Mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð 13. apríl 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um aðgengisstefnu Reykjavíkurborgar, sbr. 9. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 22. september 2023. Jafnframt er lögð fram umsögn aðgengis- og samráðsnefndar dags. 16. mars 2023. MSS22090063

Flokkur fólksins lagði til að Aðgengisstefna Reykjavíkurborgar til 2030 verið kynnt  innan kerfis borgarinnar, svo sem í ráðum, deildum og stofnunum hennar.Jafnframt að hún verði kynnt fyrir borgarbúum? Í umsögn með tillögunni kemur fram að aðgengis og samráðsnefnd hafi verið brugðist  vel við tillögunni því að á næstu vikum er fyrirhugað að kynna Aðgengisstefnuna í ráðum borgarinnar sem og verkefni aðgengis- og samráðsnefndar. Einnig verður lögð aukin áhersla á að upplýsa starfsfólk um hvernig hægt sé að skila ábendingum um hvar aðgengi sé ábótavant innan starfsstaða borgarinnar. Þegar Flokkur fólksins lagði fram þessa tillögu var Aðgengisstefnan ekki aðgengileg á vef borgarinnar.  Nú er stefnan komin á ytri vef borgarinnar svo borgarbúar geta kynnt sér stefnuna þar. Það má því segja að brugðist hafi verið vel við þessari tillögu hjá aðgengis og samráðsnefnd.

Samþykkt að vísa tillögunni frá með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um mannréttindakaffi, sbr.3. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 9. mars 2023.
Flokkur fólksins leggur til að mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð stofni til mannréttindakaffis með svipuðu sniði og velferðarráð heldur velferðarkaffi. Fulltrúi Flokks fólksins situr í velferðarráði og hefur því mætt í velferðarkaffi og finnst slíkir fundir afar gagnlegir. Mannréttindaráð gæti boðið ýmsum hagsmunasamtökum og minnihlutahópum á slíka fundi til að heyra frá fyrstu hendi hvað brennur á þeim. Ráðið tekur jákvætt í þessa hugmynd Flokks fólksins.

Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata, gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Flokks fólksins og Sósíalistaflokks Íslands. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.

Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

Tillagan er góðra gjalda verð og hefur Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð fullan hug á því að koma henni í framkvæmd í einhverri mynd. Álitamál er hins vegar um hvort breyta þurfi samþykktum ráðsins og eins hversu oft sé rétt að halda slíkt mannréttindakaffi.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um málþing um mannréttindi fatlaðs fólks, sbr. 4. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 9. mars 2023.

Samþykkt að vísa tillögunni til meðferðar aðgengis- og samráðsnefndar.

Flokkur fólksins lagði til að mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð haldi málþing um mannréttindi fatlaðs fólks. Alltof oft eru mannréttindi brotin á fötluðu fólki. Flokkur fólksins vill með þessari tillögu um málþing ná fram samtali milli grasrótarinnar og mannréttindaráðs um stöðu mála og hvað sé til ráða. Fólkið veit best hvar skóinn kreppir og því mikilvægt að heyra milliliðalaust í þeim. Tillögunni er vísað til Aðgengis- og samráðsnefndar.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer umræða um samkomulag Reykjavíkurborgar um öryggismyndavélar.
Samþykkt að vísa samkomulaginu til umsagnar mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu og til persónuverndarfulltrúa Reykjavíkurborgar. 

Fulltrúi Flokks fólksins er sáttur við þetta samkomulag enda tilbúinn að ganga býsna langt til að tryggja öryggi borgaranna og gesti borgarinnar. Flokkur fólksins hefur viljað sjá slíkar myndavélar þar sem börn stunda nám og leik, t.d. á skilgreindum leiksvæðum barna. Það er þekkt að þeir sem vilja skaða börn leita iðulega á staði og á svæði sem finna má börn. Börnin í borginni verða að geta verið örugg á leiksvæðum. Í Reykjavíkurborg eru hvergi myndavélar á leiksvæðum barna svo vitað sé. Þetta á jafnt við um leiksvæði sem eru eldri sem og nýuppgerð. Það hefur færst í vöxt að stofnanir grípi til þess að setja upp öryggismyndavélar og er það ekki að ástæðulausu. Vissulega kemur myndavél ekki í veg fyrir að glæpur sé framinn en myndavél hefur fælingarmátt og gerist eitthvað er hægt að skoða atburðarás í myndavél og hver var aðili/aðilar í málinu. Mörg dæmi eru um að öryggismyndavélar hafi komið að mjög góðu gagni við að upplýsa mál.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer umræða um drög að úttekt á stöðu ofbeldisvarnarmála Reykjavíkurborgar.

Til umfjöllunar er úttekt á stöðu ofbeldisvarnarmála hjá Reykjavíkurborg. Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð samþykkti að láta framkvæma úttektina til að fá heildstæða sýn á stöðu ofbeldisvarna. Kristín A. Hjálmarsdóttur sá um framkvæmdina. Það má með sanni segja að úttektin sé víðfeðm því farið er yfir aðgerðaráætlun og verkefni sem eru í gangi í ofbeldisvarnarmálum hjá borginni. Almennt er viðhorf til áætlunarinnar jákvætt en óskir um aukið samráð við ábyrgðaraðila er einkennandi þema hjá sviðunum. Fram kemur að það sé skortur á tölulegum gögnum og engin dæmi eru um að mælikvarðar á árangur séu tilgreindir. Tvö verkefni voru sérstaklega tiltekin vegna góðs árangurs en það eru verkefnin Saman gegn ofbeldi og Jafnréttisskólinn. Flokkur fólksins tekur undir með skýrsluhöfundi um að það sé brýnt að efla Jafnréttisskólann og fjölga starfsfólki. Það vakti athygli fulltrúa Flokks fólksins hversu mörg verkefni eru óframkvæmanleg vegna tækniörðuleika. Torgið og atvikaskráningakerfið eru dæmi um slíkt. Sem dæmi er búið að hanna fræðslu og taka upp fyrirlestra fyrir fagfólk um fatlað fólk og ofbeldi.Torgið er ekki komið í gagnið og því ekki hægt að nýta þessa fræðslu. Í úttektinni eru margar tillögur um úrbætur. Flokkur fólksins telur mikilvægt að Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð taki þessar tillögur til rækilegrar skoðunar