Úti í kuldanum
Flokkur fólksins hefur barist fyrir hóp hjólhýsabúa með kjafti og klóm frá 2018. Baráttan gengur út á að finna þeim hentugt svæði fyrir hjólhýsin sín sem eru þeirra heimili í borgarlandinu. Lengi vel var hópurinn í Laugardal en var flæmdur þaðan. Í lok sumars var málið til umræðu í borgarráði að beiðni Flokks fólksins í kjölfar erindis hjólhýsabúa sem staðsettir
Þöglar raddir
Flokkur fólksins stendur fyrir margt en megináhersla er á að ekkert þjóðfélag getur verið án heimila. Heimilið er í raun grunnforsenda öryggis. Við búum á Íslandi í samfélagi sem þýðir að við sem þjóð erum í raun ein stór fjölskylda. Ef einhver þegn glímir við vanda sem hann ræður af einhverjum orsökum ekki við að leysa úr, komum við hin sem erum á betri
Skyldan við ungt fólk og framtíðina – Alþingiskosningar 2024
Á Íslandi stunda um tugir þúsunda nemenda nám á framhaldsskólastigi. Sumir í þessum hópi glíma við andlegar áskoranir í sínu lífi á borð við streitu og depurð. Að mati Flokks fólksins hefur þörfin aldrei verið meiri en núna að grípa inn í og veita ráðgjöf, stuðning eða meðferð eftir því sem við á hverju sinni. Ef andleg vanlíðan er ekki
Niðurskurðarhnífnum beitt á skólana
Allt of gróflega er verið að skera niður, draga úr þjónustu við börn eins og rakið er í mörgum liðum í yfirliti frá skóla- og frístundasviði í Greinargerð fagsviða sem birt var með í Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025. Brúa á 1,1 ma.kr. halla sem er fullkomlega óraunhæft ef ekki á að koma illa niður á þjónustu við börn. Óumflýjanlegt er
Þegar síminn er besti vinur þinn
Forvarnardagurinn var í ár haldinn í nítjánda sinn og hefur hann verið útvíkkaður í forvarnarmánuðinn október. Forvarnir eru alltaf jafn mikilvægar sama hver árstíminn er. Í hugtakinu felst að sýna fyrirhyggju, hugsa fram í tímann og gera ráðstafanir til að sporna við óvæntri vá. Ef horft er til barna og ungmenna er það markmið okkar flestra að stuðla að því
Árás á fátækasta fólkið í borginni
Félagsbústaðir vilja hækka leigu um 6,5% umfram vísitölu neysluverðs. Félagið leigir út húsnæði til fólks undir ákveðnum tekju- og eignarmörkum. Flokkur fólksins í borginni hefur mótmælt þessu harðlega strax á umsagnarferli. Ekkert lát er á árásum á fátækasta fólkið í borginni. Fulltrúi Flokks fólksins í velferðarráði styður ekki að leiga verði hækkuð og það án nokkurra mótvægisaðgerða. Ef þarf að
Netið er eins og stórborg
Langflestir unglingar verja umtalsverðum tíma á samfélagsmiðlum í gegnum snjallsíma sína. Flestir foreldrar fylgjast vel með síma-, tölvu- og netnotkun barna sinna, að skjátími sé við hæfi og efnið í samræmi við aldur og þroska. Einhverjir foreldrar láta hvort tveggja afskipt, að hluta til eða öllu leyti. Færst hefur í aukana að börn niður í átta ára gömul hafi óheftan
Við erum of fljót að grípa til enskunnar
Umræða um íslensku, íslenskukennslu og þjálfun fólks af erlendum uppruna hefur verið tekin í borgarstjórn að frumkvæði borgarfulltrúa Flokks fólksins. Umræðan hefur m.a. snúist um hver sé ábyrgð Reykjavíkurborgar og hvað er hægt að gera betur sem borgarar? Móttaka barna og fullorðinna af erlendum uppruna er eitt stærsta verkefnið sem blasir við íslensku samfélagi. Innflytjendum hefur fjölgað mikið undanfarið í
Tölum íslensku
Því miður grípa allt of margir ósjálfrátt og án mikillar hugsunar til enskunnar þegar talað er við fólk af erlendum uppruna sem sest hefur hér að. Þar með er þjálfun viðmælandans í íslensku varpað fyrir róða. Þótt fólk eigi erfitt með að tjá sig á íslensku getur það í mörgum tilfellum skilið íslensku. Það kann að vera að margir séu
Er verið að bíða eftir barnamálaráðherra?
Fulltrúi Flokks fólksins hefur lagt inn fyrirspurnir til skóla- og frístundaráðs hvort verið sé að bíða eftir hvaða skref ráðherra barnamála taki í lestrarkennslumálum eða hvort borgin hyggist leggja fram sínar hugmyndir um frekari stuðning við lestrarnám barna með það að markmiði að auka lesskilning? Niðurstöður um slakan árangur liggja fyrir og hafa gert lengi. Óttast er að næsta útkoma
Það versta er að bíða og gera ekki neitt
Fulltrúi Flokks fólksins hefur lagt inn fyrirspurnir til Reykjavíkurborgar og skóla og frístundaráðs hvort verið sé að bíða eftir hvaða skref ráðherra barnamála taki í lestrarkennslumálum eða hvort sviðið ætli að leggja fram sínar hugmyndir um t.d. hvernig hægt er að styðja börn enn frekar í lestrarnámi með það að markmiði að auka lesskilning? Niðurstöður um slakan árangur liggja fyrir
Aðgerðarleysi getur haft alvarlegar afleiðingar
Alvarleg ofbeldistilvik áttu sér stað í miðborginni á menningarnótt þar sem eggvopnum var beitt með alvarlegum afleiðingum. Unglingadrykkja og neysla vímuefna var mikil sem og hópamyndanir. Það var einnig áberandi að unglingar voru án fylgdar fullorðinna. Menningarnótt var upphaflega hugsuð sem fjölskylduhátíð en í tímans rás hefur eðli hennar breyst, sérstaklega þegar líður á kvöld og nóttu. Þá eru fjölskyldur
Kveikjum áhugann – Kveikjum neistann
Flokkur fólksins í borgarstjórn hefur margsinnis lagt til við meirihlutann í Reykjavík og skólayfirvöld að taka inn þróunarverkefnið Kveikjum neistann þó ekki væri nema í tilraunaskyni en tillögum í þá átt hafa ávallt verið vísað á bug. Verkefnið Kveikjum neistann í Grunnskóla Vestmannaeyja hefur verið í gangi í þrjú ár. Niðurstöðurnar eru en og aftur jákvæðar en sérstaklega er horft
Reykjavík og Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna
Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins var lögfestur með lögum nr. 19/2013 og hefur hann lagagildi hér á landi og bein réttaráhrif. Reykjavíkurborg ber því að fara að ákvæðum sáttmálans við ákvörðunartökur og í athöfnum sínum. Á fundi borgarstjórnar 18. janúar 2022 lagði borgarfulltrúi Flokks fólksins fram tillögu um að skipaður verði stýrihópur sem greini og leggi mat á hvað
Uppbygging skóla í Laugardal – tvö ár farin til spillis
Á fundi borgarstjórnar í dag 11. júní verður umræða um framtíðarskipulag skóla í Laugardal. Í október 2022 samþykkti skóla- og frístundaráð Reykjavíkur að ganga í takt með íbúum hverfisins að fylgja svokallaðri sviðsmynd 1 úr skýrslu starfshóps um framtíðarskipan skóla- og frístundastarfs í Laugarnesi og Langholtshverfi. Sú sviðsmynd felur í sér að skólarnir þrír haldi sér í núverandi mynd og
Stund til að spjalla
Á fundi Landssambands eldri borgara fyrir skemmstu var m.a. rætt um að ofbeldi gegn eldra fólki hefði aukist. Slíkar fréttir valda okkur flestum óhug. Rannsóknarniðurstöður sýna að gerendur eru oftast einhverjir í innsta hring eða sá sem viðkomandi er háður og nýtur stuðnings frá. Aldraðir eru þess vegna ólíklegri til að tilkynna ofbeldið. Samtalið besta forvörnin Í vikunni sem leið
Fleiri lán – nú erlent lán
Afkoma A-hluta Reykjavíkurborgar á árinu 2023 er ennþá óásættanleg þó hún hafi aðeins skánað. Rekstrarreikningur er með 5.0 milljarða halla. Lausaskuldir hafa hækkað um 6,5 milljarða milli ára eða um 20%. Langtímaskuldir A-hluta hækka á milli ára um nær 15 milljarða eða um rúm 15% milli ára. Borgin hefur á undanförnum árum þurft að taka lán fyrir hluta rekstrarútgjalda, öllum
Flokkur fólksins mun ekki samþykkja að hækka leigu hjá Félagsbústöðum
Félagsbústaðir eru B-hluta fyrirtæki Reykjavíkurborgar og er óhagnaðardrifið félag. Viðskiptamódel Félagsbústaða gengur ekki upp miðað við núverandi forsendur sem er að rekstur félagsins skuli vera sjálfbær. Í umræðunni er að hækka leiguna. Félagsbústaðir standa ekki undir greiðslubyrði lána að óbreyttu. Það þarf atkvæði meirihluta fulltrúa í velferðarráði til að hækka leiguna hjá Félagsbústöðum. Flokkur fólksins sem á þar fulltrúa mun ekki samþykkja
Reykjavíkurtjörn og aðrar tjarnir í borgarlandinu
Flokkur fólksins hefur átt áheyrnarfulltrúa í umhverfis- og skipulagsráði í 6 ár og hefur þar látið til sín taka eins og í öðrum ráðum sem Flokkurinn á sæti í. Á nýafstöðnum borgarstjórnarfundi óskaði borgarfulltrúi Flokks fólksins eftir umræðu um tjarnir í borgarlandinu og umhirðu þeirra. Meðal þess sem Flokkur fólksins lagði áherslu á var að meirihlutinn myndi marka stefnu um
Endurskoða ber ákvörðun um niðurlagningu Borgarskjalasafns
Tillaga um lokun Borgarskjalasafns í sparnaðarskyni var samþykkt á fundi borgarstjórnar 7. mars 2023 með með ellefu atkvæðum gegn tíu. Í borgarstjórn 19. mars 2024 verður lögð fram tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins um að endurskoða ákvörðun um niðurlagningu Borgarskjalasafns. Nú liggja fyrir drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um opinber skjalasöfn í samráðsgátt stjórnvalda. Þar segir „að
„Startup-kúltúr“ í stafrænni vegferð Reykjavíkurborgar
Nú þegar Reykjavíkurborg er búin að eyða yfir 20 milljörðum í stafræna umbreytingu á vegum ÞON (þjónustu- og nýsköpunarsviðs) hefði þurft að staldra við og skoða hvað borgarbúar hafa raunverulega verið að fá fyrir peninginn í tilbúnum stafrænum lausnum. Vissulega hafa einhverjar stafrænar lausnir litið dagsins ljós síðustu ár en tilbúnar afurðir eru hins vegar ekki í neinu samhengi við
Hús fyrir Grindvíkinga
Í kjölfar eldgossins í Heimaey í Vestmannaeyjum 1973 flúðu nær allir íbúar eyjunnar upp á land. Þetta eldgos átti síðar eftir að hafa það í för með sér að hluti íbúa eyjarinnar snéru ekki aftur en fundu sér ný heimkynni til framtíðar. Eitt af því sem Íslendingar gerðu þá til að mæta bráðum húsnæðisvanda Eyjamanna var að fá Viðlagasjóð til
Heimilislausum í Reykjavík er ekki að fækka
Í Reykjavík eru 20 smáhýsi sem sett hafa verið upp á sex stöðum auk þriggja smáhýsa úti á Granda. Áætlað er að heildarkostnaður við hvert smáhús sé um 33 m.kr. Lóðaverð er núll. Á biðlista eftir smáhýsi eru um 100 manns. Stærsti hluti þeirra er fólk með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Eins og þeir muna sem fylgst hafa með þróun
Vaxandi fátækt og ójöfnuður í Reykjavík
Flokkur fólksins var stofnaður til að að berjast gegn fátækt. Það er bláköld staðreynd að fátækt og ójöfnuður hefur aukist í Reykjavík á vakt þessa og síðasta meirihluta. Færri áttu fyrir jólaútgjöldum nú en áður. Þetta kemur fram í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Þau tekjuminnstu eru líklegust til að ná ekki endum saman fjárhagslega og hlutfall þeirra hefur ekki verið jafn
Áhrif og afleiðingar lokana leikskóla vegna manneklu
Allmargir leikskólar í Reykjavík hafa þurft að loka heilu og hálfu dagana vegna manneklu. Oft hefur þetta verið án nokkurs fyrirvara, foreldrar jafnvel komnir með barnið í leikskólann þegar þeir eru beðnir að fara með það heim aftur. Einnig hafa verið skipulagðir skertir opnunartímar vegna manneklu. Svona hefur þetta gengið mánuðum saman og ekkert lát er á. Óskað var eftir
Borgarstjóraskiptin
Grein birt á visi 16. janúar 2024 Tillaga meirihlutans er eins og löngu er vitað að Einar Þorsteinsson verði næsti borgarstjóri. Auðvitað má spyrja hér til hvers að kjósa? Sú skipti sem hér um ræðir er innbyrðis ákvörðun meirihlutans, mál sem flokkur í minnihluta hefur ekkert um að segja eða gera. Jafnvel þótt allur minnihlutinn greiði atkvæði gegn Einari þá
Niðurskurðarhnífnum beitt á sundlaugar í Reykjavík
Undanfarin tvö ár hefur opnunartími sundlauga Reykjavíkurborgar verið skertur verulega og til stendur að skerða hann enn frekar á rauðum dögum. Sundlaugarnar eru þjóðargersemi og sundlaugamenningin á Íslandi einstök. Í raun má segja að sundlaugar séu athyglisverðustu almannarýmin í landinu því þarna kemur saman fjöldi fólks, á öllum aldri sem ekki tengjast endilega neinum öðrum böndum en að njóta þess
Þverskorin ýsa og hamsatólg
Með hækkandi aldri leitar hugurinn gjarnan á þessum tíma til jólanna í „gamla daga“ eins og barnabörnin myndu orða það. Þá var öldin sannarlega önnur. Þá eins og nú, ríkti ójöfnuður í samfélaginu, sumir höfðu gnótt, aðrir minna og enn aðrir ekki neitt. Ég og fjölskylda mín, (mamma einstæð móðir með 4 börn) voru ein þeirra fjölskyldna sem hafði ekki
Hlakka ég til?
Jólin eru sá tími sem djúpar tilfinningar, gleði, sorg, tilhlökkun og væntumþykja verða jafnvel enn sterkari en á öðrum tíma árs. Börn upp til hópa geta vart beðið eftir jólunum, slíkur er spenningurinn. Hinir fullorðnu eru mismikil „jólabörn“. Sumir nærast á öllu sem snýr að jólum en aðrir fara í gegnum þennan tíma meira vegna þess að þeir eiga engan
Getur ekki á heilum sér tekið fyrr en biðlistar heyra sögunni til
Flokkur fólksins leggur fram 19 tillögur á fundi borgarstjórnar 5. desember þegar seinni umræða fer fram um Fjárhagsáætlun 2024. Um er að ræða sparnaðartillögur og breytta forgangsröðun málefna í þágu borgarbúa, þá helst barna, öryrkja og þeirra sem ná ekki endum saman fjárhagslega. Áhersla Flokks fólksins er fyrst og fremst að laga stöðu þeirra verst settu. Í það þarf að
Eldri og einmana
Ein af 19 tillögum Flokks fólksins lagðar fram við seinni umræðu Fjárhagsáætlunar á fundi borgarstjórnar 5. desember er að stofnað verði stöðugildi fagaðila til að bjóða eldra fólki sálfélagslega þjónustu. Margir sem komnir eru á þennan aldur eru einmana. Sumir hafa misst maka sína og aðrir eiga jafnvel ekki fjölskyldu. Því fjármagni sem varið er í stöðugildi sem þetta mun
Bruðl í ráðgjafakaupum borgarinnar
Umræða um kostnað Reykjavíkurborgar við ráðgjafakaup var á fundi borgarstjórnar 21. nóvember að beiðni borgarfulltrúa Flokks fólksins. Tugir milljóna fara ár hvert í verk- og ráðgjafarkaup frá innlendum og erlendum ráðgjafarfyrirtækjum. Þetta er alvarlegt í ljósi bágrar efnahagsstöðu borgarinnar. Borgarfulltrúi Flokks fólksins hefur lagt til að dregið verði af afli úr aðkeyptri ráðgjafar- og verkefnavinnu hjá borginni. Skoða má að
Ráðgjafa- og skýrslukaup borgarinnar komin úr böndum
Í gegnum árin hef ég sem oddviti Flokks fólksins í borgarstjórn ítrekað vakið máls á sóun og bruðli í Reykjavíkurborg þegar kemur að aðkeyptri þjónustu eins og kaup á ráðgjöf og skýrslum eða kaup á ýmsum verkefnum stórum sem smáum. Tugir milljóna fara einnig ár hvert í verk- og ráðgjafarkaup frá erlendum ráðgjafarfyrirtækjum. Í borgarstjórn í dag 21.11 er umræða
Frístundastyrkur yfir 1.000 barna notaður í frístundaheimilisgjöld
Þann 10. desember 2019 skipaði borgarstjóri starfshóp um endurskoðun á regluverki Frístundakortsins. Frístundakortið er styrkjakerfi Reykjavíkurborgar til þess að hvetja börn og ungmenni til þátttöku í íþróttum og annarri skipulagðri tómstundastarfsemi. Styrkurinn er 75.000 krónur á ári og er til að greiða niður hluta af þátttöku- og æfingagjöldum barna sem eiga lögheimili í Reykjavík. Samkvæmt reglum Frístundakortsins er einnig heimilt
Skjótt skipast veður í lofti í húsnæðismálum eldri fólks
Það var í desember 2021 sem borgarfulltrúi Flokks fólksins lagði fram tillögu í borgarstjórn um skipulagða byggð fyrir eldra fólk sem koma mætti fyrir víðs vegar í Reykjavík. Segja má að sjaldan hafi meirihlutinn gert eins mikið grín að nokkurri tillögu frá minnihlutanum, „að nú vildi Flokkur fólksins fara að búa til gettó fyrir eldra fólk“. Fleira í þessum dúr
Ekki sama í hvaða póstnúmeri þú býrð í
Á meðan sumir flytja oft um ævina búa aðrir á sama stað, jafnvel í sama húsi. Fólk sem hefur búið alla sína ævi í miðbænum og nágrenni hafa mátt aðlagast miklum og misjöfnum breytingum, mörgum góðum en öðrum misgóðum eða misvinsælum. Víða er fólki mismunað eftir því hvar það býr í Reykjavík. Þeir sem búa í miðbæ og nágrenni greiða
Áhrif og afleiðingar myglu í skólum er á ábyrgð borgarinnar
Tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins, að þeim sem veikst hafa vegna myglu og raka í skólum borgarinnar verði veittar skaðabætur, verður lögð fram í borgarstjórn á morgun 5. september. Þess er vænst að meirihlutinn taki henni vel og staðfesti í orði og verki að áhrif og afleiðingar myglu í skólum er á ábyrgð borgarinnar. Þolendur hafa ekkert val þegar kemur að
Símalausar skólastofur
Umræðan um snjallsímanotkun í grunnskólum og hvort eigi að banna þá í skólunum er nú aftur komin á kreik og mun kröftugri en fyrr. Það er gott og er þess vænst að hún leiði að þessu sinni til einhverrar niðurstöðu og þá niðurstöðu sem þjónar hagsmunum grunnskólanema. Skoða mætti ýmsar útfærslur. Á að banna krökkunum alfarið að koma með símana
Gerðu það, má ég vera heima
Að mati fjölmargra er skóli án aðgreiningar öfugmæli fyrir börn sem eru með ákveðna tegund af fötlun eða sérþarfir. Reynum að setja okkur í spor barna með sértækar vitsmunaþarfir sem ná ekki að fylgja almennu námsefni. Þeim er mörgum gert að sitja í fjölmennum bekk, kannski með stuðningsfulltrúa við hlið sér, og eiga að gera það sama og hinir. Hvernig
Íslenskukunnátta er lykillinn að farsæld
Móttaka barna og fullorðinna af erlendum uppruna er eitt stærsta verkefnið sem blasir við íslensku samfélagi. Innflytjendum hefur fjölgað mikið undanfarið í Reykjavík og eru nú rúmlega 20% af íbúum og fjölgar stöðugt. Það er því mikil áskorun framundan við að aðstoða þessa nýju Íslendinga sem ætla að búa hér til langframa að skilja og tala íslensku svo þeir geti
Íbúaráðin – sýndarsamráð
Fyrir mistök starfsmanna Reykjavíkurborgar á fundi íbúaráðs Laugardals opinberuðust neikvæð og niðrandi orðaskipti þeirra öllum á fundinum sem sýndur var beint á YouTube-síðu Reykjavíkurborgar. Niðurlægjandi tal þeirra snerist að fulltrúum í ráðinu sem vildu bóka um leikskólamál og fá spurningum um biðlista svarað. Á tali starfsmannanna að dæma voru þeir að finna leiðir til að þagga niður í ráðsmönnum og
Nýi Skerjafjörðurinn – flugvöllurinn og fjölþættar áhyggjur Flokks fólksin
Flokkur fólksins í borgarstjórn lætur öll málefni sem snúa að aðstæðum og líðan fólks sig varða. Nú skal fjallað um nýja Skerjafjörðinn. Þar hefur meirihlutinn farið af stað með að hanna 1400 íbúða hverfi sem leggst upp að Reykjavíkurflugvelli. Flokkur fólksins hefur lagt fram ótal bókanir og tillögur í málinu. Umræðan um hvort flugvöllurinn eigi að fara eða vera er
Staða lóðamála í Reykjavík
Það hefur verið dapurt að fylgjast með umræðunni um lóðamál í Reykjavík. Lögaðili segir engar lóðir að fá og engar óseldar lóðir séu til en starfsmaður borgarinnar þvertekur fyrir það í svari í Morgunblaðinu. Flokkur fólksins hefur látið sig þessi mál varða enda óþolandi hversu mikill framboðsskortur er í Reykjavík þrátt fyrir að byggt hafi verið talsvert. Vissulega hefur borgarbúum
Hveitibrauðsdagarnir liðnir í Reykjavík
Mikið hefur gengið á í borginni að undanförnu. Það sem hefur gerst á þeirri viku sem liðin er síðan fyrri umræða var í borgarstjórn um ársreikning til seinni umræðu sem var í gær 9. maí er að Reykjavíkurborg sendi frá sér fréttatilkynningu í vikunni þess efnis að villa hafi verið í ársreikningnum. Við endurskoðun reyndust verðbætur í sjóðstreymi oftaldar um
Að þekkja sinn vitjunartíma
Fjármál Reykjavíkurborgar hafa verið í umræðunni eftir að Ársreikningur 2022 var lagður fram. Það er ekki nóg með að fjármálastaðan er svört heldur reyndist síðan skekkja í reikningnum sem hefur áhrif á niðurstöðu veltufjár frá rekstri og fjármögnunarhreyfingar í sjóðstreymi. Það er alvarlegt að það skuli lagður fram rangt uppsettur ársreikningur fyrir kjörna fulltrúa. Miklar áhyggjur eru af fjármálastöðunni. Skuldir
Kveikjum Neistann í Reykjavík
Kveikjum neistann er rannsóknar og þróunarverkefni sem Grunnskóli Vestmannaeyja tekur þátt í og hefur verið í gangi með nemendum í bráðum tvö ár. Þau Hermundur Sigmundsson prófessor við NTNU og HÍ og Svara Þ. Hjaltalín, sérkennari og læsisfræðingur eiga veg og vanda af verkefninu sem er í umsjá Rannsóknarseturs um menntun og hugarfar við HÍ. Markmið Kveikjum neistans er metnaðarfullt.
Stafrænt ráð – sóun á bæði tíma og fjármunum
Eftir síðustu kosningar var nýtt ráð stofnað í borginni sem fékk heitið „stafrænt ráð“. Borgarfulltrúi Flokks fólksins fékk ekki upplýsingar um stofnun stafræna ráðsins fyrr en eftir að búið var að skipa í önnur ráð og nefndir og missti þar að leiðandi tækifærið að reyna að fá sæti í ráðinu. Þeir sem hafa fylgst með borgarmálunum vita að Flokkur fólksins
Samtal við barnið lykilatriði
Þjónusta við börn hefur vissulega verið í þróun í Reykjavík síðustu misseri og einhverjar nýjungar í þeim efnum litið dagsins ljós. Biðlisti barna eftir sálfræðiþjónustu skólasálfræðinga hefur þó aldrei verið eins langur og nú. Á þriðja þúsund börn bíða ýmist eftir fyrstu eða frekari þjónustu, þá helst sálfræðinga og talmeinafræðinga. Þessi sami listi taldi 400 börn árið 2018. En það
Hafa foreldrar verið spurðir?
Á biðlista eftir fyrstu og frekari þjónustu eru nú 2430 börn samkvæmt upplýsingum á tölfræðivef Reykjavíkurborgar. Einna helst er beðið eftir þjónustu sálfræðinga og talmeinafræðinga. Árið 2018 þegar hóf störf sem borgarfulltrúi voru 400 börn á þessum sama biðlista. Ástæður fyrir fjölgun á biðlista eftir sálfræði- og félagslegri aðstoð geta verið nokkrar. Nemendum hefur fjölgað, beiðnum hefur fjölgað og samkvæmt
Kári blásinn af
Nú hefur Sorpa viðurkennt mistök við byggingu flokkunarstöðvar í Álfsnesi. Framkvæmdarstjóri segir að mistök hafi verið gerð þegar ákveðið var að kaupa flokkunarkerfi sem vitað var að myndi ekki skila af sér nothæfri moltu. Takið eftir! „vitað var að flokkunarkerfið myndi ekki skila af sér nothæfri moltu“. Hver kaupir rándýrt flokkunarkerfi sem vitað er að skilar ekki nothæfu hráefni til
Embættisafglöp borgarstjóra
Borgarstjóri gerir stór mistök í starfi með því að leggja niður Borgarskjalasafn undir merkjum sparnaðar. Meirihlutinn í borgarstjórn mun greiða atkvæði með niðurlagningunni á fundi borgarstjórnar 7. mars 2023 og verður ekki við neitt ráðið. Borgarstjóri er að fylgja eftir vondri og eiginlega óskiljanlegri ráðgjöf einhverra, að öllum líkindum frá ákveðnum embættismönnum. Farið var á svig við allt samráð og
Rangt að leggja Borgarskjalasafn niður
Tillaga borgarstjóra sem var lögð fram í borgarráði fyrir tveimur vikum um að leggja niður Borgarskjalasafn og skýrsla KPMG sem fylgdi tillögunni kom eins og reiðarslag fyrir flesta. Málinu var frestað í borgarráði og leynd hvíldi því áfram yfir gögnum. Engu að síður hafði skýrsla um framtíðarfyrirkomulag Borgarskjalasafns borist fjölmiðlum og málið komst í hámæli. Nú hefur leynd verið létt
Ekki í skólann
Umræða um skólaforðun hefur aukist síðan Velferðarvaktin hóf að gera könnun á umfangi hennar. Um þúsund íslensk börn glíma við skólaforðun og treysta sér ekki til að mæta í skólann. Ætla má að fjöldinn sé mun meiri. Þær ástæður eða orsakir sem helst eru nefndar tengjast andlegri vanlíðan, kvíða og þunglyndi. Dæmi um aðrar ástæður er félagskvíði þ.e. þegar barn
Kallað út í tómið
Nýlega er afstaðinn fundur með ungmennaráðum í borgarstjórn sem er árlegur viðburður. Í annað sinn á stuttum tíma leggur ungmennaráð fram tillögu um að aðgengi að sálfræðingum verði stórbætt. Flokkur fólksins hefur margsinnis sl. 5 ár lagt fram sambærilegar tillögur og þá bent á hvað þurfi að gera til að aðgengi barna að fagþjónustu skóla verði bætt. Biðlisti barna í grunnskólum
Okkur þykir það miður
Starfsfólk leikskólanna er í óbærilegum aðstæðum. Dag hvern er það að reyna að redda málum en mannekla er slík að skipuleggja þarf skerðingar þjónustu frá degi til dags. Þrátt fyrir ákall foreldra og leikskólastarfsfólks heyrist lítið frá meirihluta borgarstjórnar. Fjöldi foreldra fær reglulega bréf frá leikskólastjórum þar sem þeir lýsa ástandinu. Hér er brot úr einu slíku: „Kæru foreldrar okkur
Skipulagðar skerðingar þjónustu leikskólanna
Mannekluvandinn hefur fengið að festa sig í sessi og meirihlutinn í borgarstjórn hefur gefist upp. Mannekla er orðið að lögmáli. Mannekla við uppbyggingu leikskólakerfisins í Reykjavík hefur loðað við leikskóla borgarinnar árum saman og ekki hefur verið gripið til fullnægjandi ráðstafana til að leysa málið. Foreldrar, starfsfólk leikskóla og leikskólastjórar hafa um langan tíma sent ítrekuð áköll til meirihlutans í borgarstjórn
Heimgreiðslur, mannekla í leikskólum og viðbrögð skólayfirvalda vegna skólaforðunar
Næstu mál okkar Flokks fólksins í borgarstjórn 7. febrúar snúa annars vegar að tillögu um heimgreiðslu vegna alvarlegra manneklu í leikskólum og langs biðlista og hins vegar að umræðu um orsakir skólaforðunar og viðbrögð skólayfirvalda og fagfólks skóla þegar barn glímir við skólaforðun. Flokkur fólksins hefur ítrekað lagt til í borgarstjórn að foreldrar yngstu barnanna hafi val um að þiggja
Lofað og svikið
Ídag, 17. janúar, hefur borgarfulltrúi Flokks fólksins óskað eftir umræðu um manneklu í leikskólum á fundi borgarstjórnar. Mannekla í leikskólum er langvarandi vandamál í Reykjavík sem meirihlutinn hefur ekki getað leyst. Eins og vandinn blasir nú við er vissulega engin ein töfralausn. Mörg hundruð börn bíða eftir plássi. Meirihlutinn lofaði plássum í leikskólum sem ekki höfðu verið byggðir eða fullkláraðir
Til hamingju Vin
Eins og þekkt er var ein af breytingartillögum meirihlutans í borgarstjórn sem lögð var fram 6. desember sl. að leggja niður starfsemi dagsetursins Vinjar. Flokkur fólksins mótmælti þessu strax harðlega og lagði fram tillögu um að meirihlutinn myndi endurskoða þessa ákvörðun. Hvatt var til að starfseminni yrði að mestu haldið óbreyttri. Þessi sparnaðartillaga meirihlutans ásamt nokkrum öðrum sambærilegum, m.a. þeirri
Ungmenni sem beitir ofbeldi líður ekki vel
Á síðasta ári reið bylgja ofbeldis yfir meðal íslenskra barna og ungmenna í Reykjavík þar sem vopnaburður er notaður þ.m.t. eggvopn. Einnig hefur færst í aukana að ungt fólk taki myndskeið af ofbeldi sem það sjálft, beint eða óbeint er þátttakandi í eða verður vitni að, og setji það á samfélagsmiðla. Myndskeið af þessu tagi hafa farið eins og eldur
Óbreytt staða í borgarstjórn
Nýtt kjörtímabil hófst á árinu og stimplaði Flokkur fólksins sig aftur inn í borgarstjórn. Vonir okkar í Flokki fólksins stóðu til að fá tækifæri til að komast í meirihluta borgarstjórnar til þess að geta tekið þátt í ákvörðunum sem leiða mættu til bættra lífskjara hinna verst settu og þeirra sem standa höllum fæti. Það varð hins vegar ekki hlutskiptið að
Ó, borg mín borg
Ó, borg mín borg Nú líður að lokum þessa árs. Nýtt kjörtímabil hófst á árinu og stimplaði Flokkur fólksins sig aftur inn í borgarstjórn. Vonir stóðu til að fá tækifæri til að komast í meirihluta borgarstjórnar til þess að geta tekið þátt í ákvörðunum sem leiða mættu til bættra lífskjara hinna verst settu og þeirra sem standa höllum fæti. Það varð
Að jólin verði allra
Aðdragandi jóla er gleðitími fyrir marga, börn jafnt sem fullorðna. Jólin eru hátíð barna og kæti þeirra og tilhlökkun til jólanna er einn af hápunktum tilveru þeirra og mun lifa með þeim í minningunni þegar fram líða stundir. Í samfélagi okkar finnst mörgum það sjálfsagt að börn séu áhyggjulaus, geti notið bernskunnar og hlakkað til ýmissa viðburða í lífinu. Allt
Málefni barna varða okkur öll
Börn eru mér og okkur í Flokki fólksins hugleikin alla daga. Ástæðan fyrir því að ég gekk til liðs við Flokk fólksins á sínum tíma var ekki síst sú að stefna flokksins setur börn og barnafjölskyldur í forgang. Fólkið fyrst og svo allt hitt er okkar kjörorð. Flokkur fólksins vill útrýma fátækt, enda ætti enginn að þurfa að vera fátækur
Strætó og SORPA – útvistun?
Flokkur fólksins vill stíga varlega til jarðar þegar kemur að útvistun opinberra verkefna til einkaaðila, sérstaklega þegar kemur að beinni þjónustu við viðkvæma hópa. Þegar talað er um beina þjónustu við fólkið er átt við „maður á mann þjónustu“. Útvistun slíkrar þjónustu getur leitt til þess að þjónustan færist fjær fólkinu sem hana nýtir og að persónulegar þarfir fólks verði
Þegar börn níðast á barni
Við urðum flest máttlaus af sorg og skelfingu þegar myndskeið af líkamlegu ofbeldi og einelti í garð 12 ára stúlku fór í dreifingu fyrir skemmstu.Töluvert hefur verið fjallað um einelti frá því málið kom upp og hvernig bregðast eigi við málum af þessu tagi. Það er vont ef eineltismál þurfa að komast í fjölmiðla til að vera tekin nógu alvarlega