Bókun Flokks fólksins undir liðnum:Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 9. september 2022, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 7. september 2022 á breytingu á deiliskipulagi athafnasvæðisins Esjumela á Kjalarnesi vegna Kalksléttu 1 og Koparsléttu 22:
Íbúar í Kollafirði, næstu nágrannar svæðis AT5-b, gerðu athugasemdir við auglýsta breytingu á deiliskipulagi um Kalksléttu 1 og Koparsléttu 22. Athugasemdir ganga út á villandi orðalag. Auglýst er að um óverulega breytingu sé að ræða og segir að með því sé borgin að ganga gegn sínu eigin samþykkta skipulagi. Á svæði AT5a-b má einnig gera ráð fyrir starfsemi sem fellur undir iðnaðarsvæði, sbr. skipulagsreglugerð, en tilgreina þarf þá starfsemi sérstaklega í deiliskipulagi að undangengnu umhverfismati breytingarinnar sem horfir sérstaklega til viðkomandi starfsemi. Breytingin sem hér um ræðir ætti því að fara í deiliskipulagsferli og umhverfismat. Lóðir sem hafa verið sameinaðar og þótt þær séu í notkun sama rekstraraðila breytir það ekki þeirri staðreynd að Kalkslétta 1 er á skilgreindu iðnaðarsvæði en Koparslétta 22 er á skilgreindu athafnasvæði. Starfsleyfi Umhverfisstofnunar til Íslenska gámafélagsins á Koparsléttu 22 var fellt úr gildi vegna skipulagsins UUA 153/2021. Flokki fólksins finnst að skipulagsyfirvöld eigi að taka þessar athugasemdir sem snúa að deiliskipulagsbreytingum til greina. Skilja þarf að með þessu er smám saman verið að breyta athafnasvæðinu í iðnaðarsvæði sem enginn vill hafa í sínu nærumhverfi og við hlið stærsta útivistarsvæðis borgarinnar. Íslenska gámafélagið er nú þegar með um 5 hektara iðnaðarsvæði á Kalksléttu 1.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að meðfylgjandi gjaldskrár heilbrigðis- og mengunareftirlits verði hækkaðar um 4,5% að jafnaði. Breytingin taki gildi um leið og birting hefur farið fram í Stjórnartíðindum í samræmi við lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og 93/1995 um matvæli með síðari breytingum:
Það er hart í ári fyrir fjölmarga. Þeir hópar sem hafa það erfitt hafa sennilega aldrei haft það eins erfitt og núna. Ójöfnuður hefur aukist mikið og bilið milli ríkra og fátækra hefur aldrei verið eins stórt þrátt fyrir að jafnaðarflokkur eins og Samfylking hafi verið meira og minna við völd í tvo áratugi. 4,5% hækkun gjaldskrár er mikil hækkun. Svo mikil hækkun á þjónustu kemur verst niður á þeim sem minnst hafa milli handanna. Verðbólga hefur aukist mikið sem rekja má einna helst til vanda á húsnæðismarkaði því ekki nóg hefur verið byggt. Ytri aðstæður koma líka til.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 13. september 2022, þar sem erindisbréf starfshóps um greiningu á tækifærum til haftengdrar upplifunar og útivistar fyrir almenning í Reykjavík er lagt fram til kynningar:
Fulltrúa Flokks fólksins finnst ánægjulegt að sjá að loksins er hugsað um fjörur, án þess að moka yfir þær með landfyllingu. En í gögnum segir að „strandlengja Reykjavíkur er dýrmæt eign okkar allra, bætt aðgengi að henni hefur í för með sér meiri möguleika til haftengdrar upplifunar og útivistar.“ Vonandi verður landfyllingum hætt hér með.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 7. september 2022, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 5. september 2022 á drögum að rekstrarleyfi fyrir leikskólann Regnbogann:
Hér er verið að leggja til breytingu á rekstrarleyfi leikskólans Regnbogans. Flokkur fólksins fagnar viðbót plássa í þeirri vegferð að hægt sé að innrita 12-18 mánaða börn. Tekið er undir umsögn foreldraráðs Regnbogans um að með því að veita Regnboganum framlag með börnum á aldrinum 12-18 mánaða líkt og í ungbarnaleikskólum er hægt að innrita börn á þessum aldri. Fulltrúi Flokks fólksins vill þó nefna það sem fram kemur í nýlegri skýrslu innri endurskoðunar um sjálfstætt starfandi leik- og grunnskóla. Í henni koma fram upplýsingar um leikskólann Regnbogann. Gerðar eru athugasemdir og er m.a. ein athugasemd appelsínugul sem þýðir í áhættuflokkun meðal áhætta. Segir ennfremur um þennan leikskóla í skýrslunni: „Rekstraryfirlit á einu blaði, án efnahagsreiknings. Ófullnægjandi skil á ársreikningi. Fasteign í eigu Dignitas ehf: Tveir hluthafar samkvæmt fyrirtækjaskrá, en eru ekki skráðir á meðal stjórnenda eða starfsfólks.“ Flokkur fólksins veltir því fyrir sér hvort áform eru um að bæta úr þessu og hvort því verði fylgt eftir.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 7. september 2022, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 5. september 2022 á tillögu um framlag til Gaudium ehf. vegna vistunar reykvískra barna í leikskólanum Regnboganum:
Flokkur fólksins telur að endurskoða þurfi samninga og fjárframlög til sjálfstætt starfandi leik- og grunnskóla í ljósi nýlegrar skýrslu innri endurskoðunar. Setja þarf skýran ramma um rekstur þessara leikskóla með tilheyrandi eftirliti. Setja þarf sektarákvæði sé skilyrðum ekki fylgt. Flokkur fólksins bókaði í borgarstjórn 6. september sl. eftirfarandi: Flokkur fólksins harmar niðurstöðu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um sjálfstætt starfandi leik- og grunnskóla. Flokkur fólksins getur ekki stutt arðgreiðslur án eftirlits og skilyrða. Vissulega er það gott að rekstrarform leikskóla sé fjölbreytt en upplýsingar úr skýrslu innri endurskoðunar skapa tortryggni og vekja upp margar spurningar. Við verðum að spyrja okkur að því hvort skattfé Reykvíkinga sé vel varið í arðgreiðslur til einkaaðila. Eins og fram kemur í skýrslu innri endurskoðunar eru gerðar alvarlegar athugasemdir í tengslum við rýni ársreikninga hjá sumum sjálfstætt starfandi leikskólum. Það er hætta á að starfsemin líði fyrir þetta. Tilhneiging gæti verið til að spara of mikið til að borga sér arð. Í skýrslunni kemur fram að engar kvaðir af hálfu Reykjavíkurborgar séu um arðgreiðslur eða hvernig rekstrarafgangur sem rekja má til opinberra framlaga skuli nýttur.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 7. september 2022, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 5. september 2022 á tillögu um framlag skóla- og frístundasviðs til LFA ehf. vegna vistunar reykvískra barna í leikskólunum Korpukoti og Fossakoti, ásamt fylgiskjölum:
Flokkur fólksins telur að endurskoða þurfi samninga og fjárframlög til sjálfstætt starfandi leik- og grunnskóla í ljósi nýlegrar skýrslu innri endurskoðunar. Setja þarf skýran ramma um rekstur þessara leikskóla með tilheyrandi eftirliti. Setja þarf sektarákvæði sé skilyrðum ekki fylgt. Flokkur fólksins bókaði í borgarstjórn 6. september sl. eftirfarandi: Flokkur fólksins harmar niðurstöðu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um sjálfstætt starfandi leik- og grunnskóla. Flokkur fólksins getur ekki stutt arðgreiðslur án eftirlits og skilyrða. Vissulega er það gott að rekstrarform leikskóla sé fjölbreytt en upplýsingar úr skýrslu innri endurskoðunar skapa tortryggni og vekja upp margar spurningar. Við verðum að spyrja okkur að því hvort skattfé Reykvíkinga sé vel varið í arðgreiðslur til einkaaðila. Eins og fram kemur í skýrslu innri endurskoðunar eru gerðar alvarlegar athugasemdir í tengslum við rýni ársreikninga hjá sumum sjálfstætt starfandi leikskólum. Það er hætta á að starfsemin líði fyrir þetta. Tilhneiging gæti verið til að spara of mikið til að borga sér arð. Í skýrslunni kemur fram að engar kvaðir af hálfu Reykjavíkurborgar séu um arðgreiðslur eða hvernig rekstrarafgangur sem rekja má til opinberra framlaga skuli nýttur.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 7. september 2022, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 5. september 2022 á rekstrarleyfi fyrir sameinaða leikskólann Fossakot og Korpukot:
Lögð eru fram drög að rekstrarleyfi – Fossakot/Korpukot. Flokkur fólksins fagnar því að rekstrarform leikskóla sé fjölbreytt og tekur undir umsögn foreldraráðs um að styðja við fjölgun ungbarnadeilda leikskólans. Fulltrúi Flokks fólksins vill engu að síður, undir þessum lið, tala um það sem fram kemur í nýlegri skýrslu innri endurskoðunar um sjálfstætt starfandi leik- og grunnskóla. Sú skýrsla hefur ekki fengið nægjanlega umræðu í borgarumræðunni. Í henni komu fram upplýsingar um leikskólann sem hér um ræðir sem eru eftirfarandi: Gjaldskrá eins hjá báðum (sami rekstraraðili). Mánaðargjald vegna barna 18 mánaða og yngri er hærra en heimilt er. Hámarksstuðull sem á að vera 2,15 er á bilinu 2,3 upp í 3,2, mismunandi eftir dvalartíma og flokki. Gjaldskráin er því frá 7.206-21.307 kr. hærri á mánuði en heimilt er. Áhættuflokkun er rauð sem þýðir mikil áhætta og ábending er um að athuga eigi með endurgreiðslu. Þetta er áhyggjuefni.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum fundargerð íbúaráðs Breiðholts frá 7. september 2022:
Foreldrar í Leikni hafa lengi vonast til að börnin geti æft inni á veturna í Austurberginu þar sem Fellaskóli, núverandi innanhúsaðstaða, er ekki nægilega oft laus. Undirskriftarlisti foreldra var afhentur borgarstjóra rétt fyrir kosningar. Svo virðist sem náðst hafi lending um íþróttahúsið við Austurberg. Komið hefur verið til móts við fjölgun æfingatíma hjá íþróttafélaginu Leikni eins og kallað var eftir af hálfu íbúa. Það var orðið afar brýnt að íþróttafélagið Leiknir fengi aukinn aðgang fyrir starfsemi sína í íþróttahúsinu í Austurbergi núna í haust og almennt þarf að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar fyrir börn í efra-Breiðholti. Flokkur fólksins hefur áður látið sig málefni Leiknis varða sem er lítið félag sem berst í bökkum í hverfi sem er mannmargt og þar sem býr einn mesti fjölbreytileiki mannlífsins. Í þessu hverfi eru innflytjendur hlutfallslega flestir og í þessu hverfi er frístundakortið því miður langminnst nýtt.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum fundargerð íbúaráðs Kjalarness frá 8. september 2022:
Fulltrúa Flokks fólksins finnst þessi fundargerð íbúaráðs Kjalarness afar rýr. Vel kann að vera að hér sé um byrjunarörðugleika að ræða t.d. ef ráðsmenn eru flestir nýir. Það er mjög mikilvægt að nýtt íbúaráð fari af stað af krafti enda er af nógu að taka í þessu hverfi sem þarf að bóka og/eða álykta um. Gæta þarf að lýðræðinu, auglýsa fundina vel og sjá til þess að íbúar hafi aðgang að því. Íbúaráðin þurfa að vera í góðum tengslum við íbúa, hlusta á þá og fjalla um athugasemdir þeirra. Fulltrúi Flokks fólksins vill nefna mál sem hefur reynst íbúum afar þungt. Baráttan við Reykjavíkurborg um skotvellina, þ.e. að koma þeim á brott, og skipulagsmálin á Esjumelum er eitt af þessum málum sem valdið hefur íbúum vanlíðan. Íbúaráðin verða að virka, þau eru dýr, launakostnaður hár. Ef þau eru ekki að skila tilætluðu hlutverki þarf að endurskoða tilgang og markmið þeirra.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 14. september 2022, liður 4:
Liður 4; Landakotsreitur/Öldugata: Því hefur verið lofað að hlusta eigi á borgarbúa, hafa samráð. Umfram allt mega skipulagsyfirvöld ekki valta yfir borgarbúa. Komið hafa fram athugasemdir frá íbúum á Öldugötu 25 um að grenndargámar í hverfinu verði ekki í opnu rými, tengdir þjónustukjörnum, heldur verði staðsettir við götu. Ekki er tekið á því hvernig fólk, sem kemur akandi með sorp, geti lagt bílum sínum meðan það flokkar í ílátin. Við blasir, miðað við umferðarþunga, að raunin verður sú að fólk stöðvar bifreiðar sínar í götunni, meðan það athafnar sig við gámana eins og segir í athugasemdum. Börnum hefur fjölgað mikið í hverfinu á undanförnum árum. Mörg þessara barna sækja leikskóla við Öldugötu eða Landakotsskóla. Með þessari tillögu er því almennu öryggi og umferðaröryggi gangandi og akandi vegfarenda stefnt í hættu, þvert á það sem fullyrt er í kynningargögnum um tillöguna. Liður 9, friðlýsing Blikastaðakróar: Fagna ber að friðlýsa eigi fjörur og nágrenni þeirra sem eru í Blikastaðakró. En eins og kunnugt er hafa borgaryfirvöld gengið langt í að eyðileggja náttúrulegar fjörur, en markmið friðlýsingar svæðisins er að viðhalda og vernda til framtíðar náttúrulegt ástand mikilvægs búsvæðis fugla og sjávarhryggleysingja. Þetta mætti oft hafa í huga.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 9 mál:
Embættisafgreiðslur, liður 5, staðan í samstarfi sveitarfélaga í stafrænni umbreytingu. Í yfirliti embættisafgreiðslna er skjal sem ber nafnið „Viltu vita stöðuna í samstarfi sveitarfélaga í stafrænni umbreytingu?“. Í skjalinu kennir ýmissa grasa og í umfjöllun um stafræn mál er lögð áhersla á að sveitarfélög einfaldi og samræmi leyfainnkaup og að skynsamlegra sé að fjárfesta í skýrri og samræmdri stafrænni stefnu í stað þess að fjárfesta í dýrum hugbúnaðarleyfum sem víða er ekki þörf á að nota. Þetta hljómar skynsamlega. Einnig segir að huga þurfi að samvirkni kerfa við málakerfi sem notast á við. Sameinast á um sem mest, t.d. stafræna leiðtoga, og áhersla er á miðlæga þjónustukjarna. Flokki fólksins finnst hann ekki hafa séð umræðu eins og þessa í Reykjavík. Vikið er í þessu sama skjali að nokkrum verkefnum þar sem markmiðið er að hanna sameiginlegan grunn og kaupa sameiginlegar lausnir sem eru aðlagaðar að hverju sveitarfélagi. Er Reykjavík með öðrum sveitarfélögum í þessari vegferð? Eða er Reykjavík bara á sinni eigin vegferð?
Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um að hætt verði við að áform um að leggja niður skólamunastofu Austurbæjar:
Til stendur að leggja niður skólamunastofu Austurbæjarskóla, sem varðveitir sögu skólans með hinum ýmsu munum. Hollvinafélag Austurbæjarskóla hefur barist fyrir að halda stofunni lifandi. Lagt er til að hætt verði við þessi áform og ákvörðunin endurskoðuð. Hér er um að ræða vanhugsað skref sem einkennist af geðþóttaákvörðun eftir því sem séð verður. Þess utan er þetta í hrópandi mótsögn við auglýsingu um stöðu skólastjóra Austurbæjarskóla. Þar stóð einmitt að leitað væri að einstaklingi sem gæti leitt starfið inn í framtíðina með virðingu fyrir ríkri menningarlegri arfleifð. Hverju má það sæta að skólastjórinn skuli ekki sporna við fæti hér?
Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs. SFS22060127
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um hvað verður um muni Skólamunastofu Austurbæjarskóla þegar loka á Skólamunastofunni:
Til stendur þvert gegn vilja fjölda manns að loka skólamunastofu Austurbæjarskóla. Fulltrúi Flokks fólksins spyr hvert munirnir eigi að fara. Munu þeir fá stað þar sem hægt verður að sýna þá? Munirnir sem þarna eru varðveittir, eru menningarverðmæti. Það yrði afar sorglegt ef þeir lentu ofan í kössum og geymslu einhvers staðar úti í bæ á vegum borgarinnar. Þar verða þeir engum til ánægju og gleymast bara. Fulltrúi Flokks fólksins vill benda borgaryfirvöldum á að skólamunastofan raungerir margt sem nefnt er í menningarstefnu borgarinnar. Það verður ekki liðið að sópa þessum merkilegu munum ofan í kassa þar sem þeir gleymast.
Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs. SFS22060127
Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins að gera þarfagreiningu á húsnæði Austurbæjarskólans:
Fulltrúi Flokks fólksins hefur rætt við aðila sem þekkja vel til Austurbæjarskóla. Húsnæðið er illa nýtt. Ein kennslustofa er notuð eina stund á viku. Námsráðgjafinn hefur heila stofu fyrir sig. Nýting á bíósalnum er lítil. Ekki verður séð að Spennistöðin sé nýtt að einhverju ráði. Risið sem nú á að fá annað hlutverk en að varðveita skólamuni spilar nú stórt hlutverk skyndilega. En risið er versti kosturinn í húsinu að mati þeirra sem þekkja til, ef leita þarf að stað fyrir eitthvað nýtt í skólastarfinu. Íbúasamtök miðborgarinnar og fleiri aðilar hafa ályktað gegn því að risið verði tekið undir kennslu. Þetta eru m.a. rök fyrir því að fulltrúi Flokks fólksins telur að það sé mikilvægt að þarfagreina húsnæði Austurbæjarskóla.
Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs. SFS22060127
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins að fá upplýsingar um leikskólann í ljósi frétta um vanlíðan starfsfólks og meintan slæman aðbúnað barna í skólanum:
Flokkur fólksins óskar upplýsinga um leikskólann Sælukot sem er einkarekinn leikskóli. Reykjavíkurborg gerir samninga við einkarekna leikskóla sem greiða sér arð á sama tíma og þeir þiggja fé frá borginni. Nýlega kom út skýrsla innri endurskoðunar um sjálfstætt starfandi leikskóla. Innri endurskoðun birtir í skýrslunni ábendingar til nokkurra leikskóla út frá ákveðnu áhættumati. Í skýrslunni kemur fram að mánaðargjald vegna barna 18 mánaða og yngri er hærra en heimilt er hjá Sælukoti og að hámarksstuðull sem á að vera 2,15 er á bilinu 2,37-2.63, mismunandi eftir dvalartíma og flokki. Gjaldskráin er því frá 6.764 kr. til 9.312 kr. hærri á mánuði en heimilt er. Áhættuflokkun er rauð sem þýðir mikil áhætta og ábending er um að athuga eigi með endurgreiðslu. Fulltrúi Flokks fólksins óskar nánari upplýsinga um þennan leikskóla. Í hversu mörg ár hafa stjórnendur greitt sér arð og hversu háan? Hefur verið gerð úttekt á leikskólastarfinu, þ.e. hvort það standist kröfur sem gerðar eru til aðstæðna þar sem börn dvelja daglangt 5 daga vikunnar? Hefur verið gerð ánægjukönnun meðal foreldra? Hvert er hlutfall fagmenntaðra starfmanna? Hvernig er mönnun háttað? (Síðustu 2-3 ár). Hvernig er almennur aðbúnaður barna og starfsfólks? Starfsmannavelta? Hvernig líður börnunum?
Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs. MSS22090103
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins að fá upplýsingar um niðurstöður starfsánægjukannana undanfarin ár:
Fulltrúi Flokks fólksins hefur leitað álits hjá þeim sem þekkja til Austurbæjarskóla og starfsemi hans. Í ljós kemur að starfsmannavelta er mikil. Niðurstöður starfsmannakannana og skólapúlsins hafa ekki verið nægjanlega sýnilegar. Flokkur fólksins óskar upplýsinga um niðurstöður starfsánægjukannana undanfarin ár. Vitað er til þess að skóla- og frístundasvið hefur ekki brugðist við kvörtunum kennara og starfsfólks. Annað sem hefur verið upplýst um er að ekki hefur verið framkvæmt ytra mat á Austurbæjarskólanum í nokkur ár. Starfsmannakannanir eru nauðsynlegar en gagnast ekki ef þær eru ekki nægjanlega sýnilegar. Niðurstöður slíkra kannana sýna m.a. hvernig lýðræðinu er háttað í skólanum og hvort fagmennska ríki þegar teknar eru ákvarðanir. Er t.d. hlustað á skólaráðið og er það haft með í ráðum t.d. þegar ákveðið var að rýma risið og hefja tölvunám þar?
Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs. MSS22090102