Umhverfis- og skipulagsráð 31. janúar 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á hönnun og væntanlegum framkvæmdum Fossvogsbrúar, Öldu Glærur í kynningu standast ekki skoðun. Myndir beina fókusnum að göngusvæðinu austan á brúnni og eru þær teknar milli 5 og 6 að morgni um hásumar ef marka má skuggana. Eins og fulltrúi Flokks fólksins fékk ábendingu um, þá er stórgalli að hafa ekki göngustíginn

Lesa meira »

Mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð 25. janúar 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum kynning á skýrslu um félagslegt landslag í Reykjavík. Þessi skýrsla staðfestir að ójöfnuður og fátækt hefur aukist í Reykjavík. Þetta sýna einnig nýlegar niðurstöður Gallup. Um 14% landsmanna áttu að eigin sögn ekki fyrir jólahaldinu og eru það 5% fleiri en árið áður. Hér er um ungt fólks að ræða, barnafjölskyldur. Staðan er misjöfn eftir

Lesa meira »

Borgarráð 25. janúar 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 11. janúar 2024, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 10. janúar 2024 á tillögu að breytingu á hverfisskipulagi, Breiðholts, hverfi 6.2 Seljahverfi, vegna lóðarinnar nr. 17 við Öldusel, Ölduselsskóli: Fulltrúi Flokks fólksins vill ítreka mikilvægi þess að vinna með fólkinu i borginni og að þessu sinni íbúum Seljahverfis.

Lesa meira »

Sameiginlegur fundur umhverfis- og skipulagsráðs og stafræns ráðs

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á áherslum umhverfis- og skipulagssviðs í stafrænum málum: Stafrænar lausnir eru vonandi að þokast áfram hjá umhverfis- og skipulagsráði. Það er reyndar komið eitt og hálft ár síðan að eyðublöð um byggingarfulltrúa og því tengt var tilbúið en hvernig stendur á þessum rosalega hægagangi í þessum verkefnum? Flokkur fólksins spurði um þetta

Lesa meira »

Umhverfis- og skipulagsráð 24. janúar 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að framlengja tímabundna heimild til að víkja frá reglum um íbúakort sem var samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði þann 15. nóvember 2023 og borgarráði 16. nóvember 2023: Flokkur fólksins tekur heilshugar undir tillögu um framlengingu á heimildum um frávik á reglum um íbúakort til handa Grindvíkingum. Frá

Lesa meira »

Borgarstjórn 23. janúar 2024

Umræða um vaxandi fátækt og ójöfnuð í Reykjavík (að beiðni borgarfulltrúa Flokks fólksins) Greinargerð Flokkur fólksins var stofnaður til að að berjast gegn fátækt. Það er bláköld staðreynd að fátækt og ójöfnuður hefur aukist í Reykjavík á vakt þessa og síðasta meirihluta. Erfiðara er að ná endum saman. Færri áttu fyrir jólunum nú en áður. Þetta kemur fram í nýjum

Lesa meira »

Forsætisnefnd 19. janúar 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram að nýju bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 3. janúar 2024, varðandi drög að verklagsreglum um meðferð fyrirspurna og tillagna í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum, sbr. 5. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 5. janúar 2024: Flokkur fólksins var með athugasemdir við tillöguna sem sneru að 3. gr. þar sem fram kom að ekki mætti

Lesa meira »

Velferðarráð 17. janúar 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum kynning á niðurstöðum rannsóknar um félagslegt landslag í Reykjavík. Þessi skýrsla staðfestir að ójöfnuður og fátækt hefur aukist í Reykjavík. Þetta sýna einnig nýlegar niðurstöður Gallup. Um 14% landsmanna áttu að eigin sögn ekki fyrir jólahaldinu og eru það 5% fleiri en árið áður. Hér er um ungt fólks að ræða, barnafjölskyldur. Staðan er misjöfn

Lesa meira »

Umhverfis- og skipulagsráð 17. janúar 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Að lokinni kynningu er lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi 2040 fyrir skotæfingasvæði Álfsnesi, dags. í janúar 2024 sbr. 3. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 ásamt umsögn dags. 15. janúar 2024. Þær breytingar sem hér eru lagðar til, að skapa skilyrði fyrir skotæfingar, bera merki um hversu kappsamur meirihlutinn er að þjóna þessum

Lesa meira »

Borgarráð 11. janúar 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:Lagt er til að borgarráð samþykki endurnýjun meðfylgjandi samnings við KLAK-Icelandic Startups. Samningurinn er til tveggja ára og snýr að áframhaldandi samstarfi og framkvæmd viðskiptahraðalsins Hringiðu: Lagt er til að borgarráð samþykki endurnýjun meðfylgjandi samnings við KLAK-Icelandic Startups. Samningurinn er til tveggja ára og snýr að áframhaldandi samstarfi og framkvæmd viðskiptahraðalsins Hringiðu sem hefur það að

Lesa meira »

Umhverfis- og skipulagsráð 10. janúar 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á uppbyggingu í Norður Mjódd: Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins lagði fram spurningu um hvort gert væri ráð fyrir undirgöngum undir Stekkjarbakka, m.a. vegna umferðar skólabarna úr hverfinu yfir í hverfið sem nú þegar er fyrir ofan. Ekki var að heyra að unnið væri út frá þeirri hugmynd. Fulltrúinn gerir athugasemd við að það

Lesa meira »

Borgarstjórn 9. janúar 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer umræða um gjaldskrárhækkanir Reykjavíkurborgar: Fulltrúi Flokks fólksins hefur margsinnis bent meirihlutanum á að hækkun gjaldskráa fer beint út í verðlagið og viðheldur ástandinu með verðbólguna og í fyrra varð það klárlega til að gera illt verra með hækkandi verðbólgu. Gjaldskrár hafa hækkað árlega. Það sætir furðu að fjármálasvið borgarinnar og meirihlutanum hafi ekki

Lesa meira »

Forsætisnefnd 5. janúar 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á stöðu verkefna í aðgerðaáætlun atvinnu- og nýsköpunarstefnu Reykjavíkurborgar: Flokkur fólksins gerir athugasemdir við að oddvitum minnihluta var ekki boðið að taka þátt í atvinnulífsfundi sem haldinn var með oddvitum meirihlutans og framáfólki í atvinnulífinu. Flokkur fólksins hefur ávallt lagt áherslu á að forgangsraða verkefnum. Þegar horft er til aðgerðaáætlunar atvinnu- og

Lesa meira »

Borgarráð 21. desember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 14. desember 2023, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 14. desember 2023 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Gufuness, 1. áfanga, vegna Jöfursbáss: Breytingin felur í sér að koma á fyrir bílastæðum á lóð til að mæta þörfum íbúa í hverfinu. Koma á fyrir 61 bílastæði

Lesa meira »

Borgarráð 14. desember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðinum: Lagt er til að meðfylgjandi breytingar á gjaldskrá vegna dagforeldra verði samþykktar. Breytingin taki gildi 1. febrúar 2024: Fulltrúi Flokks fólksins telur að þessar niðurgreiðslur til dagforeldra vegna 18 mánaða og eldri barna komi allt of seint. Niðurgreiðslurnar voru samþykktar í borgarráði 15. júní en koma ekki til framkvæmda fyrr en rúmum sjö mánuðum seinna.

Lesa meira »

Umhverfis- og skipulagsráð 13. desember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram erindi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis um tillögu um stækkun svæðis í Grafarvogi sem falla ætti undir friðlýsingu Grafarvogs, dags. 20. júní 2023: Flokkur fólksins styður stækkun á friðlýstu svæði við Grafarvog. Ekki eru mörg strandsvæði óröskuð eða lítt röskuð í Reykjavík. Friðlýsing eykur á gildi Grafarvogs sem fæðusvæði fugla að vetri til en

Lesa meira »

Borgarstjórn 12. desember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer umræða um niðurstöður úr PISA könnuninni 2022: Það var áfall að sjá niðurstöður PISA sem komu þó fæstum á óvart. Í hverju felast mistökin og hvernig ætlar Reykjavíkurborg að læra af þeim? Það hlýtur að þurfa að rýna í aðferðir lestrarkennslu, nálgun og samsetningu. Borgarfulltrúi Flokks fólksins telur að vandinn sé margþættur en

Lesa meira »

Borgarráð 7. desember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf borgarritara, dags. 5. desember 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki úthlutun úr Miðborgarsjóði fyrir árið 2023: Tillaga er lögð fram um úthlutun úr Miðborgarsjóði. Ákveðið teymi fer yfir umsóknir en alls bárust 37 umsóknir, 12 milljónum verður veitt úr sjóðnum í styrki. Markmiðið er að stuðla að fjölbreytni í

Lesa meira »

Velferðarráð 6. desember 2023

Bókun Flokks fólksins við kynningu á niðurstöðum könnunar meðal NPA-notenda Til kynningar er könnun sem var gerð meðal NPA notenda í Reykjavík til að heyra upplifun notenda af þjónustunni. Það er ánægjulegt að sjá að 83% notenda segja stuðninginn alltaf eða oftast mæta þörfum sínum og 95% notenda geta alltaf eða oftast sinnt áhugamálum og gert það sem þau vilja,

Lesa meira »

Borgarstjórn, seinni umræða Fjárhagsáætlanir 5. desember 2023 Bókanir Flokks fólksins

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024: Borgarfulltrúi Flokks fólksins leggur framws svohljóðandi bókun: Rekstur A-hluta Reykjavíkurborgar hefur verið í járnum. Árlega hefur hluti rekstrarútgjalda borgarsjóðs, fjárfestingar og afborganir lána verið fjármagnaðar með lántökum. Langt er enn í land með að fjárhagsstaða borgarinnar verði ásættanleg. Nánast allri skuldinni er skellt á málefni fatlaðs fólks. Rétt er að

Lesa meira »

Ræða oddvita við seinni umræðu Fjárhagsáætlun 2024 flutt 5. desember 2023

Ræða oddvita við seinni umræðu Fjárhagsáætlunar 2024, flutt 5. desember 2023 Rekstur A-hluta Reykjavíkurborgar hefur verið í járnum. Árlega hefur hluti rekstrarútgjalda borgarsjóðs, fjárfestingar og afborganir lána verið fjármagnaðar með lántökum. Langt er enn  í land með að fjárhagsstaða borgarinnar verði ásættanleg.  Nánast allri skuldinni er skellt á málefni  fatlaðs fólk. Of mikið traust er sett á að samningar náist

Lesa meira »

Breytingatillögur Flokks fólksins framlagðar í fyrri og seinni umræðu Fjárhagsáætlunar 7. nóv. og 5. des. 2023

Allar breytingatillögur Flokks fólksins lagðar fram við fyrri og seinni umræðu fjárhagsáætlunar 2024 og fimm ára áætlunar. Tillögur um gjaldabreytingar F-1 til F-4 voru lagðar fram við fyrri umræðu fjárhagsáætlunar 7. nóvember 2023 Breytingatillögur Flokks fólksins með greinargerðum fluttar við fyrri umræðu F – 1 Frysting á gjöldum ákveðinna minnihlutahópa Flokks fólksins leggur til að frysta allar gjaldskrárhækkanir er varða

Lesa meira »

Borgarráð 30. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 22. nóvember 2023 sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 22. nóvember 2023 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Fossvogsbrúar: Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur til að málinu verði frestað. Frestunartillagan er felld með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokks. Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr

Lesa meira »

Umhverfis- og skipulagsráð 29. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að tvær núverandi biðstöðvar strætó í Austurbrún, Austurbrún og Dragavegur verði sameinaðar í eina stöð, Austurbrún: Verið er að skerða þjónustu strætó enn frekar með þessari aðgerð, sameiningu stoppistöðva. Það kann að vera að hana megi réttlæta en þegar á allt er litið er búið að skerða

Lesa meira »

Mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð 23. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Skýrsla fagsviðs persónuverndar hjá innri endurskoðun um eftirlitsmyndavélar á vegum Reykjavíkurborgar. Fulltrúi Flokks fólksins hefur fram til þessa verið talsmaður þess að eftirlits- og öryggismyndavélar séu settar upp þar sem talin er þörf og ástæða og þá í kjölfar mats sérfræðinga þar að lútandi. Sérstaklega er slíkur búnaður eftirsóknarverður þar sem börn koma saman í

Lesa meira »

Borgarráð 23. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 16. nóvember 2023, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 15. nóvember 2023 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Saltvíkur á Kjalarnesi: Fulltrúi Flokks fólksins vill leggja áherslu á bókun íbúaráðsins sem er afar afgerandi um tillögu að breyttu deiliskipulagi Kjalarnes, Saltvík. Bókunin var lögð fram á fundi íbúaráðs

Lesa meira »

Sameiginlegur fundur velferðarráðs og stafræns ráðs 22. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á vegvísi stafræns ráðs: Stafræn þjónusta á velferðarsviði er gríðarlega mikilvæg og það er gott að heyra hvað velferðarsvið er vel undirbúið fyrir þessa vegferð. Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir með velferðarsviði um að það þurfi að flýta ferlum og hraða vinnu við Ráðgjafann. Fulltrúi Flokks fólksins telur gríðarlega mikilvægt að flýta

Lesa meira »

Umhverfis- og skipulagsráð 22. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Breyting á deiliskipulagi fyrir Fossvogsbrú Reykjavíkurmegin. Í gildandi deiliskipulagi er leiðbeinandi lega göngu- og hjólastíga, áningarstaða og biðstöðva fyrir almenningsvagna sýnd á uppdrætti. Fram kemur í gögnum að á brúnni verða tvær akreinar fyrir almenningssamgöngur, ein í hvora átt, með tvöfaldan hjólastíg vestan megin og göngustíg austan megin. Þetta eru mistök. Eðlilegast er að göngustígurinn

Lesa meira »

Velferðarráð 22. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Stafrænum vegvísi Velferðarsviðs Stafræn þjónusta á velferðarsviði er gríðarlega mikilvæg og það er gott að heyra hvað velferðarsvið er vel undirbúið fyrir þessa vegferð. Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir með velferðarsviði um að það þurfi að flýta ferlum og hraða vinnu við Ráðgjafann. Fulltrúi Flokks fólksins telur gríðarlega mikilvægt að flýta ferlum varðandi skólaþjónustuna svo

Lesa meira »

Borgarstjórn 21. nóvember 2023

Borgarstjórn Reykjavíkur 21. nóvember 2023 Greinargerð borgarfulltrúa Flokks fólksins með umræðu um kostnað Reykjavíkurborgar við ráðgjafarkaup Tugir milljóna fara ár hvert í verk- og ráðgjafarkaup frá innlendum og erlendum ráðgjafarfyrirtækjum. Þetta er alvarlegt í ljósi bágrar efnahagsstöðu borgarinnar. Borgarfulltrúi Flokks fólksins hefur lagt til að dregið verði af afli úr aðkeyptri verkefnavinnu og ráðgjöf til borgarinnar og sé sú leið

Lesa meira »

Borgarráð 16. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. 14. nóvember 2023, varðandi skýrslu starfshóps um betri rekstur og afkomu bílahúsa Bílastæðasjóðs og tillögur starfshópsins. Í skýrslunni kemur fram að nýting bílastæðahúsa er léleg eða 27% að meðaltali. Þess vegna er aðalatriðið að bæta nýtingu þeirra. Sérstaklega er áríðandi að þau nýtist að nóttu sem ekki er raunin nú.

Lesa meira »

Velferðarráð 15. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Brú Áfangaheimili Fulltrúi Flokks fólksins hefur fengið upplýsingar um að Félagsbústaðir hafi sagt upp leigusamningi við áfangaheimilið Brú sem rekið er af Samhjálp. Brú er langtíma meðferðarúrræði sem hefur skilað gríðarlega góðum árangri fyrir alkóhólista og aðra vímuefnaneytendur en þar hefur batinn verið um 80%. Samkvæmt upplýsingum þá á áfangaheimilið að yfirgefa húsnæðið 1. febrúar

Lesa meira »

Umhverfis- og skipulagsráð 15. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. í maí 2023, vegna gerð nýs deiliskipulags fyrir þróunarsvæði við Suðurfell, Elliðarárdalurinn: Fjölmargir mótmæla harðlega þessari tillögu þar sem hér sé gengið freklega á græn svæði innan borgarmarkanna. Fjöldi fólks nýtir sér þennan hluta náttúru innan borgarmarkanna m.a. með göngu- og

Lesa meira »

Borgarráð 9. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Auglýsing á tillögu að hverfisskipulagi Hlíða, hverfi 3.1, Háteigshverfi; auglýsing á tillögu að hverfisskipulagi Hlíða, hverfi 3.2, Hlíðahverfi og auglýsing á tillögu að hverfisskipulagi Hlíða, hverfi 3.3, Öskjuhlíðarhverfi: Lagðar eru fram tillögur að nýju hverfisskipulagi Hlíða, hverfi 3.1, Háteigshverfi, 3.2 Hlíðahverfi og 3.3 Öskjuhlíðahverfi. Stefnt er að því að ljúka við gerð hverfisskipulags fyrir öll

Lesa meira »

Fyrri umræða fjárhagsáætlunar 7. nóvember 2024, bókanir og breytingatillögur Flokks fólksins

Borgarstjórn 7. nóvember 2023 Fyrri umræða fjárhagsáætlunar 2024 og fimm ára áætlun. Bókun Flokks fólksins undir Fundargerðar borgarráðs frá 3. nóvember þar sem fjárhagsáætlun 2024 var kynnt: A hlutinn er að mestu fjármagnaður með skatttekjum íbúa borgarinnar. Yfirlit um A og B hluta gefur fyrst og fremst yfirlit um heildarumfang í rekstri og efnahag borgarinnar vegna þess hve einstakar rekstrareiningarnar

Lesa meira »

Oddvitaræða við fyrri umræðu fjárhagsáætlunar 2024, flutt 7. nóv. 2023

Fjárhagsáætlun og Fimm ára áætlun fyrir 2023-2027 7. nóvember 2023 Ræða Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur, oddvita Flokks fólksins „Við erum eins og áður að horfa að mestu á A- hlutann sem  er fjármagnaður með skatttekjum íbúa borgarinnar. Yfirlit um A og B hluta gefur fyrst og fremst yfirlit um heildarumfang í rekstri og efnahag borgarinnar vegna þess hve einstakar rekstrareiningarnar eru

Lesa meira »

Borgarráð 3. nóvember 2023

Ný mál Flokks fólksins Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins að láta fjarlægja styttu af sr. Friðriki Friðrikssyni (1868-1961), presti og æskulýðsleiðtoga af þeim stað þar sem hún nú stendur: Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að  borgarráð samþykki að láta fjarlægja styttu af sr. Friðriki Friðrikssyni (1868-1961), presti og æskulýðsleiðtoga af þeim stað þar sem hún nú stendur. Umfjöllun

Lesa meira »

Velferðarráð 1. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á MA ritgerð um upplifun einstaklinga af þjónustu Atvinnu- og virknimiðlunar og vinnumarkaðsaðgerðum Reykjavíkurborgar. Það er jákvætt að sjá að niðurstöður rannsóknarinnar bendi til þess að störf og þjónusta Atvinnu- og virknimiðlunar hafi skipt sköpum í að veita þátttakendum tækifæri til að komast aftur inn á vinnumarkað. Það var fróðlegt að sjá

Lesa meira »

Umhverfis- og skipulagsráð 1. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða um gróðursetningu stærri trjáa í borgarlandi: Stór tré þurfa mikið pláss og þess vegna þarf að planta þeim á stórum opnum svæðum. Í borginni eru víða opin svæði svo sem meðfram vegum sem sjálfsagt er að setja stór tré. Mikill kostur er ef hægt er að setja

Lesa meira »

Umhverfis- og skipulagsráð 25. október 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á stöðu aðgengisbætandi aðgerða við Strætóbiðstöðvar: Kynning fylgdi ekki með þessu máli um aðgengisbætandi aðgerðir Strætó og hefur verið óskað eftir að málið verði lagt fram aftur á næsta fundi. Heildarfjöldi stöðva er 546 og eru 154 ekki komnar í áætlun. Fleiru náði fulltrúi Flokks fólksins ekki úr kynningunni að heitið geti

Lesa meira »

Borgarráð 19. október 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að borgarráð samþykki hjálögð drög að samningi við Móðurmál – samtök um tvítyngi og Vinasamtök pólska skólans með vísan í hjálagt minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 22. september 2023: Hjálögð eru drög að samningi við Móðurmál – samtök um tvítyngi og Vinasamtök pólska skólans sem hefur það að markmiði að gera

Lesa meira »

Velferðarráð 18. október 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram minnisblað sviðsstjóra, dags. 18. október 2023, um vetraráætlun neyðarskýla velferðarsviðs: Fulltrúi Flokks fólksins fagnar því að unnið er að nákvæmari skilgreiningu á markhópi neyðarskýlanna og áhersla er lögð á að engum heimilislausum einstaklingum með miklar og flóknar þjónustuþarfir verði vísað frá. Það voru ömurlega fréttir þegar einstaklingi sem leitaði skjóls í neyðarskýli var

Lesa meira »

Umhverfis- og skipulagsráð 18. október 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:Fram fer kynning á vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar fyrir veturinn 2023 – 2024: Fulltrúi Flokks fólksins hefur lagt áherslu á að snjóhreinsun í húsagötum verði stórbætt og að ekki sé rutt upp á gangstéttir, göngustíga eða fyrir innkeyrslur/innganga híbýla. Ljóst er að aukin og betri vetrarþjónusta hefur í för með sér aukinn kostnað. Búið er að kostnaðarmeta tillögur

Lesa meira »

Borgarstjórn 17. október 2023

 Mál Flokks fólksins Umræða um frístundastyrkinn og hvernig vikið hefur verið frá upphaflegu markmiði hans og tilgangi  Frístundastyrknum var upphaflega  ætlað að auka jöfnuð í samfélaginu og fjölbreytileika í iðkun íþrótta-, lista- og tómstundastarfsemi. Í áranna rás hefur reglum verið breytt og er nú styrkurinn einnig einskonar gjaldmiðill t.d. til að greiða með gjald fyrir dvöl barna á frístundaheimili eða

Lesa meira »

Mannréttindi- og ofbeldisvarnaráð 12. október 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um bréf til forráðamanna um hnífaburð ungmenna, sbr. 8. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 14. september 2023: Samþykkt að vísa til meðferðar skóla- og frístundaráðs. Fulltrúi Flokks fólksins lagði til að Reykjavíkurborg sendi foreldrum grunnskólabarna bréf þar sem reglur um bann við vopnaburði væru kynntar og

Lesa meira »

Borgarráð 12. október 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 5. október 2023, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 4. október 2023 á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Fossvogsblett 2-2A: Flokkur fólksins fagnar því megininntaki deiliskipulagstillögunnar að stefnt sé að því að fjölga leikskólaplássum í hverfinu með byggingu nýs leikskólahúsnæðis. Mikill skortur er á leikskólaplássum í hverfinu. Þær

Lesa meira »

Umhverfis- og skipulagsráð 11. október 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagður fram tölvupóstur skrifstofu borgarstjórnar, dags. 14. júlí 2023, þar sem óskað er eftir umsögn um frumgreiningu á mögulegri legu græna stígsins í græna trefli höfuðborgarsvæðisins: Fram kemur í fyrirliggjandi gögnum að ekki megi malbika á vatnsverndarsvæðum en stígurinn liggur um þau meira og minna. Kannski ætti að skoða þann möguleika meira. Skiljanlega er lagningin

Lesa meira »

Borgarráð 5. október 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagðar fram tillögur borgarstjóra, dags. 3. október 2023, að viðaukum við fjárhagsáætlun 2023: Í þessum viðauka er m.a. lagt til að fjárheimildir velferðarsviðs hækki um rúmlega 77.109 þ.kr. til að fjölga tímabundið sérfræðingum til að vinna úr áhrifum COVID. Náðst hefur að nýta um 62 m.kr. af fjárheimildinni frá upphafi. Um er að ræða verkefni

Lesa meira »

Velferðarráð 4. október 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Fram fer kynning á niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar: Fulltrúi Flokks fólksins þakkar velferðaráði fyrir að bregðast svo skjótt við tillögu Flokks fólksins um kynningu á niðurstöðum á Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar. Rannsóknin er viðamikil og hún gefur góða yfirsýn yfir hegðun, stöðu og líðan barna og ungmenna. Sérstaklega er fulltrúa Flokks fólksins brugðið við að sjá hvað líðan

Lesa meira »

Umhverfis- og skipulagsráð 4. október 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning skrifstofu samgangna og borgarhönnunar um áætlaðar framkvæmdir við strætóstöðvar árið 2023, meðal annars vegna úrbóta á aðgengi við strætóstöðvar: Fulltrúi Flokks fólksins fagnar öllum lagfæringum sem auðveldar aðgengi að strætóstöðvum en verkið gengur ansi hægt því fáar stöðvar hlutfallslega eru lagaðar í einu. Árið 2021 voru í heild 556 strætóstöðvar í Reykjavík

Lesa meira »

Borgarstjórn 3. október 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Borgarstjórn samþykkir að stofna spretthóp þriggja borgarfulltrúa undir forystu formanns borgarráðs sem gegni því hlutverki að veita pólitíska forystu um einföldun á regluverki og ferlum skipulags- og byggingarmála í Reykjavík. Þetta er þörf tillaga að mati Flokks fólksins. Flokkur fólksins hefur ítrekað lagt fram tillögur af þessu tagi en þeim verið hafnað. Til dæmis lagði

Lesa meira »

Borgarráð 28. september 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagðar fram tillögur borgarstjóra, dags. 26. september 2023, að viðauka við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar vegna fjárfestingaáætlunar A-hluta. Greinargerð fylgir tillögunum: Af þessum viðauka má sjá hvað mörg verkefni hafa verið vanáætluð. Í fjölmörgum verkefnum og það stórum og fjárfrekum þarf að hækka fjárheimild vegna þess eins og segir að „umfang verkefna á árinu er meira en

Lesa meira »

Borgarráð 21. september 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 19. september 2023, varðandi tillögu um flutning á verkefnum meindýravarna Reykjavíkurborgar til Dýraþjónustu Reykjavíkurborgar: Um er að ræða tillögu um að flytja starfsemi meindýravarna Reykjavíkurborgar til Dýraþjónustu Reykjavíkurborgar. Ef í þessu felst hagræðing, sparnaður, betra skipulag og meiri skilvirkni finnst fulltrúa Flokks fólksins þetta góð tillaga. Ekki er

Lesa meira »

Velferðarrá 20. september 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á niðurstöðum þjónustu- og aðgengiskönnunar velferðarsviðs 2023: Margt hefur lagast en annað hefur versnað. Það sem hefur versnað er að fólk þarf að leita til margra aðila áður en það fær svör við erindum sínum og margir upplifa tungumálaörðugleika. Sami vandi t.d. ef horft er til aðgengis að sækja þjónustu fyrir fötluð

Lesa meira »

Umhverfis- og skipulagsráð 20. september 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagðar fram fundargerðir Sorpu bs. nr. 483 og 484: Fundargerð 27. júní liður 1. Stefnumótun SORPU Fulltrúi Flokks fólksins veltir því upp í þessari bókun hvort eina leiðin til að vinna stefnumótunarvinnu sé að kaupa þjónustu frá ráðgjafafyrirtæki en aðkeypt þjónusta af slíkum toga útheimtir mikinn kostnað.   Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Fram fer

Lesa meira »

Borgarstjórn 19. september 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer umræða um kynfræðslu og hinsegin fræðslu. Samþykkt að taka á dagskrá svohljóðandi ályktunartillögu borgarstjórnar: Vegna þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað að undanförnu vill Borgarstjórn Reykjavíkur árétta stuðning sinn við það mikilvæga starf sem á sér stað í skólum borgarinnar. Fræðsla um fjölbreytileika samfélagsins, meðal annars þegar kemur að kynhneigð, kynvitund og

Lesa meira »

Mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð 14. september 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer umræða um umsagnir persónuverndarfulltrúa Reykjavíkurborgar dags. 11. maí s.l. og mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 22. maí s.l., um samkomulag um forgangsröðun og uppsetningu öryggismyndavéla: Flokkur fólksins er hlynntur notkun öryggismyndavéla til að tryggja öryggi borgaranna. Flokkur fólksins hefur viljað sjá slíkar myndavélar þar sem börn stunda nám og leik, t.d. á skilgreindum leiksvæðum

Lesa meira »

Borgarráð 14. september 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 6. september 2023, sbr. afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs á verklýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 vegna Sundabrautar: Sundabraut hefur verið sagan endalausa en nú er vonandi eitthvað að gerast. Gæta þarf að samráði í þessu risaverkefni og hafa samráðið eins mikið og þörf krefur. Það er sérkennilegt

Lesa meira »

Umhverfis- og skipulagsráð 13. september 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram og kynnt niðurstaða viðhorfskönnunar Maskínu um göngugötur 2023: Þetta eru sömu niðurstöður og áður hafa komið fram. Óánægðastir eru þeir sem eiga erfitt með að komast á göngugöturnar vegna þess að þeir búa fjarri þeim t.d. í úthverfum. Þeir sem búa fjarri hafa hafa ekki aðgengi að þeim nema með einhverjum erfiðleikum. Þeir

Lesa meira »

Borgarráð 7. september 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Meðfylgjandi greining, hugmyndir og tillögur um haftengda upplifun og útivist í Reykjavík draga fram að fjölmörg sóknarfæri: Borgarstjóri leggur til að farið verði í frekari undirbúningsvinnu við gerð haftengdrar upplifunar og útivistar í Reykjavík í samræmi við meðfylgjandi greiningu og skýrslu starfshóps um haftengda upplifun og útivist í Reykjavík. Fulltrúi Flokks fólksins finnst þessi tillaga

Lesa meira »

Velferðarráð 6. september 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 6. september 2023, um breytingu á leiguverðslíkani Félagsbústaða: Verið er að breyta leiguverðslíkani Félagsbústaða því að núgildandi verðlíkan byggir á fasteignamati frá árinu 2017 og mismikil hækkun hefur verið á fasteignamati á milli borgarhluta. Flokki fólksins líst vel á að það verði þak á fasteignamati í einstökum hverfum til

Lesa meira »

Umhverfis- og skipulagsráð 6. september 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram til kynningar, Aðalskipulagsbreyting, Sundabraut, verklýsing: Um þennan lið má segja að það er áríðandi að klára hönnunarvinnuna fljótlega. Mikill dráttur á að ákvarða legu Sundabrautarinnar mun tefja aðra uppbyggingu. Svo þarf að árétta að ekki má skerða gæði strandarinnar og grunnsævis. þess vegna þarf að byggja brýr en alls ekki landfyllingar. Sérkennilegt er

Lesa meira »

Borgarstjórn 5. september 2023

Borgarstjórn Reykjavíkur 5. september 2023 Tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins um skaðabætur vegna myglu í skólahúsnæði Nú er það staðfest að fjölmargir hafa orðið illa úti vegna myglu og raka í skólabyggingum borgarinnar. Starfsfólk hefur hrökklast úr starfi vegna veikinda tengdum myglu og dæmi eru um að börn séu orðin langveik. Borgarfulltrúi Flokks fólksins leggur af þeim sökum til að þeim

Lesa meira »

Forsætisnefnd 1. september 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs dags. 28. júní 2023, sbr. afgreiðslu skóla- og frístundaráðs frá 26. júní 2023, á tillögu fulltrúa í ungmennaráði Grafarvogs um kennslu í fjármálalæsi í grunnskólum Reykjavíkur, sbr. 5. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 14. febrúar 2023: Ungmennaráð Grafarvogs lagði fram tillögu um kennslu í fjármálalæsi sem hljóðaði á þá leið

Lesa meira »

Borgarráð 31. ágúst 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 16. ágúst 2023, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 16. ágúst 2023 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 7-11 við Grjótháls: Ef Ölgerðin telur þessa framkvæmd nauðsynlega og frumkvæði að henni hefur komið frá þeim þá er varla hægt að amast yfir

Lesa meira »

Velferðarráð 30. ágúst 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram minnisblað sviðsstjóra, dags. 30. ágúst 2023, með stöðumati á aðgerðaáætlun velferðarsviðs gegn sárafátækt barna og fjölskyldna þeirra: Til kynningar er stöðumat á aðgerðaáætlun stýrihóps velferðarsviðs um aðgerðir gegn sárafátækt barna og fjölskyldna þeirra. Samkvæmt stöðumatinu hefur ýmislegt áunnist við að bæta þjónustu við efnalitlar fjölskyldur með börn á framfæri. Flokkur fólksins fagnar að

Lesa meira »