Borgarráð 9. febrúar 2023
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 6. febrúar 2023, varðandi stöðu umbóta- og hagræðingartillagna: Lagt er fram til kynningar yfirlit á stöðu umbóta- og hagræðingartillagna sem samþykktar voru 8. desember 2022 við síðari umræðu í borgarstjórn um frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2023. Um er að ræða tillögur meirihlutans en fjöldi hagræðingartillagna minnihlutans voru allar
Mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð 9. febrúar 2023
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um aðgengi í miðbæ fyrir fatlað fólk, sbr. 7. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 8. september 2023. Jafnframt er lögð fram umsögn menningar- og íþróttasviðs dags. 19. janúar s.l. Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks
Umhverfis- og skipulagsráð 8. febrúar 2023
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram skipulagslýsing vegna nýs deiliskipulags Elliðaárvogs-Ártúnshöfða – svæðis 7: Flokkur fólksins finnst það spurning hvort þörf sé á að fá breskt fyrirtæki til að votta byggðina. ,,Til að hljóta vottun BREEAM Communities þarf skipulag að uppfylla ákveðnar skyldukröfur (fyrsta stigs vottun) en við fullnaðarvottun fær skipulagið lokaeinkunn í samræmi við fjölda krafna sem það
Borgarstjórn 7. febrúar 2023
Tillaga Flokks fólksins um heimgreiðslur til foreldra í ljósi manneklu á leikskólum Borgarstjórn Reykjavíkur 7. febrúar 2023 Tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins um heimgreiðslur til foreldra sem bíða eftir leikskólaplássi í ljósi manneklu á leikskólum Lagt er til að á meðan Reykjavíkurborg getur ekki veitt yngstu börnunum leikskólapláss sé foreldrum boðnar heimgreiðslur þ.e. mánaðarlegan styrk á meðan að beðið er eftir
Borgarráð 2. febrúar 2023
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 26. janúar 2023, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 25. janúar 2023 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Esjumela vegna lóðarinnar nr. 1 við Gullsléttu, ásamt fylgiskjölum. SN220460 Samþykkt. Íbúum Kjalarness finnst þeim hafa verið sýnd vanvirðing vegna Gullsléttu 1. Íbúar hafa enn ekki fengið svör við innsendum
Velferðarráð 1. febrúar 2023
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram stöðuskýrsla stýrihóps um endurskoðun aðgerðaáætlunar með stefnu í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir, dags. 1. febrúar 2022, ásamt uppfærðu erindisbréfi, dags. 1. febrúar 2023: Gott að sjá að margt hefur verið gert í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Jákvætt að allar 34 aðgerðirnar séu komnar í ferli og 14
Mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð 26. janúar 2023
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Kynning á ofbeldisvarnarmálum hjá Reykjavíkurborg, sbr. samþykkt mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 8. september 2022: Fulltrúa Flokks fólksins finnst miður að úttektin á ofbeldisvarnarmálum hafi tafist. Samkvæmt minnisblaði virðist sem verkefnið sé aðeins á byrjunarstigi. Mikil umræða hefur verið um aukna ofbeldismenningu hjá ungu fólki undanfarið. Það verður að hafa hraðar hendur og greina vandann svo
Borgarráð 26. janúar 2023
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 17. janúar 2023, þar sem sex mánaða skýrsla Betri samgangna ohf. um stöðu og framgang verkefna er sent borgarráði til kynningar: Fyrstu lotu borgarlínu seinkar verulega þar sem niðurstaða í mörkun samgöngusáttmálans hefur dregist. Uppfæra þarf tímalínu framkvæmda. Það segir sig sjálft að áhrifin verða mikil. Fyrstu
Borgarráð 19. janúar 2023
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 16. janúar 2023, þar sem vörumerkjahandbók Reykjavíkur er send borgarráði til kynningar: Það er sjálfsagt að halda vörumerkjum borgarinnar saman, að þau séu samræmd og aðgengileg á netinu. Flokki fólksins finnst einnig sérkennilegt hvað langan tíma hefur tekið að samræma rafrænar undirskriftir. Það hefur farið umtalsvert fjármagn, þegar allt er
Umhverfis- og skipulagsráð 18. janúar 2023
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofa samgöngustjóra og borgarhönnunar, dags. 12. janúar 2023 þar sem lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki þá aðferðarfærði við forgangsröðun borgargatna í Reykjavík sem lýst er í meðfylgjandi skjali. Tillögunni fylgir greinargerð: Af gögnum má sjá að óhemju vinna er eftir ef bæta á götur í borginni.
Borgarstjórn 17. janúar 2023
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer umræða um málefni Ljósleiðarans ehf.: Slæm staða Ljósleiðarans hefur verið Orkuveitu Reykjavíkur ljós frá 2019 og jafnvel fyrr en ekki fyrir eigendum sem er Reykjavíkurborg. Stjórn Ljósleiðarans samþykkir að taka lán í flýti áður en að rýnihópur borgarráðs hefur lokið störfum. Í rýnihópnum sitja fulltrúar allra flokka. Fyrir rýnihópnum liggur að taka ákvörðun
Forsætisnefnd 17. janúar 2023
Flokkur fólksins verður með 2 mál á fundi borgarstjórnar 13 janúar 2023 Sjá má alla dagsrká borgarstjórnar á www. borgarstjornibeinni Tillaga Flokks fólksins um heimgreiðslur til foreldra Lagt er til að á meðan Reykjavíkurborg getur ekki veitt yngstu börnunum leikskólapláss að bjóða foreldrum mánaðarlegan styrk (heimgreiðslur) sem jafngildir niðurgreiðslum Reykjavíkurborgar fyrir leikskólapláss fyrstu tvö árin. Einhverjir foreldrar hafa tækifæri til
Mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð 12. janúar 2023
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fræðsla samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar við Samtökin 78: Fræðsla samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar við Samtökin 78. Fulltrúi Flokks fólksins þakkar Samtökunum ómetanlegt starf þeirra. Samningur við Reykjavíkurborg hefur staðið í stað. Mikilvægt er að styðja vel við bakið á Samtökunum enda treysta margir á þau með fræðslu og stuðningi. Reykjavík er stærst sveitarfélaga og á að vera
Borgarráð 12. janúar 2023
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 10. janúar 2023, þar sem lögð er fram til kynningar lokaskýrsla um vinnumarkaðsaðgerðir Reykjavíkurborgar í kjölfar COVID-19: Þessari niðurstöðu má sannarlega fagna ef rétt er en samkvæmt stjórnendakönnuninni var ánægja með aðgerðirnar. Eftirfylgni sýndi að mikill meirihluti einstaklinga sem höfðu fengið fjárhagsaðstoð var ánægður í vinnunni. Sérlega áhugavert er að
Velferðarráð 11. janúar 2023
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á tillögu borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar vegna reksturs og þjónustu við langveik börn sem samþykkt var á fundi borgarstjórnar 6. desember 2022: Undir þessum lið kemur ekki margt fram um þjónustu við langveik börn annað en að lagt er til að hafnar verði viðræður við ríkið um að taka að
Umhverfis- og skipulagsráð 11. janúar 2023
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð Sorpu bs. nr. 474, dags. 25. nóvember: Í fundargerðinni fer mest fyrir skrifum um eigendastefnu og er þar margt gott sagt. Borgin á að vera virkur eigandi, í þessu tilfelli með 5 af 20 fulltrúum í stefnuráði og engan frá minnihluta. Hér koma annmarkar bs. kerfisins enn í ljós. Borgin á meirihluta
Borgarráð 5. janúar 2023
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að borgarráð samþykki að umhverfis- og skipulagssviði verði falið að fylgja eftir áframhaldandi hönnun og framkvæmd vegna vinningstillögu um endurhönnun og stækkun á Grófarhúsi, þ. á m. að ganga frá samkomulagi við þá aðila sem voru hlutskarpastir í samkeppni sem lauk í nóvember sl.: Þetta eru skemmtilegar tillögur að mati fulltrúa Flokks
Velferðarráð 21.12. 2022
Bókun Flokks fólksins við liðnum: Lagt fram minnisblað sviðsstjóra, dags. 21. desember 2022, um stöðu málaflokks heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir vegna tíðra kuldakasta: Flokkur fólksins hefur ítrekað lagt til að opnunartíma neyðarskýla verði breytt þannig að þau verði opin að degi til. Undanfarna daga hefur verið hrikaleg kuldatíð með mikilli snjókomu og frosthörku á öllu landinu. Flokkur fólksins
Borgarstjórn 20. desember 2022
Borgarstjórn Reykjavíkur 20. desember 2022 Greinargerð borgarfulltrúa Flokks fólksins við umræðu um framtíðarþjónustu við eldra fólk í Reykjavík Hvernig viljum við sjá þjónustuna þróast, stefnur, áherslur og hver verður þörfin og hvernig viljum við sjá þjónustu við aldraða þróast? Flokkur fólksins hefur lagt fram fjölda tillagna til að bæta þjónustu við eldra fólk í Reykjavík, bæði þá sem eru á
Forsætisnefnd 16. desember 2022
Undirbúningur undir borgarstjórnarfund 20. desember 2022. Þemafundur. Umræðuefni: Framtíðarþjónusta við eldri borgara í Reykjavík Greinargerð borgarfulltrúa Flokks fólksins við umræða um framtíðarþjónustu við eldri borgara í Reykjavík. Hvernig við viljum sjá þjónustuna þróast, stefnur, áherslur og hver verður þörfin og hvernig viljum við sjá þjónustu við aldraða þróast. Flokkur fólksins hefur lagt fram fjölda tillagna til að bæta þjónustu við
Borgarráð 15. desember 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 14. desember 2022, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 14. desember 2022 á auglýsingu á tillögu að deiliskipulagi fyrir svæði 3 í Vogabyggð: Bílastæði eru ekki heimil innan lóða íbúðabygginga á svæðinu. Heimilt er að vera með bílakjallara frá götuhæð. Þetta er galli að mati Flokks fólksins og
Umhverfis- og skipulagsráð 14. desember 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 18. nóvember 2022 þar sem óskað er eftir ábendingum frá fagnefndum sveitarfélaga við tillögu að loftlagsstefnu höfuðborgarsvæðisins: Eftir lestur loftslagsstefnunnar vill Flokkur fólksins minna á tillögu flokksins um skógrækt til kolefnisjöfnunar frá Rauðavatni og langleiðina að Hengli. Þar eru mörg svæði sem henta til skógræktar. Tillagan var
Mannréttindaráð 8. desember 2022
Bókun Flokks fólksins við afgreiðslu tillögu fulltrúa Flokks fólksins um að fjármagn til NPA samninga sé ekki nægjanlegt. MSS22100261 – afgreiðsla: Tillögunni er vísað frá með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. Fundur mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs 27. október 2022; Tillaga fulltrúa Flokks fólksins um NPA samninga: Fjármagn til NPA samninga er
Borgarráð 8. desember 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að borgarráð samþykki tilboð að nafnvirði 1.040 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 3,1%, í verðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVK 32 1, sem eru 901 m.kr. að markaðsvirði og tilboð að nafnvirði 120 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 2,58%, í verðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVK 53 1, sem er 220 m.kr. að markaðsvirði. Flokkur fólksins vill segja nokkur orð
Seinni umræða fjárhagsáætlunar, tillögur og bókanir Flokks fólksins. Borgarstjórn 6. desember 2022
Hér eru bókanir Flokks fólksins við fjármálaþættina á fundi borgarstjórnar við seinni umræðu Fjárhagsáætlunar Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árin 2023-2027 Fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar er kolsvört. Árshlutauppgjörið sýnir verri stöðu en von var á. Það er ekkert eftir af daglegum rekstri upp í fjárfestingar og afborganir lána. Veltufé frá rekstri í A-hluta er rúmar 800 milljónir af 111 milljarða tekjum eða 0,8%. Það
Borgarráð 1. desember 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagður fram árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir janúar-september 2022: Fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar er kolsvört. Um það verður ekki deilt. Borgin hefur safnað skuldum undanfarið eins og enginn sé morgundagurinn. Veltufé frá rekstri er nú einungis um fjórðungur þess sem það þyrfti að vera til að reksturinn væri í þokkalegu jafnvægi. Skammtímaskuldir eru í fyrsta sinn um nokkurra ára
Velferðarráð 30. nóvember 2022
Bókun Flokks fólksins við 9 mánaða uppgjör velferðarsviðs: Fulltrúi Flokks fólksins hefur haft skilning á framúrkeyrslu velferðarsviðs í ýmsum liðum. Mikið hefur mætt á sviðinu og hefur það fengið ýmis óvænt verkefni í fangið t.d. í tengslum við komu flóttafólks frá Úkraínu. Það er mat Flokks fólksins að hækka þurfi fjárheimildir til sviðins, að meirihlutinn þurfi að horfast í augu
Umhverfis- og skipulagsráð 30. nóvember 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Yfirlit yfir ferðakostnað umhverfis- og skipulagssviðs, fyrir tímabilið júlí – september 2022: Heildar ferðakostnaður júlí – september 2022 hjá umhverfis- og skipulagssviði er samtals kr. 1.429.839. Nú getur fulltrúi Flokks fólksins vissulega ekki fullyrt mikilvægi þessara ferða í heildarsamhenginu, þ.e. að þær ferðir sem eru að baki upphæðinni hafi verið nauðsynlegar og skilað sér til
Borgarráð 24. nóvember 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lóðin Sóltún 2-4 en fyrirhugaðar breytingar hafa fengið margar athugasemdir: Íbúar hafa verið með athugasemdir vegna stærð hússins sem hér um ræðir og fjölda íbúða að Sóltúni 4. Áhyggjur eru af aukinni bílaumferð. Óttast er að Sóltún anni ekki þessari miklu umferð. Ástandið er tæpt í dag og viðbótin mun ekki bæta ástandið. Húsið við
Mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð 23. nóvember 2022
Bókun Flokks fólksins við Kynningu á aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar gegn ofbeldi 2022 – 2024: Aðgerðaráætlunin var unnin af ofbeldisvarnarnefnd Reykjavíkurborgar. Hún er ágætur leiðarvísir. Fleiri aðgerðum mætti bæta við s.s. Er varða eldra fólk og heimilisofbeldi/einelti, einnig að lýsing í borginni er stór öryggisþáttur, öryggismyndavélar á leiksvæðum svo fátt sé nefnt. Ýmsar spurningar vakna og þá helst hvernig áætluninni er og
Umhverfis- og skipulagsráð 23. nóvember 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum Bryggjuhverfi við Grafarvog, breyting á deiliskipulagi vegna Tangarbryggju 6-8, 10, 12 og 12A og Naustabryggju 17-19 og 31-33: Eftir því sem lesið er úr gögnum var reglugerð ekki fylgt á sínum tíma en samkvæmt henni eiga að vera þrjú stæði fyrir hreyfihamlaða og athafnasvæði fyrir útkallsaðila / skammtímaaðgengi fyrir t.a.m. leiguakstur fyrir hreyfihamlaða. Vonandi finnst
Borgarráð 17. nóvember 2022
Bókun Flokks fólksins undir 10 lið yfirlits yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 10 mál: Í yfirliti um embættisafgreiðslur má sjá að fyrirspurn Flokks fólksins, dags. 10. nóvember 2022, um einkavæðingu er send til skrifstofu borgarstjóra og borgarritara til umsagnar. Fulltrúi Flokks fólksins telur að hún hefði einnig átt að vera send til stjórnar Strætó bs. Fyrirspurnin er
Velferðarráð 16. nóvember 2022
Bókun Flokks fólksins við kynningu á samningi við ríkið um samræmda móttöku flóttafólks: Flokkur fólksins fagnar því að loks hafi náðst samningur milli ríkis og sveitarfélaga um samræmda móttöku flóttamanna. Markmið samningsins er að samræma móttöku flóttafólks þannig að ríki og sveitarfélög tryggi flóttafólki samfellda og jafna þjónustu óháð því hvaðan það kemur. Með samræmdu móttökukerfi flóttafólks er stefnt að
Umhverfis- og skipulagsráð 16. nóvember 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Stækkun lóðarinnar nr. 3 við Sogaveg, samkvæmt uppdrætti K.J.ARK ehf. dags. 22. mars 2022: Skipulagsyfirvöld leggja fram að lokinni grenndarkynningu umsókn Djúpadals ehf. dags. 30. mars 2022 um stækkun lóðarinnar nr. 3 við Sogaveg, samkvæmt uppdrætti K.J.ARK ehf. dags. 22. mars 2022. Nágrannar mótmæla. Nágranni spyr hvort Fiskikóngurinn hafi leyfi til að verka fisk fyrir
Borgarstjórn 15. nóvember 2022
Tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins um mælaborð vegna eineltis og annara ofbeldismála á fundi borgarstjórnar 15. nóvember 2022 Borgarfulltrúi Flokks fólksins leggur til að borgarstjórn samþykki að sett verði upp mælaborð þar sem hægt er að sjá hvaða úrræði skólar, íþrótta- og tómstundafélög Reykjavíkurborgar, hafa tiltæk þegar upp koma eineltis eða önnur ofbeldismál. Í sérhverri verkfærakistu skóla og félaga þurfa að
Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð 10. nóvember 2022
Bókun Flokks fólksins við framlagningu og afgreiðslu tillögu Flokks fólksins um aðgengi fatlaðs fólks sbr. 6. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 25. ágúst 2022. Jafnframt er lögð fram umsögn aðgengis- og samráðsnefndar dags. 6. október 2022: Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Sósíalistaflokks Íslands
Borgarráð 10. nóvember
Bókun Flokks fólksins við framlagningu uppfærðrar húsnæðisáætlunar Reykjavíkur: Það virðist vera ágætur kraftur í uppbyggingu þótt langt sé í land að framboð og eftirspurn dansi í takt. Auka á stuðning við leigjendur. Hámarksgreiðslur voru hækkaðar úr 82.000 krónum í 90.000 krónur á mánuði og stuðull útreikninga hækkaður úr 0,9 í 1,0. Hér finnst Flokki fólksins að hefði mátt gera betur
Umhverfis- og skipulagsráð 9. nóvember 2022
Bókun Flokks fólksins undir umræðunni: Nagladekk, auglýsingar, talning og umræða Umræða um nagladekk er góð og gild. Ekki skal gleyma hvar við búum. Í upphafi vetrar er útilokað að segja hvernig ,,veturinn” verður á Íslandi. Verður hann snjóléttur, hér á suðvesturhorninu eða verður hann snjóþungur. Enginn veit. Flokkur fólksins veit þó tvennt. Ef veturinn er snjóþungur hér á suðvesturhorninu verða
Aukafundur borgarráðs 3. nóvember 2022
Eitt mál er á dagskrá Skuldabréfaútboð Bókun Fokks fólksins í málinu: Meirihlutinn leggur til að borgarráð samþykki tilboð í verðtryggðan skuldabréfaflokk. Greinagerð fylgir. Lítill sem enginn fyrirvari var á þeim aukafundi sem boðað var til, til að afgreiða málið. Gögn komu sein og sum gögn eru leynileg. Flokkur fólksins hefur enga möguleika haft að kynna sér þetta mál til að
Velferðarráð 2. nóvember 2022
Bókun Flokks fólksins við framlagningu sviðsstjóra, dags. 2. nóvember 2022, um samstarfssamning sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um samráð og samstarf á sviði velferðarþjónustu: Hér er kynntur samstarfssamningur stjórnenda í velferðarþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Markmið samningsins er einkum að efla velferðarþjónustu á höfuðborgarsvæðinu með samtali, samráði og samstarfi sveitarfélaganna. Flokki fólksins líst almennt vel á þennan samstarfssamning og vonar að hann stuðli að
Umhverfis- og skipulagsráð 2. nóvember 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Grænbók um líffræðilega fjölbreytni íslenskra vistkerfa, umsögn: Fram kemur í umsögn að ,,Reykjavík fagnar því að vinna sé hafin við endurskoðun á stefnu um líffræðilega fjölbreytni og hefur fullan áhuga á að taka þátt í þeirri vinnu.” Ekki veitir af því þar sem stefna borgarinnar í þessum málum hefur verið sérstök. Allar smá framkvæmdir svo
Oddvitaræða við fyrri umræðu um fjárhagsáætlunar og fimm ára áætlunar 1 nóvember, 2022
RÆÐA ODDVITA FLOKKS FÓLKSINS FYRRI UMRÆÐA Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar Fimm ára áætlun fyrir 2023-2027 Fjármálaráðstefna Reykjavíkur „Við erum að horfa að mestu á A- hlutann. Þó má ekki gleyma því að A-hlutinn er fjárhagslegur bakhjarl allra B-hlutafyrirtækja ef þau verða fyrir fjárhagslegum áföllum eins og dæmi eru um. Ef litið er yfir þessar tölur þá hafa rekstrartekjur A-hluta vaxið um 16%
Borgarstjórn, fyrri umræða Fjárhagsáætlunar 2023 bókanir og breytingatillögur Flokks fólksins
Breytingatillögur Flokks fólksins og bókanir: BORGARRÁÐ 28. október 2022: Breytingartillögur Flokks fólksins (F) við frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2023 – FAS22010020 F-1 Breytingartillaga Flokks fólksins vegna viðmiðunartekna til lækkunar fasteignaskatts og fráveitugjalds elli- og örorkulífeyrisþega. Lagt er til að viðmiðunartekjur tillögunar verði eftirfarandi: Réttur til 100% lækkunar Einstaklingur með tekjur allt að 5.040.000 kr. Samskattaðir einstaklingar með tekjur allt að
Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð 27. október 2022
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Flokks fólksins um ályktun til ríkisstjórnarinnar: Fjármagn til NPA samninga er ekki nægjanlegt. Vegna vanfjármögnunar í þennan málaflokk er verið að brjóta lög sem samþykkt voru á Alþingi Íslendinga. Spurning hvort ekki sé verið að brjóta mannréttindi á okkar allra viðkvæmustu þegnum. Flokkur fólksins leggur til að mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð beiti sér í þessu máli.
Borgarráð 27. október 2022
Bókun Flokks fólksins við tillögu meirihlutans um að fela íþrótta- og tómstundasviði (ÍTR) að gera samkomulag við Farfugla um afnot langtímagesta að tjaldstæðinu í Laugardal ásamt því að kanna möguleika á staðsetningu fyrir langtímastæði fyrir húsbíla með íbúum sem nú búa á svæðinu í Laugardal: Það er mat Flokks fólksins að hér sé um mikla hækkun að ræða, hækka á
Umhverfis- og skipulagsráð 26. október 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Tillaga að breytingum á hámarkshraða, í tengslum við tímabundið skólahúsnæði í Ármúla og víðar: Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir mikilvægi þess að lækka hraða í íbúðagötum og í götum sem skólar eru og börn á ferð. Þær götur sem engir skólar eða íbúðahús standa beint við er hins vegar engin nauðsyn að lækka hraðann niður
Borgarráð 20. október 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fegrunarviðurkenningar fyrir falleg hús og lóðir: Fulltrúi Flokks fólksins finnur sig knúinn til að bóka aftur sömu gagnrýnina þegar kemur að fegrunarviðurkenningum og fyrirkomulaginu í því sambandi. Fulltrúi Flokks fólksins telur að leggja eigi áherslu á að dreifa vali á viðurkenningum þannig að viðurkenningar fari í fleiri hverfi en miðbæinn. Það hefur verið lenska meirihlutans
Umhverfis- og skipulagsráð 19. október 2022
Bókun Flokks fólksins við reglur um visthæfar bifreiðar, tillaga: Skipulagsyfirvöld leggja til að reglur um bifreiðar sem eiga rétt á visthæfum skífum verði ekki endurnýjaðar þegar þær renna út í árslok 2022. Þetta eru vonbrigði. Flokkur fólksins hefði frekar talið nauðsynlegt að útvíkka þessar reglur til þess að hvetja þá sem það geta að kaupa vistvæna bíla og flýta enn
Forsætisnefndarfundur 14. október 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum Yfirlit yfir móttökur: Lagt er fram yfirlit yfir móttökur sem spannar frá mars til september 2022. Gott hefði verið ef sundurliðun fylgdi hverjum lið fyrir sig og heildarkostnaður. Það vekur athygli að viðburðurinn Stjórnendadagur Reykjavíkurborgar kostaði kr. 1.117.233 Fjármál borgarinnar hafa sennilega aldrei verið eins slæm og nú og víða er hart í ári. Gæta
Borgarstjórn 18. október 2022
Borgarstjórn Reykjavíkur 18. október 2022 Tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins um stofnun stýrihóps til að bregðast við auknum vopnaburði meðal unglinga Bylgja ofbeldis hefur riðið yfir á meðal íslenskra barna og ungmenna í Reykjavík. Borgarfulltrúi Flokks fólksins leggur til að settur verði á laggirnar stýrihópur sem kortleggur aukinn vopnaburð eggvopna meðal ungmenna í Reykjavík. Einnig meta viðbrögð borgarinnar sem lýtur að
Borgarráð 13. október 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum Frumvarp til fjárlaga: Fjölmörg verkefni eru sameiginleg ábyrgð ríkis og borgar. Það er þekktur vandi að ekki fylgi nægt fjármagn frá ríki til borgar vegna verkefna sem komið er inn á borð sveitarfélaga. Þetta er sagan endalausa og hefur bitnað alvarlega á þjónustuþegum. Leiðrétta þarf fjárframlög ríkisins til borgarinnar þannig að fjármagn verði veitt eftir
Umhverfis- og skipulagsráð 12. október 2022
Bókun Flokks fólksins við liðnum Efra Breiðholt, hverfisskipulag, breyting á hverfisskipulagi vegna skilmálaeiningar: Skipulagsyfirvöld leggja til að fella út tvær skilmáleiningar úr hverfisskipulagi vegna skörunar við deiliskipulag Arnarnesvegar sbr. tillögu að breytingu á hverfisskipulagi fyrir Efra Breiðholt sem sett er fram á uppdrætti og í greinargerð dags. 30.04.2021 br. 05.10 2022. Lagt er til að tillagan verði samþykkt án grenndarkynningar
Borgarráð 6. október 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum Tillaga borgarstjóra, dags. 4. október 2022 að borgarráð samþykki hjálagðar reglur um úthlutun lóða til trú- og lífsskoðunarfélaga: Það er úrelt að mati fulltrúa Flokks fólksins að einstök félög fái ívilnun á grundvelli trúarlegrar /siðfræðilegrar afstöðu. Þess vegna er rétt að þau greiði fyrir lóðir og byggingar rétt eins og önnur félög. Bókun Flokks
Velferðarráð 5. október 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 26. september 2022, með bókun mannréttinda- og ofbeldisvarnaráðs um stöðu heimilislausra kvenna í Reykjavík, sbr. 3. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnaráðs frá 22. september 2022: Flokkur fólksins styður heilshugar þessa bókun mannréttinda og ofbeldisvarnarráðs. Fulltrúi Flokks fólksins var á þessum fundi mannréttindaráðs þar sem borgarfulltrúar fengu kynningu á
Umhverfis- og skipulagsráð 5. október 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum Borgartún 34-36, breyting á deiliskipulagi: Í nýjustu breytingunni felst að fækka eigi íbúðum um tvær þ.e úr 102 í 100. Húsið er lækkað um eina hæð, skuggavarp er minnkað og fjölgun er á íbúum hússins. Þetta eru litlar breytingar í heildarsamhengi þessa húss. Var ekki vilji til að lækka húsið um fleiri hæðir? Er almennt
Borgarstjórn 4. október 2022
Umræða um langa biðlista eftir sálfræði- og talmeinaþjónustu í Reykjavík að beiðni borgarfulltrúa Flokks fólksins Nýlega kom út ársskýrsla velferðarsviðs. Í skýrslunni eru birtar upplýsingar um algengustu ástæður tilvísana eftir faglegri þjónustu fyrir börn.. Lang mesta aukningin milli ára er vegna tilfinninga- og félagslegs vanda (kvíða, depurðar, einmanaleika) eða um 63%, og vegna málþroskavanda, 62%. Einbeitingarvandi hefur aukist frá 280
Mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð 22. september 2022
Bókun Flokks fólksins við framlagningu bréfs skrifstofu borgarstjórnar dags. 21. september 2022, um samþykkt fyrir mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð, sbr. samþykkt borgarstjórnar frá 20. september 2022: Mannréttindaráð er að taka miklum breytingum. Búið er að taka stafrænu málin úr því og setja í sér ráð og inn er kominn málaflokkur ofbeldis sem áður átti sína eigin nefnd. Þessar breytingar eru umdeildar
Borgarráð 22. september 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum Reynimelur 66: Flokkur fólksins vill undirstrika að með þessari breytingu verði byggingarmagn á lóðinni ekki aukið. Áhyggjur eru af því. Fínt er að húsið Reynimelur 66 fái að standa áfram. Íbúar þurfa að fá að vera með í þessum ákvörðunum og fá að sjá gögn í tíma og með skýrum hætti. Öðruvísi er ekki hægt
Velferðarráð 21. september 2022
Bókun Flokks fólksins við tillögu sviðsstjóra um nýtt útboð á heimsendum mat: Flokkur fólksins vill stíga varlega til jarðar þegar kemur að útvistun opinberra verkefna til einkaaðila, sérstaklega þegar kemur að beinni þjónustu við viðkvæma hópa. Útvistanir til einkaaðila hafa gengið misvel auk þess sem útvistanir geta leitt til lægri launa, verra starfsumhverfis og verri þjónustu. Ef horft er til
Umhverfis- og skipulagsráð 21. september 2022
Bókun Flokks fólksins við liðnum SORPA bs., fundargerð, lið 7: Flokkur fólksins hefur margrætt um fundargerðir SORPU og bent á hvað þær séu rýrar. Það mætti halda að kjörnum fulltrúum í minnihluta komi ekki við hvað fram fer á fundum . Í SORPU hefur mikið gengið á síðustu misseri eins og flestir þeir sem fylgst hafa með vita. Í gögnum
Borgarstjórn 20. september 2022
Umræða um hvort bruðl og sóun hafi átt sér stað í stafrænni umbreytingu Reykjavíkurborgar að beiðni borgarfulltrúa Flokks fólksins Greinargerð Nú eru liðin tæp tvö ár frá því að borgarstjórn samþykkti að fjárfesta 10 ma.kr. í stafræna umbreytingu á þriggja ára tímabili. Nú er upphæðin komin í 13 ma.kr. og á þessu kjörtímabili á að auka fjármagn enn frekar í
Forsætisnefnd 16. september 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum Samþykkt fyrir mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð: Mannréttindaráð er að taka miklum breytingum. Búið er að taka stafrænum málin úr því og setja í sér ráð og inn er kominn málaflokkur ofbeldis sem áður átti sína eigin nefnd. Þessar breytingar eru umdeildar og allsendis óvíst hvort þessi breyting verður til góðs eða ekki. Hætta er á að
Kynningarfundur fyrir kjörna fulltrúa um stöðu verkefna Samgöngusáttmálans
Kynning borgarlínu. Viðbrögð Flokks fólksins við það sem fram kemur á fundinum Kynntir eru kostir almenningssamgangna og litlu við það að bæta. Auðvitað er gott ef almenningsamgöngur getir séð um stórarn flutning manna hverfa á milli. Gott er að það kemur fram að áhersla verður samhliða lögð á hjólreiðar, en þar má margt bæta. Mikil áhersla á að auka umhverfisgæði
Borgarráð 15. september 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum:Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 9. september 2022, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 7. september 2022 á breytingu á deiliskipulagi athafnasvæðisins Esjumela á Kjalarnesi vegna Kalksléttu 1 og Koparsléttu 22: Íbúar í Kollafirði, næstu nágrannar svæðis AT5-b, gerðu athugasemdir við auglýsta breytingu á deiliskipulagi um Kalksléttu 1 og Koparsléttu 22. Athugasemdir ganga út
Velferðarráð 14. september 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum tillaga sviðsstjóra, dags. 14. september 2022, um stofnun neyðarhúsnæðis fyrir heimilislausa karlmenn í miðborginni: Lagt er til að velferðarráð samþykki að verja alls 155 m.kr. til reksturs neyðarhúsnæðis í miðborginni fyrir heimilislausa karla sem dvalið hafa í langan tíma í neyðarskýlum borgarinnar. Flokkur fólksins fagnar allri viðbót því vandinn er mikill. Sjá má á nýtingartölum
Umhverfis- og skipulagsráð 14. september 2022
Bókun Flokks fólksins undir liðnum:Landakotsreitur, breyting á deiliskipulagi. Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Landakotsreits: Flokki fólksins finnst ávallt mikilvægt að hlustað sé á fólk, haft við það samráð þegar verið er að breyta hverfinu þeirra og taka til greina vel rökstuddar athugasemdir. Umfram allt mega skipulagsyfirvöld ekki valta yfir