðmælingar sem gerðar hafa verið af Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur eru vægast sagt ótrúverðugar, mikið misræmi er í mælingum allt frá árinu 2006. Fyrir liggja skýrslur Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur þar sem hljóðið mælist frá 45 db upp í 100 db. Engar alvöru hljóðmælingar hafa verið á þessu svæði.

 

Ný mál Flokks fólksins

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu ásamt greinargerð um að víkja frá því að stytta opnunartíma Laugardalslaugar:

Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að hætt verði við að stytta opnunartíma Laugardagslaugar enda hér um mikilvægan vettvang að ræða bæði til að hreyfa sig og að njóta samverustunda, ekki síst samverustunda unglinganna okkar. Nýlega var opnunartíminn styttur og er lauginni nú lokað kl. 21:00. Ákvörðunin er sögð vera í sparnaðarskyni. Ekki eru mörg ár síðan opið var til 23:00 um helgar og fyrir skömmu síðan var miðnæturopnun í tilraunaskyni einu sinni í viku slegin af þrátt fyrir miklar vinsældir. MSS24040085

Greinargerð

Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að hætt verði við að stytta opnunartíma Laugardagslaugar
enda hér um mikilvægan vettvang að ræða bæði til að hreyfa sig og að njóta samverustunda,
ekki síst samverustunda unglinganna okkar.Nýlega var opnunartíminn styttur og er lauginni nú
lokað kl 21:00. Ákvörðunin er sögð vera í sparnaðarskyni. Ekki eru mörg ár síðan opið var til
23:00 um helgar og fyrir skömmu síðan var miðnætur tilrauna opnun einu sinni í viku slegin af
þrátt fyrir miklar vinsældir.

 

Fyrirspurn Fulltrúa Flokks fólksins um skráningarfrest og hvort stuðningur fylgi börnum sem eru með greiningu m.a. vegna þroskafrávika eða annarra raskana:

Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um fyrirkomulag sumarfrístundar hjá Reykjavíkurborg. Óskað er upplýsinga um skráningarfrest og hvort stuðningur fylgi börnum sem eru með greiningu m.a. vegna þroskafrávika eða annarra raskana. Einnig er óskað upplýsinga um hvort tekið er tillit til aðstæðna einstæðra foreldra við skráningu og hvort börnunum sé boðið upp á máltíðir í sumarfrístundinni. MSS24040090.

Greinargerð

Borgarfulltrúar hafa fengið sent bréf frá áhyggjufullu foreldri. Áhyggjur foreldris lúta að óánægju
með fyrirkomulag sumarfrístundar fyrir árgang barna fædd 2018 og eiga að byrja í grunnskóla
í haust. Vonast er eftir skjótum svörum svo foreldrar þurfi ekki að búa við óvissu vegna
sumarfrístundar barna sinna.