Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir er oddviti Flokks fólksins í borgarstjórn Reykjavíkur kjörtímabilið 2018-2022.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir er löggiltur sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði. Hún er með kennsluréttindi bæði á grunn- og framhaldsskólastigi. Kolbrún hefur haldið fyrirlestra um félags- og sálfræðileg málefni um árabil. Fyrir um það bil 15 árum fór hún að gera eineltismálum sérstaklega skil. Eftir að hafa starfað í tíu ár sem skólasálfræðingur hafa eineltismálin orðið henni æ hugleiknari enda afleiðingar eineltis geigvænlegar. Kolbrún hefur haldið fjölda fyrirlestra um eineltismáli fyrir börn, foreldra, íþrótta og æslulýðsfélög og vinnustaði. Hún er höfundur bókar um einelti, EKKI MEIR en bókin kom út hjá Skólavefnum árið 2012. Kolbrún hefur skrifað fjölda pistla og greina um eineltismál en einnig um ýmis sálfræðileg efni sem birst hafa víða sem og haldið úti um tveggja ára skeið sjónvarpsþáttum á ÍNN sem hétu Í nærveru sálar.
Hér í vefnum Kolbrunbaldurs.is er að finna upplýsingar um þá sálfræðiþjónustu sem hún veitir og fyrirlestra sem í boði eru. Hér er einnig í boði viðamikil fræðsla um aðgerðir gegn einelti, forvarnir og verkferla við úrvinnslu eineltismála, auk greina og pistla um þennan málaflokk og sýnishorn af viðbragðsáætlun og tilkynningareyðublaði fyrir skóla, félög, stofnanir og fyrirtæki.
SKOÐA LÍKA Kynntu þér líka ferilskrá Kolbrúnar
FRÆÐSLUERINDI Lestu um þau fræðsluerindi sem í boði eru
STAÐSETNING STOFU Sjá nánar um staðsetningu og tímapantanir